Ljósmyndasíða Rikka

Fuglar, gamlir bátar, mannlíf, íslensk náttúra eins og ég sé hana

Færslur: 2011 Maí

31.05.2011 00:44

Kvöldsól

Það er gaman að glíma við sólina.  Stundum gengur manni ekki of vel að taka myndir móti sól en ég náði þessari.  Þetta er einhver rússi að ég held, var ekkert að taka niður nafnið á honum.  Seinni myndin er tekin úti á Álftanesi.  Vona að þið hafið gaman af þessu.


Þessi sólaði sig í kvöldsólinni í Hafnarfjarðarhöfninni, 30. maí 2011


Þessi er svo úti á Álftanesi.  30. maí 2011

31.05.2011 00:36

Hafnarfjarðarhöfn 30. maí 2011

Þessir tveir voru að leika sér í Hafnarfjarðarhöfninni í gærkveldi.  Skiptust á að vera á þotunni.  Þá var hópur stráka að æfa fyrir sjómannadaginn og var takturinn nokkuð góður en sýndist úthaldið ekki uppá það besta.  Þeir hafa nokkra daga ennþá til að ná þessu strákarnir.


Á fullri ferð í Hafnarfjarðarhöfn, 30. maí 2011


Þessi tók svo við, 30. maí 2011


Þessir tóku æfingu í kappróðri fyrir sjómannadaginn

25.05.2011 23:08

Löndun í Grindavík

Þessi mynd er tekin í Grindavík þann 22. maí 2011.  Mikið líf á bryggjunni þarna, löndun úr þremur bátum á sama tíma, fólk að fylgjast með og sílamáfarnir í tugatali að næla sér í bita.  Þetta er lífið. 


2708 Auður Vésteins GK 88

25.05.2011 21:23

Tónleikar til styrktar orgelsjóði Stykkishólmskirkju

Ég skrapp á tónleika í Guðríðarkirkju, Grafarholti þann 23. maí s.l.  Þessir tónleikar voru til styrktar orgelsjóði Stykkishólmskirkju en það er verið að kaupa pípuorgel og kemur það í haust og vonast er til að það verði komið upp fyrir jól.  Það má segja að þema þessara tónleika hafi verið að það hafi einhver í hverjum hópi tengst Stykkishólmi.  Tónleikarnir voru mjög góðir og fjölbreyttir.  Hér má sjá nokkrar myndir af hluta þeirra sem komu fram og svo er mikið af myndum í albúmi.  Smellið á myndirnar og þið sjáið myndaalbúmið.


Breiðfirðingakórinn


Friðrik stjórnar Karlakór Reykjavíkur


Erna Rut og Kjartan


Tríó Delizie Italiane

23.05.2011 17:59

Samanburður

Hér kemur smá samanburður.  Þetta eru myndir frá því askan var að steypast yfir höfuðborgarsvæðið og svo sama sjónarhorn í dag.  Engin aska er hér í dag en skítakuldi í staðinn.


Svona var þetta í gærkveldi, 22. maí 2011


Svona var þetta áðan, nú er hægt að sjá landslagið eins og það er, 22. maí 2011


Í gær, 22. maí 2011


Í dag.  Þarna sér í fjall í fjarska. 23. maí 2011

23.05.2011 00:25

Rauðbrystingar

Í öskuferðinni minni í dag og kvöld vakti furðu mína mikið magn rauðbrystinga sem ég sá.  Í Villingaholtshreppnum sá ég rauðbrystingana koma upp úr fjörunni og setjast á tún og fínna sér þar eitthvað að borða.  Þegar ég keyrði svo út á Hlíðsnes þá flaug stór hópur rauðbrystinga upp og náði ég að smella af þegar þeir báru í sólsetrið.  Ég ætla nú ekkert að geta um fjölda fugla en það eina sem ég segi er að ég gæti trúað að hóparnir hafi  verið álíka stórir.


