Ljósmyndasíða Rikka Fuglar, gamlir bátar, mannlíf, íslensk náttúra eins og ég sé hana |
|
30.07.2010 01:28Fólk í FlateyAlltaf er nú gaman að taka myndir af fólkinu í Flatey. Þá á ég helst við "íbúa" Flateyjar frekar en ferðamennina, þó þeir setji sterkan svip á eyjuna. Hér eru fjórar myndir af "íbúum" Flateyjar við hin ýmsu verk og ein af ferðamönnum. Gunnar stiður tankinn svo hann detti ekki, þ.e. tankurinn. Elín Hanna liggur og gefur öndunum brauð, því ekki standa. Guðmundur var að skrapa en náði varla upp og hélt sér þá í hæsta punktinn og hálfhékk þarna, til þerris líklega. Þá var það sá gamli á Millustöðum sem ég veit ekki hvað heitir, en reikna með að það komi frá einhverjum. Að lokum er mynd af tveimur ferðamönnum, útlendingum, græjukörlum, hef ekki fleiri lýsingarorð yfir þá. Ekki laust við að maður óski sér að þeir gefi manni græjurnar, svona af því bara. Nóg komið í bili.
Skrifað af Rikki R. 30.07.2010 01:15Skáld í FlateyÞeir sem þekkja eitthvað til sögu Flateyjar vita að þar hafa margir þjóðþekktir einstaklingar dvalið m.a.Sigvaldi Kaldalóns, Halldór Laxness, Þorbergur Þórðarson, Jökull Jakobsson, Nína Björk svo eitthvað sé nefnt. Í einum glugganum á Eyjólfspakkhúsi rak ég augun í þenna "fjaðurpenna" og fannst hann nokkuð táknrænn fyrir þetta merkisfólk sem hefur verið í Flatey.
Skrifað af Rikki R. 30.07.2010 01:01Magnmyndir úr FlateyÉg hef verið að vinna myndir frá síðustu Flateyjarferð og setti inn nokkrar myndir. Á talsvert eftir, hef gefið mér lítinn tíma í þetta upp á síðakastið en þetta kemur allt í rólegheitum. Hér eru þrjár sem mig langar að kalla "Magnmyndir". Íbúar í Flatey veiða sér til matar, íbúar og gestir drekka kók úr bauk og svo eitthvað úr flöskum líka. Fyrir þá sem ekki vita þá eru söfnunarkassar fyrir dósir og flöskur sem eru til styrktar kirkjunni í Flatey.
Skrifað af Rikki R. 26.07.2010 23:45LopapeysutískanTengdamóðir mín hún Gréta Bents hefur verið iðin við að prjóna lopapeysur á allan kvenlegginn í fjölskyldunni. Það vildi svo til að alls voru 7 lopapeysur af 10 til staðar sem Gréta var búinn að prjóna. Gréta er byrjuð á 11 peysunni ef talning okkar er rétt. Smellt var af nokkrum myndum og eru þær í albúmi. Myndirnar eru teknar í Flatey á Breiðafirði.
Skrifað af Rikki R. 11.07.2010 23:36Hjaltalín með tónleikaHjaltalín hélt tónleika í Samkomuhúsinu í Flatey á Breiðafirði 01. júlí 2010. Myndir komnar inn af þeim viðburði.
Skrifað af Rikki R. 11.07.2010 23:31Hjálmar á balli í FlateyMyndir komnar inn frá ballinu sem Hjálmar héldu í Samkomuhúsinu í Flatey 26. júní 2010. Mikill fjöldi fólks mætti á svæðið. Ég tók ekki margar myndir inni á ballinu, enda fór ég ekki á ballið. Fékk að fara inn og smella af tveim myndum af hljómsveitinni að spila.
Skrifað af Rikki R. 11.07.2010 12:45Menningarviðburðir í Flatey 26. júní - 03. júlí 2010Langar að segja ykkur frá hvaða helstu fréttaviðburðir voru í Flatey á meðan við stoppuðum þar frá 26. júní - 3. júlí 2010.
Læt þetta duga um menningarlega viðburði í Flatey á Breiðafirði þessa vikuna. Alltaf nóg um að vera fyrir þá sem vilja. Skrifað af Rikki R. 11.07.2010 12:19Fuglar í Flatey 2010Fuglalífið í Flatey á Breiðafirði er fjölbreytt og gaman að rölta um og fylgjast með fuglunum. Hér má sjá nokkrar af þeim myndum sem ég tók en margar fleiri eru í albúmum. Fyrir ykkur sem hafið áhuga þá tók ég myndir af m.a. fýl, teistu, kríu, lóuþræl, snjótittlingum, þúfutittlingum, stelkum, æðarfugli svo eitthvað sé nefnt.
Skrifað af Rikki R. 10.07.2010 17:03KrrrrrríííííÁkvað að gera tilraun til að ná kríunni þegar hún steypir sér á mig. Nokkrum myndum náði ég og má sjá afraksturinn í albúmi. Hér eru tvær og vona ég að þær skili því sem ég var að reyna að ná. Krrrrríííí. Þess má geta að eftir þessa Flateyjarferð var ég með um 15 sár á hausnum eftir kríurnar.
