Ég skrapp að Hlíð á Álftanesi til að mynda einn bát sem ég hafði heyrt af að væri þar. Ég myndaði bátinn en hef enga hugmynd um hvaða bátur þetta er. Þessi er spíðaður úr krossviði sýnist mér. Það var verið að mála hann, borðstokkarnir voru grænir en greinilegt að það er verið að mála þá hvíta svo þetta falli allt saman, hús og bátur.
Ef einhver hefur upplýsingar handa mér sem geta hjálpað mér að finna út hvaða bátur þetta er endilega senda mér línu.
Bátur við Hlíð, Álftanesi. 21. september 2013