Ekki hef ég nú myndað mikið síðustu daga en eitthvað er samt til af myndum. Ég kíkti um daginn til að mynda sólsetur. Hér má sjá tvær myndir, fleiri í Íslandsmöppunni.
Fæddur á Húsavík á því herrans ári 1961 og hef tekið ljósmyndir frá því ég var strákur. Aðaláhugamálið er að taka myndir af fuglum en þó mynda ég allt sem mig langar til að mynda eins og sjá má.