Ljósmyndasíða Rikka Fuglar, gamlir bátar, mannlíf, íslensk náttúra eins og ég sé hana |
|
23.05.2010 22:02BakkatjörnVeitt því athygli í dag að álftarparið á Bakkatjörn er búið að unga út.
Skrifað af Rikki R. 21.05.2010 10:19Fuglasumar eða hvað?Farfuglarnir okkar eru allir komnir til landsins og varp er hafið hjá sumum þeirra. Sumarið er í fullum gangi. Nú er bara að sjá hvernig varpið gengur hjá fuglunum í ár, hvort þeir komi ungunum sínum á flug en það hefur ekki gengið allt of vel síðustu árin. Sumum tegundum hefur gengið verr en öðrum. Hér að neðan eru fjórar fuglategundir, kría, rita, sandlóa og stokkönd með ungana sína. Vonandi verður þetta algeng sjón í sumar. Það fer þó eftir ætinu og spurning hvort eldgosið hafi einhver áhrif, gæti gert það alla vegna á hluta landsins.
Skrifað af Rikki R. 20.05.2010 07:53Gert klárt 2010Ég var að skoða myndir og sá þá að á nokkrum þeirra eru sjóararnir að gera klárt. Hvað fellst í því að gera klárt? Eins og sjá má á þessum myndum er það allt frá því að mála og að ræða málin. Núna í vor hef ég náð nokkrum myndum og ákvað ég að setja þær saman í eina færslu og vonast ég til að þetta lýsi aðeins lífinu á bryggjunni. Þá vona ég að þið hafið gaman af, ég hef það og er það ekki það sem skiptir máli?
Skrifað af Rikki R. 19.05.2010 14:07Sunna Líf og FylkirHér er ein enn frá Sandgerðishöfn frá því þann 09. maí s.l. Hér má sjá 1523 Sunnu Líf KE 7 sem er með heimahöfn í Keflavík (blár). Sunna Líf var smíðuð árið 1978. Þá er það 1914 Fylkir KE 102 sem einnig er með heimahöfn í Keflavík (hvítur). Hann er sagður smíðaður 1985 og lengdur 1996. Önnur nöfn á Fylki: Garðar GH 26, Gjörvi ST 36, Fylkir NK 102 og loks Fylkir KE 102.
Skrifað af Rikki R. 18.05.2010 15:321315 Sæljós GK 21315 Sæljós GK 2 er með heimahöfn í Sandgerði. Smíðaður í Slippstöðinni á Akureyri 1975. Breytingar og lagfæringar gerðar hjá Vélsmiðju Sandgerðis 2007-2008. Nöfn: Eyrún EA 157, Eyrún SH 57, Eyrún GK 157, Eyrún ÁR 66, Eyrún ÁR 26, Maggi Ölvers GK 33 og loks Sæljós GK 2.
Skrifað af Rikki R. 16.05.2010 01:31Sólsetur 15. maí 2010Ég og Elín Hanna skruppum til að taka myndir af sólsetrinu. Vorum frekar sein á ferðinni en fundum einn stað þar sem við náðum þokkalegum myndum. Fleiri myndir í albúmi, Stór-Hafnarfjarðarsvæðið.
Skrifað af Rikki R. 16.05.2010 01:28Andrea Odda og Elín HannaVið fengum eina frænkuna lánaða í dag. Það var Andrea Odda og var mikið að gera hjá henni. Hér má sjá þær frænkur Andreu Oddu og Elínu Hönnu við Lækinn í Hafnarfirði. Elín Hanna lá þarna uppi á vegg og vildi Andra Odda að sjálfsögðu prófa líka.
Skrifað af Rikki R. 16.05.2010 01:24MaríuerlaRakst á þessa maríuerlu um borð í einum bát við höfnina 15. maí 2010. Hún var nokkuð gæf og leyfði mér að smella af nokkrum myndum áður en hún fór. Fleiri myndir í albúmi.
Skrifað af Rikki R. 16.05.2010 01:15Nokkrir fuglar 15. maí 2010Komst í tæri við nokkra fugla við Lækinn í Hafnarfirði í gær. Setti nokkrar myndir inn. Ég sá tvo merkta sílamáfa en náði bara mynd af öðrum þeirra, hinn var með ljósblátt merki. Þá hef ég oft viljað ná hinu fullkomna hjarta hjá álftinni en það hefur ekki tekist ennþá, þið sjáið afraksturinn samt hér að neðan.
