Ljósmyndasíða Rikka

Fuglar, gamlir bátar, mannlíf, íslensk náttúra eins og ég sé hana

Færslur: 2010 Febrúar

24.02.2010 00:33

Reykjavíkurhöfn og Hafnarfjarðarhöfn

Tvo síðustu daga hef ég farið með vélina og leitað fanga.  1610 Ísleifur VE 63 var í Reykjavíkurhöfn þann 22. febrúar.  Þá tók ég myndir í Hafnarfjarðarhöfn þann 23. febrúar.  Afraksturinn er í albúminu skip og bátar 2010.


1610 Ísleifur VE 63.  Reykjavíkurhöfn 22. febrúar 2010


Hafnarfjarðarhöfn 23. febrúar 2010

24.02.2010 00:24

Rex verður Gandí VE 171

Í stóru flotkvínni í Hafnarfirði rak ég augun í togara.  Eitthvað fannst mér ég ætti að kannast við hann en var ekki viss.  Sá að togarinn var nýmálaður og búið að mála á hann nafnið.  Ég smellti af myndum af nafninu og skipaskrárnúmerinu.  2702 Gandí VE 171.  Þegar ég skoðaði myndina heima sá ég að ofan við nafnið stendur Rex HF24.  Það er sem sagt búið að setja nýja nafnið á Rex.


Gandí VE 171 ex Rex HF 24  Hafnarfjörður 23. febrúar 2010

22.02.2010 11:44

Bátar í Stykkishólmi

Setti inn nokkrar myndir af bátum sem ég tók í Stykkishólmi.  Þetta bara gert fyrir Haffa að sjálfsögðu:-)  Var að hugsa um að setja inn getraun þar sem ég hef veri að sjá menn þekkja báta nánast á engu.  Hér fyrir neðan er myndin sem ég ætlaði að setja inn en fannst þetta svo vera full auðvelt fyrir ykkur bátakarlana svo ég læt þetta bara koma.  Fleiri myndir inni í skip og bátar 2010 albúminu.


Gullhólmi SH 201.  Stykkishólmur 20. febrúar 2010


Knörr SH 10.  Stykkishólmur 21. febrúar 2010


Kári SH 78.  Stykkishólmur 21. febrúar 2010

22.02.2010 10:56

Annasöm helgi 19-21. febrúar 2010

Var í Stykkishólmi um helgina.  Í raun nokkuð erilsöm helgi hjá mér sem byrjaði á því að við ókum fram á umferðaróhapp á leið í Hólminn.  Við vorum með þeim fyrstu sem komum að þessu og gat ég ekki annað en veitt aðstoð á vettvangi.  Tvær fluttar á slysadeild og vona ég að meiðsl þeirra hafi verið minniháttar og þær nái sér fljótt.  Þegar ég svo var að taka myndir á sunnudagsmorguninn, m.a. þessar tvær neðri hér, þá var ég með þeim fyrstu sem kom á brunavettvang.  Ég tók myndir en ætla að sjá til hvort ég set myndirnar inn.  Vona að sá sem var inn í húsinu nái sér að fullu en samkvæmt blöðunum þá er honum haldið sofandi.
Sem sagt viðburðarrík helgi hjá mér.


Stykkishólmskirkja, 20. febrúar 2010


Bjarnarhafnarfjall, 21. febrúar 2010


Í Stykkishólmi, 21. febrúar 2010

14.02.2010 00:49

Safnakvöld

Fjölskyldan skrapp í Sögusafnið í Perlunni á safnakvöldinu þann 12. febrúar 2010.  Ég hafði aldrei farið á þessa sýningu áður.  Ég get ekki sagt annað en að þetta sé eitt það flottasta safn sem ég hef séð, ef ekki það flottasta.  Fígúrurnar eru mjög raunverulegar.  Þá voru inn á milli lifandi fólk í víkingabúningum og stóð það eins og styttur.  Þegar fólk átti síst von á þá stukku þeir fram öskrandi og þvílík óp sem heyrðust.
Setti nokkrar myndir í albúm sem ég tók þarna svo þið getið séð.  Fyrir ykkur sem ekki hafið farið mæli ég með þessu.  Það tók tvö ár fyrir eigandann að koma þessu á legg og þeir voru 6 saman sem unnu að þessu.  Það  tók 3 vikur að setja hárið í hvern haus svo vinnan var mikil.  Elín Hanna fékk að prófa ein herklæði og sagði hún þetta vera þungt.  Hún stökk ekki hæð sína í loft upp í fullum herklæðum eins og sumir gerðu um árið.