Nokkrir af rauðbrystingunum með öskuskýið bak við sig, Villingaholtshreppur 22. maí 2011


Rauðbrystingar á Hlíðsnesi, 22. maí 2011

23.05.2011 00:04

Aska í Hafnarfirði og víðar

Set hér inn nokkrar myndir sem ég tók núna fyrr í kvöld.  Þarna má sjá öskuna nálgast Hafnarfjörðinn.  Við settum út hvítan disk rétt fyrir kl. 19:00 í kvöld og um klukkustund síðar mátti sjá að aska var komin á diskinn.  Ég tók nokkrar myndir út af svölunum hjá mér af öskuskýinu og þegar sólin fór að skína þá brá ég mér út á Garðaholt. 
Nú þegar ég sit og pikka þetta inn þá er öskuskýið komið yfir höfuðborgarsvæðið.  Bílar hér á planinu við Breiðvang eru orðnir gráir.  Allir gluggar eru lokaðir en samt finnum við fyrir ösku sem laumast inn og sest í gluggasillurnar.  Þetta verður náttúrulega bara fjör, eða hvað?


Tekin til austurs af svölunum heima hjá mér, öskuskýið á leiðinni.  22. maí 2011


Skömmu síðar skein sólin en bakatil mátti sjá öskuskýið.  22. maí 2011


Á sama tíma leit þetta svona út í vesturátt.  22. maí 2011


Öskuskýið lá yfir Reykjanesinu.  Það grillir í Keili.  22. maí 2011


Esjan í sortanum.  22. maí 2011


Keilir í öskustónni.  22. maí 2011

22.05.2011 22:28

Brynnið skeppnunum

Ég heyrði í útvarpinu að almannavarnir voru að leggja til að bændur hugsuðu vel um skeppnurnar sínar og gæfu þeim vatn að drekka.  Þessi hestur hefur heyrt þessar fréttir og bjargaði sér sjálfur.  Ekki fleiri orð um það.


Bjargaði sér sjálfur. 22. maí 2011

22.05.2011 21:50

HeimSendirinn

Eins og flestir vita þá var spáð heimsendi í gær, 21. maí 2011 kl. 16:00.  Ofan á þetta kom svo þetta eldgos í Grímsvötnum, Vatnajökli.  Konan mín kom með skýringu á þessu öllu saman, HeimsEndirinn væri ekki heimsendir heldur væri þetta HeimSendir með gosi = sendill með kemur með pizzuna og gosið til þín.  Ekki er það neinn heimsendir.
Ég skrapp aðeins austur á bóginn í dag.  Sá strax að vindar voru norðaustlægir og því sá ég ekki gosmökkinn fyrir ösku.  Ég ákvað því að kíkja eftir fuglum sem nóg var af en þeir gáfu lítið færi á sér.  Hins vegar þá var ég mikið að hugsa um þetta öskuský eða öskubakkann eins og ég vildi kalla þetta.  Svona sá ég þetta.  Nú er svo þessi öskubakki kominn að höfuðborgarsvæðinu, myndir koma síðar.


Myndin tekin á Stokkseyri, öskubakkinn sést bak við hesthúsið og til hægri.  22. maí 2011


Hestar á túni, öskuskýið eða bakkinn er þarna á bakið.  Sér ekki til himins.  22. maí 2011


Öskuskýið.  22. maí 2011

16.05.2011 21:26

Svalan komin á flot

Fékk þessar myndir sendar í gær og sýna þær að Jón Ragnar Daðason er búinn að sjósetja Svöluna sína.  Hann hefur unnið að lagfæringum á henni.  Talsvert er af myndum af Svölunni á meðan á lagfæringum stóð.  Ef þið smellið á myndirnar þá kemur upp það sem komið er af sögu Svölunnar og þá má smell á þær myndir og lenda þá inn í myndabankanum.  Skilst þetta ekki örugglega?
Til hamingju með þennan áfanga Jón Ragnar.  Er það Sumarliði næst?


Jón Ragnar Daðason skipstjóri á Svölunni


Svalan á siglingu, tekur sig vel út.

