Ljósmyndasíða Rikka

Fuglar, gamlir bátar, mannlíf, íslensk náttúra eins og ég sé hana

Færslur: 2014 Nóvember

09.11.2014 18:01

Gamlir bílar

Skrapp og kíkti á gamla bíla sem voru sýndir að Melabraut í Hafnarfirði.  Þarna voru fimm gamlir bílar til sýnis og jafnvel til sölu.  Þarna var Ford, tveir Willis jeppar, Wolseley og Lincoln.  Eigandi bílanna er Þorsteinn Baldursson.  Myndir af bílunum má sjá hér.


Ford V8, 1934


Wolseley 1938, Þorsteinn Baldursson egandinn er í bláu peysunni


Lincoln 12 strokka


Willis


Willis 1946

09.11.2014 17:52

Nýr Baldur

Nýr Baldur kom til Íslands fyrir þó nokkru síðan.  Nú bendir allt til að hann sé á leið til Stykkishólms einhvern næstu daga.  Held að hann hafi átt að fara í dag en síðast þegar ég vissi var hann ekki farinn.  Það er búið að vera að gera smá breytingar á bátnum, mála hann og allt að verða klárt til siglinga um Breiðafjörð.  Nú vona ég að menn fari ekki að lána Baldur til Vestmannaeyja eins og þeir hafa gert með reglulegu millibili.  Þessi Baldur tekur víst talsvert fleiri bíla en sá gamli.  Hér er mynd sem ég tók af Baldri 08.11.2014 í Reykjavíkurhöfn.


Baldur í Reykjavíkurhöfn, 08.11.2014

02.11.2014 20:56

Fyrirgefið

Ég ætla að byrja á að biðjar fyrirgefningar á því hvað ég hef verið slakur við að setja inn myndir og færslur hér.  En ástæðan er að ég hef tekið þá ákvörðun að setja minna af myndum inn á síðuna mína og einnig að setja minna inn á facebook síðuna mína.  Því er allt svo rólegt hjá mér.  En ég get ekki látið það gerast að ekkert sé á forsíðunni og set því inn eina mynd svona rétt til að sýna lit.


Þessi hefur byrst áður.
  • 1

Málsháttur dagsins

Svo flýgur hver fugl sem hann er fiðraður !
clockhere

Rikki R

Nafn:

Ríkarður Ríkarðsson

Farsími:

862 0591

Afmælisdagur:

24. september

Heimilisfang:

Breiðvangi 3, 220 Hafnarfjörður

Staðsetning:

Hafnarfjörður

Heimasími:

565 5191

Um:

Fæddur á Húsavík á því herrans ári 1961 og hef tekið ljósmyndir frá því ég var strákur. Aðaláhugamálið er að taka myndir af fuglum en þó mynda ég allt sem mig langar til að mynda eins og sjá má.

Eldra efni

Tenglar

Flettingar í dag: 131
Gestir í dag: 3
Flettingar í gær: 1021
Gestir í gær: 27
Samtals flettingar: 311536
Samtals gestir: 29916
Tölur uppfærðar: 19.3.2024 03:08:57