14.05.2010 15:481396 Lena ÍS 61Í ferð minni um Suðurnesin þann 09. maí s.l. sá ég Lenu ÍS 61 í Keflavík. Fallegur bátur og vel með farinn og vel við haldið að mér sýnist. Báturinn var smíðaður 1974. Eldri nöfn: Haftindur HF 123, Gunnvör ST 29, Glettingur NS 100, Lena GK 72, Gunnhildur ST 38 og aftur Lena GK 72 og núverandi nafn er: Lena ÍS 61. Upplýsingar: http://emilpall.123.is/blog/record/420349/
Skrifað af Rikki R. 13.05.2010 01:261745 Halldóra GK 40 x Hrefna1745 Halldóra GK 40 x Hrefna. Þetta sagði ný eigandi mér þegar ég ræddi við hann. Hann var að ljóka við að mála Halldóru. Nú er bara eftir að setja tækin í bátinn sagði hann og kvaðst þá tilbúinn á strandveiðarnar. Kvaðst myndi missa af fyrstu dögunum en taldi það í lagi. Þá sagðist hann ætla að gera smá tilraun á málningu og nú spyr ég ykkur. Hvort útlitið er betra, efra með hvítt ofan á stefninu eða blátt eins og á mynd nr. tvö?
Skrifað af Rikki R. 13.05.2010 01:14Mikið að gera hjá Elínu HönnuSkólaslit í Allegro Suzuki tónlistarskólanum voru í gær, 12. maí 2010 í Langholtskirkju. Mikill fjöldi krakka kom fram og spiluðu á lokateinleikum. Hóparnir spiluðu m.a. á selló, píanó og fiðlur. Krakkarnir sem koma fram eru komin mislangt í náminu og í fiðlunni er því þannig komið fyrir að þau sem eru lengst komin spila fyrst, síðan bætist alltaf við þar til fiðlukrakkarnir voru orðnir um 60 sem spiluðu öll saman. Hljómurinn var hreint út sagt frábær og spilamennskan flott. En eins og áður hefur komið fram hefur verið nóg að gera hjá Elínu Hönnu í tónlistinni, vikutónleikar með Sinfoníuhljómsveit Íslands fyrir stuttu síðan, grunnpróf í fiðlu, grunnpróf í tónfræði og tónheyrn, útskrift úr fjórðu bók og núna þessir lokatónleikar. Þá má ekki gleyma öllum æfingunum fyrir þessa dagskrá hennar. Þá hefur hún að auki verið í prófum í skólanum sínum svo nóg hefur verið að gera. Nú sér fyrir endann á þessu og er það af hinu góða.
Skrifað af Rikki R. 13.05.2010 00:54Tugir bátaÞann 09. maí 2010 skrapp ég smá túr á Suðurnesin. Var að leita eftir að mynda einhverja fugla en þeir fuglar sem ég sá voru frekar styggir. Þá notaði ég tækifærið og myndaði báta sem voru í hinum ýmsu höfnum. Hér má sjá þrjár af þeim myndum sem ég tók.
Skrifað af Rikki R. 08.05.2010 15:04Vorhátíð Engidalsskóla 2010Í morgun fórum við á Vorhátíð Engidalsskóla. Ýmislegt var um að vera, leikir, grill, kaffihlaðborð o.fl. Vel var mætt og ég held að allir sem mættu hafi skemmt sér vel. Þetta verður í síðasta skipti sem vorhátíðin verður með þessum brag því að þeir nemendur sem eru núna í 4, 5, 6 og 7 bekk fara allir í Víðistaðaskóla næsta vetur vegna breytinga hjá Hafnarfjarðarbæ sem foreldrar margir hverjir eru frekar ósáttir við. Sérstaklega hversu brátt þetta ber að, ætla samt ekki að ræða það hér. Setti inn albúm, Vorhátíð Engidalsskóla 2010. Hér er smá sýnishorn.
Skrifað af Rikki R. 08.05.2010 14:52Arnar Finnur leikur listir sínarSkrapp og kíkti á Hafnarfjarðarhöfnina í gær og rakst þá á Arnar Finn leika listir sínar á sjóþotu. Ég smellti nokkrum myndum af honum og læt ég þær allar koma hér þó sumar séu ekki alveg í fókus. Það sýnir bara hver aksjónin var. Myndirnar í albúmi sem heitir Arnar Finnur. Hér má sjá þrjár af þessum myndum. Á þeirri neðstu hafði Arnar Finnur flogið af þotunni.
Skrifað af Rikki R. |
Málsháttur dagsins Svo flýgur hver fugl sem hann er fiðraður !clockhere Rikki R Nafn: Ríkarður RíkarðssonFarsími: 862 0591Tölvupóstfang: rikkirikka@gmail.comAfmælisdagur: 24. septemberHeimilisfang: Breiðvangi 3, 220 HafnarfjörðurStaðsetning: HafnarfjörðurHeimasími: 565 5191Um: Fæddur á Húsavík á því herrans ári 1961 og hef tekið ljósmyndir frá því ég var strákur. Aðaláhugamálið er að taka myndir af fuglum en þó mynda ég allt sem mig langar til að mynda eins og sjá má.Eldra efni
Tenglar
|
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is