Ljósmyndasíða Rikka

Fuglar, gamlir bátar, mannlíf, íslensk náttúra eins og ég sé hana

03.09.2010 22:03

Kópur

Kópur heitir hann.  Sigrún Hrönn, tengdamömmusystir, veitti mér eftirfarandi upplýsingar og spurning hvort Sigurþór hafi ekki lagt eitthvað til líka.  Alla vegna ætla ég að þakka þeim báðum fyrir upplýsingarnar.

Gísli í Tröð í Eyrarsveit smíðaði Kóp fyrir Níels Breiðfjörð í Sellátrum 1917, eik og fura 0,75 brl.  Sama ár fæddist Guðmundur Ó Bæringsson, tengdafaðir Sigrúnar Hrannar, en hann eignaðist síðar bátinn.  Bæring Guðmundsson, lærður bátasmiður gerði Kóp upp fyrir nokkrum árum og er eigandi bátsins núna.  Vélin í bátnum er 6-8 ha. Albin vél.

Til gamans má geta þess að Kópur hefur fylgt fjölskyldu Guðmundar í gegnum tíðina og var hann mikið notaður við Þorvaldsey á Breiðafirði.  Það þótti þægilegt að hafa bátinn við eyjarnar.  Dýrðar fley segir Sigrún Hrönn og krökkunum þótti ekki slæmt ef færi gafst og Sigurþór setti upp seglin í góðum byr.  Sigrún Hrönn getur þess að þetta sé skipið sem Sigurþór bauð henni í fyrstu dramasjóferðina um Breiðafjörðinn 1967.

Fleiri myndir af bátnum eru í nýju myndaalbúmi sem ég kalla Kópur.  Þar setti ég líka myndir sem Sigrún Hrönn sendi mér, vona að hún og þau séu sátt við það.


Kópur.  Stykkishólmur 04. ágúst 2010


Lensidælan.  Stykkishólmur 04. ágúst 2010

Málsháttur dagsins

Svo flýgur hver fugl sem hann er fiðraður !
clockhere

Rikki R

Nafn:

Ríkarður Ríkarðsson

Farsími:

862 0591

Afmælisdagur:

24. september

Heimilisfang:

Breiðvangi 3, 220 Hafnarfjörður

Staðsetning:

Hafnarfjörður

Heimasími:

565 5191

Um:

Fæddur á Húsavík á því herrans ári 1961 og hef tekið ljósmyndir frá því ég var strákur. Aðaláhugamálið er að taka myndir af fuglum en þó mynda ég allt sem mig langar til að mynda eins og sjá má.

Eldra efni

Tenglar

Flettingar í dag: 81
Gestir í dag: 8
Flettingar í gær: 1020
Gestir í gær: 107
Samtals flettingar: 333742
Samtals gestir: 31684
Tölur uppfærðar: 26.4.2024 05:42:45