Skrapp í dag og tók nokkrar myndir af sveppum og ýmsu öðru. Mikið er af sveppum og því ákvað ég að gera tilraun að ná myndum af nokkrum tegundum. Afraksturinn má sjá í blómamyndunum.
Þá náði ég nokkrum myndum af sel við Skógtjörn á Álftanesi. Hann var nokkuð rólegur og náði ég að ganga alveg í flæðarmálið og sat hann hinn rólegasti meðan ég myndaði hann. Hefði þó viljað hafa betri birtu en það er ekki hægt að stjórna því. Selinn og fleiri myndir má sjá í Stór-Hafnarfjarðarmöppunni.
Þá náði ég mynd af smyrli og er hún í Fuglamöppunni.