Var í Stykkishólmi um helgina. Í raun nokkuð erilsöm helgi hjá mér sem byrjaði á því að við ókum fram á umferðaróhapp á leið í Hólminn. Við vorum með þeim fyrstu sem komum að þessu og gat ég ekki annað en veitt aðstoð á vettvangi. Tvær fluttar á slysadeild og vona ég að meiðsl þeirra hafi verið minniháttar og þær nái sér fljótt. Þegar ég svo var að taka myndir á sunnudagsmorguninn, m.a. þessar tvær neðri hér, þá var ég með þeim fyrstu sem kom á brunavettvang. Ég tók myndir en ætla að sjá til hvort ég set myndirnar inn. Vona að sá sem var inn í húsinu nái sér að fullu en samkvæmt blöðunum þá er honum haldið sofandi.
Sem sagt viðburðarrík helgi hjá mér.
Stykkishólmskirkja, 20. febrúar 2010
Bjarnarhafnarfjall, 21. febrúar 2010
Í Stykkishólmi, 21. febrúar 2010