15.05.2011 23:47

Regnbogi 15. maí 2011

Þegar ég var á Álftanesinu í kvöld þá kom smá rigning og þvílíkur regnbogi að ég hef bara ekki séð annað eins.  Ég hins vegar hafði bara tekið stóru linsuna mína svo ég gat ekki náð mynda af öllum regnboganum en hann var með ótrúlega sterka liti.  Ég smellti nokkrum römmum og hér má sjá tvær af þessum myndum sem ég tók.



15.05.2011 23:41

Fuglar á Álftanesi

Kíkti á Álftanesið í morgun og svo aftur í kvöld.  Þessi álftarkarl ver Kasthúsatjörnina og fylgdist vel með mér þó hann léti sem ekkert væri.  Þá sá ég eina austræna margæs, ekki sú sama og um daginn.  Þessi er aðeins dekkri á hliðunum og niður á lærin.  Þegar ég sá hana fyrst um kvöldamarleitið þá var ég myndavélarlaus en skrapp heim og sótti myndavélina og náði að mynda margæsina.


Álft við Kasthúsatjörn á Álftanesi 15. maí 2011


Austræn margæs á Hlíðsnesi 15. maí 2011

12.05.2011 08:32

Fleiri fleytur

Hér eru myndir af fleiri fleytum.  Tvær litlar og tvær stórar fleytur.  Það eru fleiri myndir inná skipa og bátar 2011 fyrir ykkur sem hafið áhuga.


6885 Frakkur á innleið til Hafnarfjarðar 05. maí 2011


5962 Vala HF 5


Höfrungur III og Örfirisey.

11.05.2011 01:01

YC84, sílamáfur

Rak augun í þennan merkta sílamáf á bryggjunni í Hafnarfirði þann 05. maí s.l.  Í ljós kom að hann var merktur fullorðinn í Hvaleyrarlóni þann 11. júlí 2008.  Fuglinn hafði ekki sést aftur fyrr en núna, svo vitað sé.  Fékk reyndar ekki upplýsinar um merkingarmann en finnst líklegt að það hafi verið Gunnar Þór Hallgrímsson og líklega einhver með honum.
Þið sem sjáið merkta fugla, endilega reynið að lesa á merkin og láta vita af þeim hjá t.d. Náttúrufræðistofnun, þá getiði örugglega látið einhvern fuglaáhugamann vita og hann kemur þá upplýsingunum til skila.  Merki sílamáfa er tiltölulega auðlesin en það þarf kíki eða eitthvað sambærilegt áhald.


YC48 á bryggjunni í Hafnarfirði 05. maí 2011

11.05.2011 00:39

Trollið gert klárt

Þessi var að gera rækjutrollið klárt fyrir Jakob Einars á bryggjunni í Hafnarfirði.  Hann kunni réttu handbrögðin við þetta.  Mér láðist að spurja um nafn en hann sagðist hafa verið á sjó frá 15 ára aldri þ.e. fastur á sjó.


Trollið miðjað.


Í sínum heimi að miðja trollið.


Nóg eftir.  Hafnarfjörður 09. maí 2011

Málsháttur dagsins

Svo flýgur hver fugl sem hann er fiðraður !
clockhere

Rikki R

Nafn:

Ríkarður Ríkarðsson

Farsími:

862 0591

Afmælisdagur:

24. september

Heimilisfang:

Breiðvangi 3, 220 Hafnarfjörður

Staðsetning:

Hafnarfjörður

Heimasími:

565 5191

Um:

Fæddur á Húsavík á því herrans ári 1961 og hef tekið ljósmyndir frá því ég var strákur. Aðaláhugamálið er að taka myndir af fuglum en þó mynda ég allt sem mig langar til að mynda eins og sjá má.

Eldra efni

Tenglar

Flettingar í dag: 616
Gestir í dag: 125
Flettingar í gær: 570
Gestir í gær: 76
Samtals flettingar: 325860
Samtals gestir: 31253
Tölur uppfærðar: 19.4.2024 17:03:50