Ljósmyndasíða Rikka

Fuglar, gamlir bátar, mannlíf, íslensk náttúra eins og ég sé hana

Færslur: 2010 Desember

31.12.2010 01:39

Áramótakveðjur 2010-2011

Kæru vinir, kunningjar og velunnarar síðunnar.  Nú dregur að áramótum og ég ætla að verða í fyrrafallinu með áramótakveðjuna núna.  Gef mér líklega ekki tíma til þess að fara hér inn fyrr en á nýju ári.  Ég óska ykkur öllum gleðilegs nýs árs og vona að þið hafið það gott á nýju ári.

31.12.2010 01:20

5957 Lára SH 73

Lyfti myndavélinni um jólin og náði m.a. myndum af Láru SH 73.  Ég ræddi við eiganda Láru, Ásgeir Árnason og sendi hann mér eftirfarandi upplýsingar:

Við pabbi, Árni Sigurjónsson, hófum smíði Lárunnar í júlí 1977 og sjósettum hana  í júní 1978. Báturinn var smíðaður í frístundum á kvöldin og um helgar í bílskúrnum á Skúlagötu 1 Stykkishólmi.  Vélin var 18 hö Sabb til að byrja með og síðan skiptum við um vél 1983 í BMW 30 hö.  Engar breytingar hafa verið gerðar á bátnum. Engar lagfæringar nema eðlilegt viðhald.


5957 Lára SH 73, Stykkishólmur 27.12. 2010

22.12.2010 08:19

Gleðileg jól

Jólin 2010

Hver man ekki eftir að hafa séð jólakort þar sem stór jólastjarna skein á himni og vísaði vitringunum veginn til frelsarans. Þessi mynd mynnir mig svolítið á þessi gömlu jólakort með stjörnunni góðu.  Kyrrðin, stjörnubjartur himinn, gömul hús (þó ekki fjárhús) og þetta skæra ljós á himni. Vona að þið finnið þessi áhrif líka þegar þið skoðið þessa mynd.

Kæru ættingjar, vinir og velunnarar síðunnar.  Megi Guð gefa ykkur og fjölskyldum ykkar gleðileg jól.  

Með jólakveðju Rikki R



Ég má til að setja hér önnur hughrif, setjið ykkur nú í stellingar og skrúfið ímyndunaraflið á fullt.
Jólastjarnan skín skært á heiðskírum næturhimninum.  Vitringarnir þrír (Bræðraminni, Bogabúð og Berg)  fylgja stjörnunni eftir og nálgast íverustað frelsarans (Vegamót).  Þar innandyra er María mey (Álfheiður Ingadóttir þingmaður).................

Nei, nú fór ég alveg með þetta.  Fyrirgefið þetta innskot en ég mátti til.

14.12.2010 00:57

Viðbætur

Er byrjaður að færa inn endurvinnslusöguna af Kára eins og ég upplifi hana.  Sagan er myndskreytt og vona ég að þið hafið gaman af, það hef ég alla vegna.  Þarna er áttunda umfarið komið á sinn stað og afturhlutinn farinn að taka á sig bátsmynd.


Afturstefnið eða hvað menn vilja kalla það, 10.12.2010

Þá er einnig kominn inn sagan af Sílinu í Hafnarfirði.  Þar segir Björn smiður og eigandi frá bátnum og af hverju hann smíðaði hann.


Sílið, 20. nóvember 2010

08.12.2010 21:36

Var að bæta við myndum

Var að bæta inn myndum í þrjú myndaalbúm, Kári og Flóabáturinn Konráð BA152.  Að endingu er það Sílið í Hafnarfirði.  

