Ljósmyndasíða Rikka Fuglar, gamlir bátar, mannlíf, íslensk náttúra eins og ég sé hana |
|
11.10.2007 18:17Fuglar, tré og fleiraSetti inn nokkrar myndir sem ég hef tekið síðustu daga. Þetta eru fuglamyndir sem ég tók í dag, 11.10.2007 af heiðatittling og gulllóu. Myndirnar eru ekkert sérstakar en allt í lagi þó. Þetta eru bæði fuglar sem koma frá Ameríku. Þá hef ég farið í gönguferðir hér um nágrennið síðustu daga og séð haustlitina sterka og reyndi að ná því á mynd. Þá setti ég inn nýjar myndir í "Húsvíkingar fyrr og nú". Þá eru myndir í Íslandsmöppunni. Nóg að skoða. Skrifað af Rikki R. 08.10.2007 23:17Safaspæta á ÍslandiFór í dag, 08.10.2007, á Selfoss til að líta augum sárasjaldgæfan fugl hér á landi. Þetta var safaspæta, Yellow-bellied Sapsucker, Sphyrapicus varius. Ég hafði myndavélina með og náði nokkrum myndum af fuglinum, setti inn tvær myndir. Þess má til gamans geta að þetta er annar fuglinn sem sést hér á Íslandi, en sá fyrsti fannst löngu dauður í júní 1961. Þetta er sem sagt fyrsti lifandi fuglinn af þessari tegund hér á landi og fjórði fuglinn sem sést í Evrópu. Safaspæta kemur frá Ameríku. Skrifað af Rikki R. 30.09.2007 22:05Nokkrar myndirSetti nokkrar myndir inn í, Íslands-, bóma- og Stór-Hafnarfjarðarsvæðisalbúmin. Hjólaði út á Álftanesið í dag svona rétt til að sjá hvernig maður er staddur líkamlega. Hafði myndavélina með í för og tók myndir m.a. af Hallgrímskirkju og Hamraborginni í Kópavogi frá Álftanesveginum. Þá tók ég myndir af Bessastöðum en ég hef einsett mér að ná sem felstum myndum af Bessastöðum í öllum veðrum, frá öllum hugsanlegum sjónarhornum og svo framvegis. Ástæðan er að ég horfi alltaf á Bessastaði þegar ég er þarna á ferð og því kom þessi hugmynd upp. Skrifað af Rikki R. 27.09.2007 21:02Leiðinda veðurFór smá hring í dag í leiðinda slagveðri og hvassviðri. Tók ekki margar myndir en smellti þó af nokkrum. Setti inn myndir í Stór-Hafnarfjarðarsvæðis albúmið. Ein myndin er af Hallgrímskirkju í rigningarsuddanum. Veit ekki alveg hvort hún er alveg í fókus en finnst það ekki skipta öllu máli á þessari mynd. Getur verið svolítið óþægilegt að horfa í myndina í fyrstu þar til þið sjálf náið að fókusa á myndina en svo kemur það. Belgir skoppa í öldunum og svo er mynd af konu á skokki í þessu leiðinda veðri, dugleg eins og þið sjáið hér að neðan. Skrifað af Rikki R. 23.09.2007 18:29HúsavíkSetti inn nýtt albúm, Húsavík og nágrenni. Myndir sem ég hef tekið á Húsavík og þar í kring. Meiningin er að hafa ekki mikið af fólki í þessari möppu en þó sleppa einhverjir þarna inn, fer eftir hvað er á myndunum. Skrifað af Rikki R. 23.09.2007 18:002000 gestirÍ dag gerðist það að 2000 gesturinn leit inn á síðuna mína. Ég get nú ekki verið annað en ánægður með þetta og þakkað fyrir mig. Sendi hér gesti nr. 2000 þessar rósir. Veit reyndar ekki hver hann er. Skrifað af Rikki R. 21.09.2007 20:59Paradís fyrir ljósmyndara við höfuðborginaVar á ferðinni í dag og ók framhjá Rauðhólunum eins og svo oft áður. Aldrei hef ég þó stoppað þar nema í eitt sinn til að mynda rjúpu. Nú hins vegar sá ég mér til mikillar gleði að birtan var frábær og tjörn sem er þarna í botninum var alveg spegilslétt. Þá falla haustlitirnir vel inn í rauðmölina. Í réttri birtu þá er þetta paradís fyrir alla sem hafa gaman af ljósmyndun. Ég var bara í kringum þennan eina hól sem sést á þessari mynd hér fyrir neðan svo nóg er eftir til að mynda. Myndirnar getiði séð í möppu sem heitir einfaldlega