Ljósmyndasíða Rikka Fuglar, gamlir bátar, mannlíf, íslensk náttúra eins og ég sé hana |
|
Færslur: 2009 Október29.10.2009 21:18Gleymdar myndir og svínaflensaNú er ekkert um myndatökur hjá mér enda karlinn kominn með þessa illræmdu svínaflensu. Lagðist s.l. mánudag og hef barist við hita og hósta síðan. Fékk niðurstöður í dag frá lækni að ég væri með svínaflensuna. En það þýðir ekkert að væla enda þessi síða ekki til að segja frá heilsufari mínu heldur að leyfa ykkur að skoða myndir.
Skrifað af Rikki R. 26.10.2009 21:21Bátar á HúsavíkJæja Haffi, fann nokkrar myndir af bátum fyrir þig og alla hina líka. En eins og þú veist þá eru þessar bátamyndir bara settar inn fyrir þig. Nei, án alls gríns þá setti ég nokkrar myndir inní bátaalbúmið. Hér má sjá tvær, myndin af Árna er skönnuð. Árið 2008 tók ég einhverjar myndir af bátunum á Húsavík og hafa þær ekki allar komið hér inn en nú gerði ég smá bót þar á. Njótið vel.
Skrifað af Rikki R. 26.10.2009 21:12Húsvíkingar fyrr og núÉg er alltaf að finna einhverjar myndir sem ég get sett inn í Húsvíkingar fyrr og nú, möppuna. Þarna fjölgar jafnt og þétt. Það er spurning hverjir eru komnir inn núna sem ekki hafa verið áður, kanski þú? Ég mun svo halda áfram að skanna inn gamlar myndir og setja þær inn hægt og rólega.
Skrifað af Rikki R. 25.10.2009 02:01Ein fyrir HaffaHaffi hér er ein frá því í gær. Sama kirkja en eins og þú sérð er þarna einn bátur. Eru þessir ekki kallaðir Færeyingar?
Skrifað af Rikki R. 25.10.2009 00:39Hús af ýmsum togaÉg kíkti smá hring í gær, 24. október. Fyrst keyrði ég í Þorbjörn en náði ekki að mynda neinn fuglinn þar en byrtan á orkuverinu var flott og smellti ég því myndum af orkuverinu úr Þorbirni. Á heimleiðinni ákvað ég að keyra Vatnsleysuströndina til baka. Þá var sólin kominn ansi neðarlega en mér fannst birtan flott. Smellti myndum af þessum eyðibýlum og kirkjunni. Myndirnar eru svolítið dökkar en þannig sá ég þetta og held að þessar myndir sýni vel hvernig birtan var á þessum tíma. Alla vegna er ég sáttur við útkomuna. Setti fleiri myndir inní Íslandsmöppuna.
Skrifað af Rikki R. 17.10.2009 22:37Húsvíkingar fyrr og núSetti myndir inn í albúmið Húsvíkingar fyrr og nú. Þessar myndir eru einhverjar í öðrum albúmum. Eins og áður þá eru þetta myndir af Húsvíkingum, fólki sem búið hefur á Húsavík eða jafnvel að foreldri/ar þeirra eru Húsvíkingar eða eiga ættir að rekja þangað.
Skrifað af Rikki R. 17.10.2009 16:17Hreyfing, útiveraÉg ákvað að skoða hvað ég ætti að myndum þar sem hægt væri að tala um útiveru þ.e. leik og starf. Safnaði myndum saman sem gætu flokkast undir þetta og setti í eitt albúm. Hér sést fólk í hreyfingu sér til heilsubóta, leik og einnig starfi (útivinnu). Hér má sjá þrjár myndir úr þessu albúmi.
Skrifað af Rikki R. 15.10.2009 00:20UrtöndKomst í ágætis færi við urtendur í dag við Bakkatjörn á Seltjarnarnesi. Þetta er í fyrsta skipti sem ég kemst svona nálægt með myndavél og þær hinar rólegustu. Nokkrar myndir teknar af þeim. Eins og sumir vita þá er urtöndin minnsta öndin í Evrópu og þar af leiðandi minnsta öndin sem verpir á Íslandi. Að mínu mati er urtöndin með fallegustu öndum hér á landi, það gera litirnir, munstrið á síðunum, flekkirnir á bringunni o.s.frv. Hér eru tvær myndir af urtöndum, fleiri í albúmi.
