Ljósmyndasíða Rikka Fuglar, gamlir bátar, mannlíf, íslensk náttúra eins og ég sé hana |
|
Færslur: 2010 Desember31.12.2010 01:39Áramótakveðjur 2010-2011Kæru vinir, kunningjar og velunnarar síðunnar. Nú dregur að áramótum og ég ætla að verða í fyrrafallinu með áramótakveðjuna núna. Gef mér líklega ekki tíma til þess að fara hér inn fyrr en á nýju ári. Ég óska ykkur öllum gleðilegs nýs árs og vona að þið hafið það gott á nýju ári. Skrifað af Rikki R. 31.12.2010 01:205957 Lára SH 73Lyfti myndavélinni um jólin og náði m.a. myndum af Láru SH 73. Ég ræddi við eiganda Láru, Ásgeir Árnason og sendi hann mér eftirfarandi upplýsingar: Við pabbi, Árni Sigurjónsson, hófum smíði Lárunnar í júlí 1977 og sjósettum hana í júní 1978. Báturinn var smíðaður í frístundum á kvöldin og um helgar í bílskúrnum á Skúlagötu 1 Stykkishólmi. Vélin var 18 hö Sabb til að byrja með og síðan skiptum við um vél 1983 í BMW 30 hö. Engar breytingar hafa verið gerðar á bátnum. Engar lagfæringar nema eðlilegt viðhald. Skrifað af Rikki R. 22.12.2010 08:19Gleðileg jólJólin 2010 Hver man ekki eftir að hafa séð jólakort þar sem stór jólastjarna skein á himni og vísaði vitringunum veginn til frelsarans. Þessi mynd mynnir mig svolítið á þessi gömlu jólakort með stjörnunni góðu. Kyrrðin, stjörnubjartur himinn, gömul hús (þó ekki fjárhús) og þetta skæra ljós á himni. Vona að þið finnið þessi áhrif líka þegar þið skoðið þessa mynd. Skrifað af Rikki R. 14.12.2010 00:57ViðbæturEr byrjaður að færa inn endurvinnslusöguna af Kára eins og ég upplifi hana. Sagan er myndskreytt og vona ég að þið hafið gaman af, það hef ég alla vegna. Þarna er áttunda umfarið komið á sinn stað og afturhlutinn farinn að taka á sig bátsmynd.
Þá er einnig kominn inn sagan af Sílinu í Hafnarfirði. Þar segir Björn smiður og eigandi frá bátnum og af hverju hann smíðaði hann.
Skrifað af Rikki R. 08.12.2010 21:36Var að bæta við myndumVar að bæta inn myndum í þrjú myndaalbúm, Kári og Flóabáturinn Konráð BA152. Að endingu er það Sílið í Hafnarfirði. Af Sílinu er helst að frétta að hann er kominn hús og eitthvað verið að betrumbæta hann. Björn smiður kvaðst hafa gert smá mistök í smíðinni, böndin í bátnum væru of veigalítil og ætlaði hann að skipta þeim út og þá ætlaði hann að hækka borðstokkinn. Björn vildi meina að það yrði nokkur útlistbreyting á bátnum. Ætla að fylgjast með þessu eftir bestu getu og svo þegar báturinn fer á sjóinn í vor/sumar þá festi ég hann á kubbinn aftur. Fæ frásögn eiganda bátsins vonandi fljótlega, enda væri gaman að geta fylgst með bátnum næstu árin/áratugina og uppfæra alltaf söguna.
Það er helst að frétta af endusmíði Kára að Ólafur er kominn í áttundu umferð. Á myndin hér að neðan er það sjöundu umferð sem er komin. Þegar ég spurði Ólaf hvort hann þyrfti að skipta um öll borðin kvaðst hann ekki viss. Það eru 11 umferðir, þið fyrirgefið en ég þekki kanski ekki réttu orðin í þessu. Ég sá að talsvert er skemmt í þeirri 10 og gæti verið að það slippi að skipta um hluta en þar sem ég er ekki kunnáttumaður í viðgerðum á bátum þá verður þetta að koma í ljós síðar. Ef vel er skoðað má sjá að nákvæmnin er í fyrirrúmi, ekki að sjá að skekkja sé í bátnum.
Nýjar, gamlar myndir komnar af Konráð BA 152 sem ég fékk sendar frá Torfa Haraldssyni sem hann tók sjálfur. Aðra myndina var ég búinn að fá en þar hafði verið klippt af henni svo Konráð sást ekki allur. Hin myndin sem hér má sjá er tekin á sama tíma nema það er fjara. Á myndinni sést Konráð inni í Grýluvogi þar sem hann var rifinn niður. Ekki mikið eftir af síðunum á honum þarna en stýrishúsið enn á sínum stað.
Skrifað af Rikki R. 06.12.2010 23:46FiðrildiLitir fiðrilda eru margvíslegir. Mér fannst því við hæfi að setja inn nokkrar myndir sem ég hef tekið af litríkum fiðrildum hér heima og erlendis, því nú er sá tíma þegar menn hengja upp litrík ljós og lýsa upp skamdegið. Ég geri það líka en hef líka gaman að skoða þessi litríku dýr. Einstaka sinnum berast hingað til lands litrík fiðrildi eins og þistilfiðrildi og aðmírálsfiðrildi. Ég var eitthvað að skoða myndirnar mínar og sá að ég átti eitthvað af myndum af fiðrildum. Ég safnaði því þessum myndum saman í eitt myndaalbúm hér á síðunni. Set inn tvö fiðrildanna minna hér, en fleiri eru í myndaalbúmi, mun svo setja inn nöfn þeirra og jafnvel einhverjar upplýsingar um þau. Vonandi hafiði gaman af að skoða.
Skrifað af Rikki R.
|
Málsháttur dagsins Svo flýgur hver fugl sem hann er fiðraður !clockhere Rikki R Nafn: Ríkarður RíkarðssonFarsími: 862 0591Tölvupóstfang: rikkirikka@gmail.comAfmælisdagur: 24. septemberHeimilisfang: Breiðvangi 3, 220 HafnarfjörðurStaðsetning: HafnarfjörðurHeimasími: 565 5191Um: Fæddur á Húsavík á því herrans ári 1961 og hef tekið ljósmyndir frá því ég var strákur. Aðaláhugamálið er að taka myndir af fuglum en þó mynda ég allt sem mig langar til að mynda eins og sjá má.Eldra efni
Tenglar
|
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is