Rauðhólar. Skrifað af Rikki R. 18.09.2007 13:59HaustTók smá göngutúr um nágrenni heimili míns í morgun. Þar sem haustið er greinilega komið þá ákvað ég, í stað þess að mynda marglit lauf á trjánum að taka myndir af laufblöðum sem liggja á jörðinni. Þessi lauf eru mörg hver litfögur en sum eru jafvel hálf litlaus. Þá rakst ég á rifsber og reyndi að ná myndum af þeim þar sem sólin lýsir þau upp, þau verða því ljósrauð að lit. Sjón er sögu ríkari, kíkið á blómamöppuna. Skrifað af Rikki R. 17.09.2007 22:49AðaldalshraunSkrapp norður um síðustu helgi. Tók nokkrar myndir í Aðaldalshrauni en þar eru haustlitirnir orðnir nokkuð sterkir. Sérstök birta var þegar ég var þarna á ferðinni. Nýbúið að slidda og sólin skein síðan í gegn, engin snjór á jörðu en allt blautt. Litirnir því mjög sterkir og þá var snjór ofan í miðjar hlíðar á Kinnafjöllunum eins og sjá má. Tók líka nokkrar berjamyndir, namm, namm. Kaus að setja allar þessar myndir inn í blómamöppuna. Skrifað af Rikki R. 10.09.2007 11:45Fleiri fuglarBætti við nokkrum eldri myndum frá því fyrr á þessu ári. Er að fara yfir myndirnar mínar og skoða hvað er til. Hér má líta eina af þeim sem ég tók í sumar n.t.t. á Vífilsstaðavatni. Skrifað af Rikki R. 10.09.2007 09:36FuglarSetti inn tvær fuglamyndir sem ég tók í gær, 9. sept. í Sandgerði. Önnur myndin er af lappajaðrakan og hin af steindepli. Hér læt ég myndina af smyrlinum fylgja með sem ég tók um daginn. Skrifað af Rikki R. 08.09.2007 23:10Alger sveppur o.fl.Skrapp í dag og tók nokkrar myndir af sveppum og ýmsu öðru. Mikið er af sveppum og því ákvað ég að gera tilraun að ná myndum af nokkrum tegundum. Afraksturinn má sjá í blómamyndunum. Þá náði ég nokkrum myndum af sel við Skógtjörn á Álftanesi. Hann var nokkuð rólegur og náði ég að ganga alveg í flæðarmálið og sat hann hinn rólegasti meðan ég myndaði hann. Hefði þó viljað hafa betri birtu en það er ekki hægt að stjórna því. Selinn og fleiri myndir má sjá í Stór-Hafnarfjarðarmöppunni. Þá náði ég mynd af smyrli og er hún í Fuglamöppunni. Skrifað af Rikki R. 31.08.2007 10:53Hvít ber, rauð ber, svört ber o.fl.Tók mér göngutúr í morgun og tók nokkrar myndir af því sem fyrir augu bar. Aðallega myndaði ég þó blóm og ber. Þið getið litið á afraksturinn í blómamöppunni. Skrifað af Rikki R. 30.08.2007 16:38Fólk í StykkishólmiVar að setja inn nýtt albúm, Fólk í Stykkishólmi. Þetta eru myndir sem teknar eru innandyra, utandyra og við ýmis tækifæri í Stykkishólmi. M.a. eru myndir af fólki sem teknar voru á dönskum dögum, 30 ára fermingarafmæli EDE, kirkjukórstónleikum og fleira. Skrifað af Rikki R. 30.08.2007 10:49Nýjar myndirSetti nokkrar myndir inn sem ég hef verið að taka síðustu tvo daga. Nokkrar í blómamyndir, fuglamyndir og Íslandsmöppuna. Ég sé að þegar ég set inn nýjar myndir í möppu þá hoppar sú mappa framfyrir svo hún verður sýnileg. Þetta vissi ég ekki, en maður er alltaf að læra. |
Málsháttur dagsins Svo flýgur hver fugl sem hann er fiðraður !clockhere Rikki R Nafn: Ríkarður RíkarðssonFarsími: 862 0591Tölvupóstfang: rikkirikka@gmail.comAfmælisdagur: 24. septemberHeimilisfang: Breiðvangi 3, 220 HafnarfjörðurStaðsetning: HafnarfjörðurHeimasími: 565 5191Um: Fæddur á Húsavík á því herrans ári 1961 og hef tekið ljósmyndir frá því ég var strákur. Aðaláhugamálið er að taka myndir af fuglum en þó mynda ég allt sem mig langar til að mynda eins og sjá má.Eldra efni
Tenglar
|
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is