Skrifað af Rikki R. 14.10.2009 10:00Bestu bátamyndirnar mínar?Eins og þið hafið tekið eftir þá tek ég myndir af öllu, ef svo má segja. Talsvert hefur verið um bátamyndir hjá mér enda á maður oft leið niður á bryggju og þá tekur maður oft myndir af bátunum þar. Sumum finnst nú myndir af bátur ekkert merkilegar ef þeir eru bundnir við bryggju. Hér má sjá tvær myndir sem mér finnst einna flottastar af mínum bátamyndum.
Skrifað af Rikki R. 13.10.2009 09:50KraniEr að gera smá tilraunir, vona að það verði ykkur ekki til trafala. Setti þessa mynd hér vegna þessa en þetta er mynd af einum krananum á stóru flotkvínni í Hafnarfirði. Fannst kraninn eitthvað svo stór og mikill þar sem ég stóð á bryggjunni fyrir neðan hann. Skrifað af Rikki R. 12.10.2009 22:55GaddavírÍ gegnum tíðina hef ég verið svolítið hrifinn af gaddavír, helst vel "veðruðum". Þegar ég skrapp til að mynda sólsetrið þá veitti ég athygli þessum gaddavír og gat ekki stillt mig og smellti nokkrum myndum. Hér má sjá eina.
Skrifað af Rikki R. 11.10.2009 21:38MærutítaAnnar flækingur, þessi er nokkuð sjaldgæfur en þetta er í fjórða skipti sem hann sést hér á landi. Þessi fugl heitir mærutíta og minnsta títan. Mærutítan er vaðfugl og honum svipar einnig til lóuþræls en er þó miklu minni. Þá eru fætur hans grængulir á lit. Slatti af myndum af henni í albúmi.
Skrifað af Rikki R. 11.10.2009 21:33VaðlatítaFlækingsfuglar steyma inn til landsins og hér er einn sem fannst á Bakkatjörn á Seltjarnarnesi. Þessi litli vaðfugl heitir vaðlatíta, er nokkuð líkur lóuþræl fyrir ykkur sem kannist við hann. Set hér inn tvær myndir sem eru nú ekki góðar en þær sýna hvaða fugl er á ferðinni. Á efri myndinni er vaðlatítan stærri fuglinn, sá vinstra megin. Sá minni er einnig flækingsfugl og heitir mærutíta. Ekki oft sem maður nær mynd af tveimur frekar sjaldgæfum flækingum hér á landi á einu og sömu myndina. Fleiri mynir af vaðlatítunni í albúmi.
Skrifað af Rikki R. 10.10.2009 23:17Fallegt sólseturÍ kvöld þá veittum við því athygli að himinninn var bleikur og fallegur. Ég smellti mér því út með vélina aftur og tók myndir. Litirnir eru flottir. Sumum finnast sólsetursmyndir vera frekar leiðinlegar en ég er ekki sömu skoðunar. Hér á landi fáum við oft falleg sólsetur og við eigum að mynda það sem oftast. Hér eru þrjár myndir frá því í kvöld sem ég tók niður við sjó móts við Hrafnistu. Fleiri myndir inni í Íslandsalbúminu.
Skrifað af Rikki R. 10.10.2009 23:12256 Kristrún II RE477 fer á sjóinnNú þegar veðrinu er að slota þá fara sjómenn að leggja á sjóinn. Kristún II fór í dag úr Reykjavíkurhöfn. Hvert förinni var heitið veit ég ekkert um en hvert svo sem það var þá vonandi gengur þeim allt í haginn.
Skrifað af Rikki R.
|
Málsháttur dagsins Svo flýgur hver fugl sem hann er fiðraður !clockhere Rikki R Nafn: Ríkarður RíkarðssonFarsími: 862 0591Tölvupóstfang: rikkirikka@gmail.comAfmælisdagur: 24. septemberHeimilisfang: Breiðvangi 3, 220 HafnarfjörðurStaðsetning: HafnarfjörðurHeimasími: 565 5191Um: Fæddur á Húsavík á því herrans ári 1961 og hef tekið ljósmyndir frá því ég var strákur. Aðaláhugamálið er að taka myndir af fuglum en þó mynda ég allt sem mig langar til að mynda eins og sjá má.Eldra efni
Tenglar
|
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is