Ljósmyndasíða Rikka

Fuglar, gamlir bátar, mannlíf, íslensk náttúra eins og ég sé hana

Málsháttur dagsins

A-
Að afdrifunum spyrja allflestir !
Að biðja er mönnum misjafnt lagið !
Að eiga spón í annars aski !
Að elska er að hætta að gera samanburð !
Að flaustra er ekki að flýta sér !
Að fyrirgefa og gleyma er hefnd ágætismannsins !
Að hita er sama og tapa !
Að kvöldi skal ósáttum eyða !
Að missa spón úr aski sínum !
Að hita er sama og tapa !
Að hugsa einhverjum þegjandi þröfina, hvað sem á dynur !
Að láta annars víti að varnaði verða !
Að reiðast er að hefna ávirðinga annarra á sjálfum sér !
Að verja mistök er að endurtaka þau !
Að vinna frjálslega er gott; að hugsa rétt er betra !
Aðgát skal höfð í nærveru sálar !
Af gnæfð hjartans mælir munnurinn !
Auðveldara er að fá leigt í miðbænum en guðanna bænum !

B-
Betra er að drepa tímann en sjálfan sig ! 
Betra er að fara á kostum en taugum !
Betra er að ganga fram af fólki en björgum !
Betra er að hlaupa í spik en kekki !
Betra er að ná áfanga en að ná fanga !
Betra er að ráða menn með réttu ráði en ráðamenn !
Betra er að sofa hjá en sitja hjá !
Betra er að standan á eigin fótum en annarra !
Betra er að teyga sopann en teygja lopann !
Betra er að vera á milli svefns og vöku en stafs og hurðar og skers og báru og steins og sleggju ! 
Betra er að vera eltur en úreltur !
Betra er að vera sí-virðulegur en svívirðilegur ! 
Betra er áfengi en áfangi !
Betra er einn fugl í sósu en tveir í frysti ! 
Betra er langlífi en harðlífi !
Betri er uppgangur en niður gangur!
Betri er utanför en útför !
Betri eru kynórar en tenórar !
Betri eru læti en ranglæti !
Blankur er snauður maður ! 
Blindur er sjónlaus maður !  
Bændur eru bændum verstir og neytendum líka !  


E-
Ef það er ekki eitthvað, þá er það bara eitthvað annað !
Ef þú átt vín þá áttu vin !
Eftir höfðinu dansar limurinn !
Ei var hátíð fátíð í þátíð !
Einsdæmi er að dæmisögur séu dæmdar dæmalausar !
Eitt sinn skal hver fæðast !
Ekki dugar að drepast !
Ekki er aðfangadagur án jóla !
Ekki var Lennon skotinn í Yoko heldur í New York !
Enginn veit sína kæfuna fyrr en öll er !
Enginn verður óbarinn boxari !

F-
Fátt smátt gerir lítið eitt eða ekki neitt !  
Fiskisagan flýgur en fiskimaðurinn lýgur !
Flasa er skalla næst ! 
Flestar gleðikonur hafa í sig og á !
Frestaðu því ekki til morguns sem þú getur frestað lengur ! 

G-

Greidd skuld, glatað fé !

H-
Hagstæðara er að borga með glöðu geði en peningum !
Heima er best í hófi !
Hungraður maður gerir sér mat úr öllu !


I-
Illu er best ólokið !
  

L-
Lengi lifa gamlar hræður !
Léttara er að sóla sig en skó !


M-
Maður fær sig fullsaddan af hungri ! 
Margri nunnu er "ábótavant" !
Margur bílstjórinn ofkeyrir sig !
Margur boxarinn á undir högg að sækja !
Margur bóndinn dregur dilk á eftir sér ! 
Margur bridgespilarinn lætur slag standa !
Margur fer yfir Strikið - í Kaupmannahöfn ! 
Margur geispar golunni í blankalogni !
Margur hefur farið flatt á hálum ís ! 
 
Margur leggur "mat" á disk !
Margur miljónamæringurinn á ekki baun í bala - bara peninga !
Margur nautabaninn sleppur fyrir horn !
Margur sefur yfir sig sem vaknar ekki á réttum tíma ! 
Margur slökkviliðsmaðurinn er eldklár !  
Minkar eru bestu skinn !

N-
Nakinn er klæðlaus maður !

O-
Oft er bankalán ólán í láni !
Oft er dvergurinn í lægð !

Oft er grafin maður dáinn ! 
Oft er lag engu lagi líkt !
Oft er virtur maður ekki virtur viðlits !  

Oft eru bílstjórar vel á veg komnir !
Oft eru dáin hjón lík !
Oft eru lík fremur líkleg !
Oft eru læknar með lífið í lúkunum !  

Oft fara bændur út um þúfur !
Oft fara hommar á bak við menn !
Oft fer bakarinn í köku, ef honum er gefið á snúðinn !

Oft fer presturinn út í aðra sálma !
 
Oft fýkur í menn sem gera veður út af öllu !
Oft hrekkur bruggarinn í kút !
Oft kemst magur maður í feitt !
Oft láta bensínafgreiðslumenn dæluna ganga !
Oft svarar bakarinn snúðugt !
Oft veldur lítill stóll þungum rassi !
Oft verða slökkviliðsmenn logandi hræddir !

R-
Rangt er alltaf rangt, það er rétt !  

S-
Saumakonan fæst ekki til að stoppa, þegar hún er byrjuuð að halda tölu, og prjóna við sögu, og spinna lygavef og tvinna allt saman og spotta menn og fara ofaní saumana á hlutunum sem eru nýir af nálinni og sauma að fólki sem er á nálum og er að reyna að bæta ráð sitt og bíta úr nálinni......æ æ þar missti ég þráðinn !
Sá hlær oft sem víða hlær !
Sjaldan eiga fiskar fótum fjör að launa !
Sjaldan er góður matur of oft tugginn ! 
Sjaldan fara sköllóttir í hár saman !
Sjaldan fellur gengið langt frá krónunni !
  

Sjaldan fellur róninn langt frá flöskunni !
Svo flýgur hver fugl sem hann er fiðraður !  


T-
Til þess eru vítin að skora úr þeim !

V-
Vandfarið er með annara eign !
Verra er að gleypa koddaver, Húnaver, sængurver, orkuver, Magnús Ver en Sjeniver, því er ver !
Víða er þvottur brotinn ! 


Þ-
Það er gömul lumma að heitar lummur seljist eins og heitar lummur !
Þegar neyðin er stærst er hjálpin fjærst !









Málsháttur dagsins

Svo flýgur hver fugl sem hann er fiðraður !
clockhere

Rikki R

Nafn:

Ríkarður Ríkarðsson

Farsími:

862 0591

Afmælisdagur:

24. september

Heimilisfang:

Breiðvangi 3, 220 Hafnarfjörður

Staðsetning:

Hafnarfjörður

Heimasími:

565 5191

Um:

Fæddur á Húsavík á því herrans ári 1961 og hef tekið ljósmyndir frá því ég var strákur. Aðaláhugamálið er að taka myndir af fuglum en þó mynda ég allt sem mig langar til að mynda eins og sjá má.

Tenglar

Flettingar í dag: 318
Gestir í dag: 8
Flettingar í gær: 1021
Gestir í gær: 27
Samtals flettingar: 311723
Samtals gestir: 29921
Tölur uppfærðar: 19.3.2024 06:32:05