Víkingar tóku á móti okkur utan við Perluna.  Safnadagar 12. febrúar 2010


Hér eru menn höggnir.  Safnadagar 12. febrúar 2010


Tveir tilbúnir að stökkva fram rétt eftir að komið var inn.  Safnadagar 12. febrúar 2010


Elín Hanna í öllum herklæðum.  Safnadagar 12. febrúar 2010

14.02.2010 00:21

Skip og bátar 2010

Setti inn nýtt albúm, skip og bátar 2010.  Ég fór í smá ferð s.l. miðvikudag 10. febrúar og kíkti á Reykjavíkurhöfn. Hér er afraksturinn frá þeirri ferð.  Fyrstu myndirnar eru komnar inn í albúmið.


2449. Steinunn SF 10 og 2749. Helga RE 49.  Reykjavíkurhöfn 10. febrúar 2010


2541. Ásgrímur S. Björnsson.  Reykjavíkurhöfn 10. febrúar 2010


2774. Kristrún RE177 og 2184. Vigri RE71.  Reykjavíkurhöfn 10. febrúar 2010

11.02.2010 21:08

5079 - Fleygur ÞH 301

Að undanförnu hef ég verið að safna upplýsingum um 5079 Fleyg ÞH 301.  Setti inn skrá með þessum upplýsingum og ef þið smellið hér \files\5079 Fleygur ÞH301.docx þá opnast skráin um Fleyg ÞH301.


5079. Svanur GK240.  Myndin líklega tekin á tímabilinu 1963-1965. Mynd Ásbjörn Eggertsson


Fleygur ÞH301 þegar hann var gerður út af Eiríki Marteinssyni.  Mynd Hafþór Hreiðarsson


Svona leit Fleygur ÞH301 út árið 2006 í Hafnarfirði.  Nú er verið að vinna í að gera hann upp.




02.02.2010 22:26

Ung og sæt, nú bara sæt

Eins og glöggir hafa kanski séð þá er hún Magga frænka mín alltaf að biðja um gamlar myndir.  Ég held að ég slái til og setji hér inn mynd af "ungri" lítilli frænku minni sem átti afmæli í janúar s.l. og varð ....................................................................................... gömul.  Frænka það er bannað að senda mér sms vegna þessarar myndar en þú mátt segja allt sem þú vilt hér á síðuna.  Ég get alltaf eytt því út er mér líkar það ekki, haahahahhahahhah.  Til hamingju með daginn um daginn:-)
Þarna á myndinni er frænka mín ung og sæt, nú í dag er hún baaaaaara sæt:-)  MGÞ ég elska þig líka.

  • 1

Málsháttur dagsins

Svo flýgur hver fugl sem hann er fiðraður !
clockhere

Rikki R

Nafn:

Ríkarður Ríkarðsson

Farsími:

862 0591

Afmælisdagur:

24. september

Heimilisfang:

Breiðvangi 3, 220 Hafnarfjörður

Staðsetning:

Hafnarfjörður

Heimasími:

565 5191

Um:

Fæddur á Húsavík á því herrans ári 1961 og hef tekið ljósmyndir frá því ég var strákur. Aðaláhugamálið er að taka myndir af fuglum en þó mynda ég allt sem mig langar til að mynda eins og sjá má.

Eldra efni

Tenglar

Flettingar í dag: 4724
Gestir í dag: 45
Flettingar í gær: 1020
Gestir í gær: 107
Samtals flettingar: 338385
Samtals gestir: 31721
Tölur uppfærðar: 26.4.2024 16:48:37