Ljósmyndasíða Rikka

Fuglar, gamlir bátar, mannlíf, íslensk náttúra eins og ég sé hana

Færslur: 2010 Mars

29.03.2010 00:37

Slöngu-temjari

Var eitthvað að leika mér við Hafnarfjarðarhöfn í dag og sá þessa vatnsslöngu.  Meðan ég horfði og velti fyrir mér hvort þetta væri eitthvað myndefni kom smá vindur og feykti vatnsbuninni.  Þá ákvað ég að gera þessa tilraun.  Saklaust vatn í upphafi, svo fýkur það og svo aftur logn.
Hér er ein úr seríunni.


Vatnið bunar þarna í rólegheitum úr slöngunni.  Hafnarfjarðarhöfn 28. mars 2010

27.03.2010 19:47

Hafnarfjarðarhöfn 27. mars 2010

2714 Óli Gísla GK112landaði í dag í Hafnarfjarðarhöfn.  Aflinn var um þrjú tonn og meirihluti hans var steinbítur.  Óli Gísla hefur landað s.l. mánuð í Hafnarfirði og nú fer því líkast til að ljúka þar sem þeir eru að verða kvótalausir.
Á bryggjunni stóð 2199 Bibbi Jóns ÍS165 en ég held að ég halli ekki á neinn þegar ég lýsi hann sigurvegara í "Mottukeppninni".


2714 Óli Gísla GK 112 gengur frá eftir löndun.  Hafnarfjarðarhöfn 27. mars 2010


2199 Bibbi Jóns ÍS 165 á bryggjunni í Hafnarfirði.  Hafnarfjarðarhöfn 27. mars 2010

26.03.2010 09:46

Nokkrir fuglar

Þrátt fyrir að þessi sigling sem ég fór í hafi ekki snúist um fuglaskoðun þá er það nú svo að ég horfði þokkalega vel í kringum mig.  Mér telst til að ég hafi séð um 40 tegundir fugla án þess að hafa verið að leita eftir þeim.  Ekki þekki ég þá alla og eitthvað gengur mér nú erfiðlega að finna nöfn á þá.  Þið þarna fuglakarlar sem skoðið þetta mættuð því senda mér póst um þessa fugla.  Suma þekki ég en aðra ekki.  Set hér inn tvær myndir. 


Gray Kingbird.  Labadee Haiti, 09. mars 2010


Sefhæna.  Epcod, Disneyland Florida, 16. mars 2010


?. Epcod, Disneyland Florida, 16. mars 2010

22.03.2010 18:08

Hjólatúr á Cayman Island

Á Cayman Island fórum við hjónin m.a. í hjólatúr.  Kristjana Bergsdóttir, einn af frábærum ferðafélögum okkar, tók þessar myndir og sendi mér.  Ég leyfi mér að setja þær hérna inn.  Takk fyrir sendinguna Kristjana.




Á Cayman Island.  Myndir Kristjana Bergsdóttir

21.03.2010 01:20

Sigling 2010, myndir komnar inn

Við hjónin skruppum í smá ferðalag 05.-18. mars 2010.  Ferðin hófst í Orlanda Florida þar sem við dvöldum á Florida Hotel.  Þann 08. mars fórum við svo um borð í Freedom of the Seas, skemmtiferðaskip og sigldum kringum Kúbu.  Þ.e.a.s. fyrst fórum við í land á Labadee Haiti, því næst Ocho Rios Jamaika, svo Geoge Town Grand Gayman og loks Cosumel Mexikó.  Þaðan fórum við svo aftur til Orlando og vorum þrjá daga á Florida Hótel.  Þessi ferð var einu orði sagt frábær.  Við vorum 23 með fararstjóranum henni Lilju sem var eins og ungamamma, passaði uppá ungana sína allan tímann.  Þessi 23 manna hópur náði vel saman og það gerði ferðina ennþá betri.  Nú eru myndirnar komnar inn og fyrir þá sem ekki kunna þetta þá er best að smella á myndaalbúm efst á síðunni, þar koma nýjustu albúmin og smella bara á það sem þið viljið skoða.  Kæru ferðafélagar svo er endilega að kvitta fyrir sig svo ég sjái hverjir ykkar hafa skoðað.  Takk fyrir frábæra ferð.  Þrjár myndir af skipinu.  Gefið ykkur góðan tíma til að skoða þetta.


Freedom of the Seas, næst stærsta skemmtiferðaskip í heimi.


Göngugatan um borð í skipinu, verslanir og veitingastaðir um allt.


Surfing um borð í skipinu.  Karlinn lét aðra um þessa iðju.

19.03.2010 23:26

Fyrir fuglakarla

Fyrir fuglakarla þá verður sér mappa með þeim fuglamyndum sem ég tók.  Þær eru nú ekki margar en ná þremur tugum þó.  Tegurndirnar eru 12 að ég held.  Hér kemur einn.


Turkey Valture, gæti verið Kalkúnagammur á íslensku:-) Florida 07. mars 2010.

19.03.2010 23:14

Fyrir bátakarla

Fyrir ykkur bátakarla þá er lítið um báta nema þá helst skemmtibáta.  Það geta þó komið þokkalega skemmtilegar myndir út úr þeim.  Hér er ein sem mér finnst ágæt.


Einn á leið í loftið.  Myndin tekin við Cosumel við Mexikó, 15. mars 2010.

19.03.2010 22:59

Kominn heim

Þá erum við hjónin komin heim úr ferðalaginu.  Það styttist í að myndir komi inn úr þessari ferð okkar.  Hér er þó ein sem tekin var af mér, flottur kallinn, eða þannig.  Þetta var liturinn þegar ég fór út og ég held að ég sé enn hvítari núna.  Sem sagt fyrir ykkur sem hafið aðeins fylgst með þá var ég ekki hættur heldur bara í ferðalagi.  Meira síðar....................+/- 800 myndir:-)


Myndin er tekin við Florida Hotel 06. mars 2010.

  • 1

Málsháttur dagsins

Svo flýgur hver fugl sem hann er fiðraður !
clockhere

Rikki R

Nafn:

Ríkarður Ríkarðsson

Farsími:

862 0591

Afmælisdagur:

24. september

Heimilisfang:

Breiðvangi 3, 220 Hafnarfjörður

Staðsetning:

Hafnarfjörður

Heimasími:

565 5191

Um:

Fæddur á Húsavík á því herrans ári 1961 og hef tekið ljósmyndir frá því ég var strákur. Aðaláhugamálið er að taka myndir af fuglum en þó mynda ég allt sem mig langar til að mynda eins og sjá má.

Eldra efni

Tenglar

Flettingar í dag: 318
Gestir í dag: 8
Flettingar í gær: 1021
Gestir í gær: 27
Samtals flettingar: 311723
Samtals gestir: 29921
Tölur uppfærðar: 19.3.2024 06:32:05