Skrifað af Rikki R. 08.07.2010 21:52Bátadagar í FlateyÞá eru myndirnar fyrir bátadagana komnar inn. Ef ég hef þetta rétt þá voru þarna 10 bátar plús 3 fylgdarbátar. Ég ætla að setja nöfn þeirra allra inn á myndirnar svo þið eigið að sjá hvað þeir heita. Vona bara að ég ruglist ekki. Þetta voru allt glæsilegir bátar sem þarna voru á ferð. Ætli ég verði ekki að viðurkenna að ég geri einum bátnum aðeins meira undir höfði en hinum þar sem eigendurnir komu í heimsókn í Bræðraminni. Í þessari bátalest voru tveir bátar frá Hvallátrum - Ólafur og Björg, einn frá Skáleyjum - Bjargfýlingur, tveir úr Flatey - Hringur og Rita, einn með tengls við Rauðseyjar - Gustur, tveir frá Patreksfirði - Máni og ?, einn frá Reykhólum - Hafdís og svo Sprengur sem ég náði ekki hvaðan kæmi en eigandi hans er Hjalti Hafþórsson.
Skrifað af Rikki R. 06.07.2010 22:01Flatey 26. júní - 3. júlí 2010Kominn heim. Var í Flatey á Breiðafirði frá 26. júní til 3. júlí og kom heim með 1357 myndir sem ég þarf að fara yfir og skoða. Í Flatey var margt að gerast, fuglar, fólk, þrennir tónleikar og bátadagar svo eitthvað sé nefnt. Tók myndir af þessu öllu. Reyni að setja inn myndir eins hratt og kostur er og blanda því soglítið svo allir geti notið Ákvað að setja inn tvær myndir svona til að hita sjálfan mig upp. Fyrri báturinn var settur á flot 02. júlí til að gera klárt fyrir bátadaga í Flatey. Báturinn heitir Hringur, eigandi Bjarni í Bergi. Seinni myndir er af Gusti sem var einn af tíu bátum sem komu siglandi í Flatey á bátadögum 03. júlí 2010. Mun setja inn myndir frá Bátadögum við fyrsta tækifæri.
Skrifað af Rikki R. 25.06.2010 00:42StelkurÉg ætlaði mér að taka myndir af kríu en það tókst ekki en þessi stelkur var aðeins rólegri. Þegar hann svo flaug upp tók hann smá hring í kringum mig svo ég náði að smella af nokkrum sinnum. Ég er sáttur við afraksturinn. Líklega hefur stelkurinn átt hreiður eða unga þarna nálægt. Viðvörunarbjallan hans var á fullu, hvort sem hann flaug eða sat.
Skrifað af Rikki R. 25.06.2010 00:36Brakandi blíðaEftir vinnu fannst mér veðrið bjóða uppá myndatöku. Ég kíkti í Reykjavíkurhöfn og smellti af nokkrum myndum. Farið var víða til að mynda og mun ég henda inn myndum eitthvað næstu daga. Hér eru tvær af þessum myndum, fleiri í albúmi.
Skrifað af Rikki R. 20.06.2010 23:51Sápukúluhúsið?Þegar ég horfði yfir að Hörpunni í dag velti ég því fyrir mér hvar arkitektinn hafi fengið hugmyndina að þessum gluggum og litum í glerinu. Eftir smá umhugsun áttaði ég mig á þessu öllu saman. Arkitektinn var í baði þegar hann fékk hugmyndina af lögun glugganna og litum. Ef þú heldur uppi sápulöðri og kíkir inní löðrið þá sérðu allavegna brot þar sem sápukúlurnar límast saman, þannig er lögun glugganna í Hörpunni. Varðandi litina þá koma allskonar litbrot í sápukúlurnar og það eru litirnir í gluggunum. Hér sjáiði á hvaða stigi Harpan er að utanverðu í dag og neðri myndin sýnir litina í glerinu. Þetta er alla vegna mín skoðun á þessu.
Skrifað af Rikki R. 20.06.2010 23:46Álftarfjölskyldan á BakkatjörnFór að Bakkatjörn og tók þar nokkrar myndir af álftunum með ungana sína. Á neðri myndinni mætti halda að þar væri mamman að syngja Hógí pógí eða "setjum hægri vænginn út,.........." alla vegna fylgjast ungarnir vel með. Fleiri myndir í albúmi.
Skrifað af Rikki R. |
Málsháttur dagsins Svo flýgur hver fugl sem hann er fiðraður !clockhere Rikki R Nafn: Ríkarður RíkarðssonFarsími: 862 0591Tölvupóstfang: rikkirikka@gmail.comAfmælisdagur: 24. septemberHeimilisfang: Breiðvangi 3, 220 HafnarfjörðurStaðsetning: HafnarfjörðurHeimasími: 565 5191Um: Fæddur á Húsavík á því herrans ári 1961 og hef tekið ljósmyndir frá því ég var strákur. Aðaláhugamálið er að taka myndir af fuglum en þó mynda ég allt sem mig langar til að mynda eins og sjá má.Eldra efni
Tenglar
|
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is