Ljósmyndasíða Rikka

Fuglar, gamlir bátar, mannlíf, íslensk náttúra eins og ég sé hana

Færslur: 2012 Júní

12.06.2012 21:51

Þór vs Ægir

Varð að mynda Þór þar sem hann stóð við bryggju í Reykjavíkurhöfn.  Þór er stór miðað við Ægi.


Þór og Ægir, 10. júní 2012

12.06.2012 21:43

Úr ýmsum áttum

Í fallegur veðri skrapp ég og kíkti á Reykjavíkurhöfn og nágrenni.  Tók eitthvað af myndum og hér má sjá smá sýnishorn af þeim.


Horft yfir Reykjavíkurhöfn, 10. júní 2012


Varðskipin gæta Hörpunnar, 10. júní 2012


Stakkanesið við bryggju (gulur), 10. júní 2012


Viðeyjarstofa, 10. júní 2012

07.06.2012 21:32

5718 Svanur RE 77

5718 Svanur RE 77 ex Svanur BA 74
Smíðaður í Hafnarfirði 1976 af Jóhanni L Gíslasyni.  Eik og fura.  4,17 brl. 24 ha. Marna vél.
Eigandi Þórður Óskarsson og Einar Óskarsson, Firði, Múlahreppi frá 20. maí 1976.  Seldur 20. janúar 1995 Inga Dóra Einarssyni, Kópavogi, Pétri Gíslasyni, Grindavík, Guðmundi Gíslasyni og Einari Ingasyni, Reykjavík.  Báturinn heitir Svanur RE 77 og er skráður í Reykjavík 1997.

.......................meira síðar

Upplýsingar:
Íslensk skip, bátar, bók 1, bls. 76, Svanur BA 74.


5718 Svanur RE 77, 13. mars 2012

05.06.2012 23:26

Náttúran að verki

Ég keyrði út á Hlíðsnes í dag og varð vitni af því hvernig náttúruöflin haga sér og geta breytt gangi lífsins ef svo má segja.  Það var mikið flóð, svo mikið að allar graseyrar voru á kafi og flæddi undir veginn.  Það var enn að flæða að og ég sá kríu liggja á eggi þarna á túninu sem var að flæða.  Ég stoppaði við hliðina á henni, nokkuð nálægt og tók nokkrar myndir af þessu sjónarspili sem ég vissi að von væri á.  Set hér inn nokkrar myndir eins og ég sá þetta gerast.


Hér situr krían á, kl. 18:42.57

Hér sést krían þar sem hún liggur á hreiðrinu sínu.  Ekkert sem bendir til að flóð sé í vændum.  Svo fer þetta að gerast


Sjórinn nálgast, kl. 18:44.46


Virðist átta sig á hættunni, kl. 18:45.28


Stendur upp, farið að blotna undir henni, kl. 18:45.38


Talsverður sjór kominn í hreiðrið, kl. 18:46.48


Farin af hreiðrinu, eitt egg í og það nánast á kafi, kl. 18:46.50


Snýr sér við og kíkir á hreiðrið, kl. 18:47.11


Krían farin, eggið alveg að fara í kaf, kl. 18:48.02


Sést eggið alveg að fara í kaf, kl. 18:49.22


Eggið komið á kaf í sjó, sést fyrir miðri mynd, kl. 18:49.50


Eggið á kafi, kl. 18:49.50

Þessi atburðarás gerðist á um 8 mínútum.  Þessi kría þarf að gera aðra tilraun og þá vonandi velur hún sér betri varpstað.  En svona er nátturan hörð og getur haft áhrif á lífið eins og ég sagði áðan.  Ef þið viljið sjá þetta betur þá getiði smellt á myndina efst og skoðað stærri myndir af þessu.

04.06.2012 22:50

Farmall Cub

Á ferð minni til Grindavíkur í gær, 03. júní 2012, rak ég augun í nokkrar dráttarvélar.  Tvær úr þeim hópi vöktu áhuga minn og myndaði ég þær tvær eða þá tvo en þetta voru tveir Farmall Cub.  Glæsilegir.  Ég er að hugsa um að leyfa ykkur að njóta þess að sjá þá þó ekki væri nema á myndum.  Fleiri myndir ef þið smellið á mynd.


Farmall Cub, Grindavík 03. júní 2012


Farmall Cub með slátturvél, Grindavík 03. júní 2012

  • 1

Málsháttur dagsins

Svo flýgur hver fugl sem hann er fiðraður !
clockhere

Rikki R

Nafn:

Ríkarður Ríkarðsson

Farsími:

862 0591

Afmælisdagur:

24. september

Heimilisfang:

Breiðvangi 3, 220 Hafnarfjörður

Staðsetning:

Hafnarfjörður

Heimasími:

565 5191

Um:

Fæddur á Húsavík á því herrans ári 1961 og hef tekið ljósmyndir frá því ég var strákur. Aðaláhugamálið er að taka myndir af fuglum en þó mynda ég allt sem mig langar til að mynda eins og sjá má.

Eldra efni

Tenglar

Flettingar í dag: 318
Gestir í dag: 8
Flettingar í gær: 1021
Gestir í gær: 27
Samtals flettingar: 311723
Samtals gestir: 29921
Tölur uppfærðar: 19.3.2024 06:32:05