Af Sílinu er helst að frétta að hann er kominn hús og eitthvað verið að betrumbæta hann.  Björn smiður kvaðst hafa gert smá mistök í smíðinni, böndin í bátnum væru of veigalítil og ætlaði hann að skipta þeim út og þá ætlaði hann að hækka borðstokkinn.  Björn vildi meina að það yrði nokkur útlistbreyting á bátnum.  Ætla að fylgjast með þessu eftir bestu getu og svo þegar báturinn fer á sjóinn í vor/sumar þá festi ég hann á kubbinn aftur.  Fæ frásögn eiganda bátsins vonandi fljótlega, enda væri gaman að geta fylgst með bátnum næstu árin/áratugina og uppfæra alltaf söguna. 


Sílið í Hafnarfjarðarhöfn.


Það er helst að frétta af endusmíði Kára að Ólafur er kominn í áttundu umferð.  Á myndin hér að neðan er það sjöundu umferð sem er komin.  Þegar ég spurði Ólaf hvort hann þyrfti að skipta um öll borðin kvaðst hann ekki viss.  Það eru 11 umferðir, þið fyrirgefið en ég þekki kanski ekki réttu orðin í þessu.  Ég sá að talsvert er skemmt í þeirri 10 og gæti verið að það slippi að skipta um hluta en þar sem ég er ekki kunnáttumaður í viðgerðum á bátum þá verður þetta að koma í ljós síðar.  Ef vel er skoðað má sjá að nákvæmnin er í fyrirrúmi, ekki að sjá að skekkja sé í bátnum.


Stefnið á Kára, 20. nóvember 2010

Nýjar, gamlar myndir komnar af Konráð BA 152 sem ég fékk sendar frá Torfa Haraldssyni sem hann tók sjálfur.  Aðra myndina var ég búinn að fá en þar hafði verið klippt af henni svo Konráð sást ekki allur.  Hin myndin sem hér má sjá er tekin á sama tíma nema það er fjara.  Á myndinni sést Konráð inni í Grýluvogi þar sem hann var rifinn niður.  Ekki mikið eftir af síðunum á honum þarna en stýrishúsið enn á sínum stað.


Konráð BA 152.  Ljósmynd: Torfi Haraldsson

06.12.2010 23:46

Fiðrildi

Litir fiðrilda eru margvíslegir.  Mér fannst því við hæfi að setja inn nokkrar myndir sem ég hef tekið af litríkum fiðrildum hér heima og erlendis, því nú er sá tíma þegar menn hengja upp litrík ljós og lýsa upp skamdegið.  Ég geri það líka en hef líka gaman að skoða þessi litríku dýr.  Einstaka sinnum berast hingað til lands litrík fiðrildi eins og þistilfiðrildi og aðmírálsfiðrildi. Ég var eitthvað að skoða myndirnar mínar og sá að ég átti eitthvað af myndum af fiðrildum. Ég safnaði því þessum myndum saman í eitt myndaalbúm hér á síðunni.  Set inn tvö fiðrildanna minna hér, en fleiri eru í myndaalbúmi, mun svo setja inn nöfn þeirra og jafnvel einhverjar upplýsingar um þau.  Vonandi hafiði gaman af að skoða.


Papilio Machaon Syriacus.  Arnarhreiðrið, Þýskalandi, 25. júní 2008


Monarch butterfly, Danaus Plexippus.   Florida 15. mars 2010

  • 1

Málsháttur dagsins

Svo flýgur hver fugl sem hann er fiðraður !
clockhere

Rikki R

Nafn:

Ríkarður Ríkarðsson

Farsími:

862 0591

Afmælisdagur:

24. september

Heimilisfang:

Breiðvangi 3, 220 Hafnarfjörður

Staðsetning:

Hafnarfjörður

Heimasími:

565 5191

Um:

Fæddur á Húsavík á því herrans ári 1961 og hef tekið ljósmyndir frá því ég var strákur. Aðaláhugamálið er að taka myndir af fuglum en þó mynda ég allt sem mig langar til að mynda eins og sjá má.

Eldra efni

Tenglar

Flettingar í dag: 223
Gestir í dag: 29
Flettingar í gær: 500
Gestir í gær: 61
Samtals flettingar: 332565
Samtals gestir: 31559
Tölur uppfærðar: 24.4.2024 16:42:33