Ljósmyndasíða Rikka Fuglar, gamlir bátar, mannlíf, íslensk náttúra eins og ég sé hana |
|
Færslur: 2011 Mars31.03.2011 11:47Óskar MatthíassonAuðunn Jörgensson er eigandi Óskars Matthíassonar og ræddi ég smávegis við hann. Óskar Matthíasson var smíðaður 1969 í Noregi. Auðunn kvaðst hafa eignast Óskar í maí 2009 og gert hann upp, báturinn hafi nánast verið ónýtur. Hann kvaðst hafa keypt bátinn af manni sem heitir Kristján, man ekki meira um þann mann. Auðunn er sjálfur að vinna í að finna sögu bátsins en hann hefur m.a. sent fyrirspurn til Noregs til að leita að sögu Óskars. Ef þetta hefst hjá honum þá mun sagan koma hér síðar.
Óskar Matthíasson gæti verði notaður til að sigla með túrista, veiða nokkra fiska og koma með þá og elda á einhverjum veitingastaðnum við höfnina. Ef þessi tilgáta mín er röng þá er þetta bara einfaldlega skrautlegasti handfærabátur sem ég hef séð fyrr og síðar. Skrifað af Rikki R. 29.03.2011 23:55Reykjavíkurhöfn 29. mars 2011Fann mér tíma eftir vinnu til að skreppa niður að Reykjavíkurhöfn og kíkja þar á lífið. Lítið var um fugla en því meira af bátum. Þeir stóru voru í blárri kantinum. Ásmundur Halldórsson SF 250 var í höfn. Hann fór síðan út fyrir höfnina, dansaði þar í smá stund og vatt sér inn aftur. Hvað hann var að gera veit ég ekki?
Skrifað af Rikki R. 28.03.2011 21:31Hafnarfjarðarhöfn 28.03.2011Leit við í Hafnarfjarðarhöfn í dag, 28. mars 2011. Tók frekar lítið af myndum. Hér má þó sjá tvær þeirra.
Skrifað af Rikki R. 28.03.2011 13:45Viðbætur og breytingarHér til hliðar eru nú tenglar á Skip og bátar Rikka R, það eru myndir af flest öllum bátum sem ég hef tekið myndir af fyrir utan kanski þessa gömlu, þeir fá sértengla.
Þá er saga Hönnu frá Gjögri komin inn, að hluta alla vegna. Það sem komið er fann ég á veraldarvefnum. Geti menn bætt við söguna þá endilega sendið póst.
Þetta er svona það helsta núna og það nýjasta. Skrifað af Rikki R. 25.03.2011 01:0613 ára snótÞó 24. mars sé liðinn má ég til með að setja hér inn tvær myndir af Elínu Hönnu. Hún átti afmæli í gær, 24. mars og varð 13 ára gömul. Að sjálfsögðu er hún ljúfust allra og pabbi gamli mjög stoltur af dótturinni dýru. Hér eru tvær myndir af Elínu Hönnu með 12 ára millibili.
Skrifað af Rikki R. 25.03.2011 00:45Fjórir í viðbótHér koma fjórir síðustu bátarnir sem ég myndaði í húsnæði Jóns Ragnars Daðasonar. Engin saga er ennþá en myndirnar koma hér inn engu að síður. Ég setti inn kenninöfn fyrir mig til að finna bátana aftur og þið takið viljan fyrir verkið. Hér til hliðar eru bátarnir undir þessum skrítnu nöfnum, þá er hægt að smella á myndirnar hér fyrir neðan og þá opnast á myndasafnið af hverjum og einum. Sögurnar koma síðar.
Skrifað af Rikki R. 16.03.2011 23:23Gamlir bátar............Setti inn ljósmyndir af fimm litlum bátum, sjá hér til hliðar. Sögur þeirra vantar og ég veit að það eru aðilar sem kíkja hér inn sem vita hvað þeir þura að gera, setjast niður og skrifa söguna........Hafliði, Jón Ragnar, Ólafur og Sigurður, koma svo strákar:-) Smellið á myndirnar og þið getið skoðað þær myndir sem ég tók af þessum bátum. Það er verið að gera þá alla upp. Hafliði Aðalsteinsson er að gera Baldur upp. Agnar Jónsson er að gera Gaut upp. Hafliði Aðalsteinsson er einnig að lagfæra Hönnu ST 49. Rauður ? veit ekki hver á hann eða er að gera upp. Litli hvítur, Ólafur Gíslason lagfærði hann, skipti um afturstefni, kjöl og nokkur bönd. Báturinn er tilbúinn held ég, nema að eigandinn eigi eftir að mála?
Skrifað af Rikki R. 16.03.2011 22:32Hanna ST 49Hanna frá Gjögri er merkisfleyta fyrir margar sakir. Hún er elsta fley sem hefur veiðiheimild frá fiskistofu. Næst elsta skip samkvæmt skipaskrá Siglingstofnunar. Hún er síðasta norsk-smíðaða trillan sem til er á Íslandi.
25. apríl 2011
05. júní 2011
10. júlí 2011
02. ágúst 2011
17. ágúst 2011
20. ágúst 2011
Þá er þetta líklega síðasta færsla nema ég eigi eftir að fara að Gjögri og taka myndir af Hönnu þar. Það væri flottur endir á þessari sögu sem ég hóf þann 03. mars 2011. En eftir því sem Hilmar segir þá kom hann með Hönnu á verkstæðið fyrir 13 mánuðum síðan. Í upphafi var unnið rólega. En nú er staðan sem sagt sú að Hanna fór á flot og það var engin leki. Nú þarf að ditta smávegis að, mála meira o.fl. áður en farið verður með Hönnu norður að Gjögri. Hilmar vildi meina að það yrði stutt í þá ferð.
Á heimasíðu Ásafls ehf, frá því 13. mars 2011, slóðin hér að ofan, verður fylgst með lagfæringu bátsins eftir því sem fram kemur þar. Þar má jafnframt finna þessa stöku, ekki kemur þó fram hver höfundurinn er. Hanna hefur línu mjúka hefur borið aldur vel. Brátt mun Ægir hana strjúka dundar hún við fisk og skel. Enn ein heimildin um Hönnu frá Gjögri er síðan í ágúst 1999, en þá var frumsýnd kvikmynd um Hönnu frá Gjögri eftir Þorstein Jónsson. Myndin er 26 mínútna löng. Eftirfarandi er orðrétt eftir greininni sem ég las: Hann ætlaði ekki að lenda í sama baslinu og foreldrar hans og fluttist á unglingsárunum til Reykjavíkur. En eitthvað varð eftir á Gjögri, eitthvað óáþreifilegt og ósýnilegt sem þó lifir og andar. Núna leitar hugurinn norður hvert vor og hann er ekki í rónni fyrr en hann er kominn á staðinn, sem hann flúði ungur, þar sem jörðin er sú saman og sjórinn er sá sami og þar sem trilla förðu hans bíður í sjóhúsinu eftir að komast á flot. Hún heitir Hanna og þó hún sé hundrað ára er hún vel ern, gott sjóskip og hefur alla tíð verið mikið happafley. Öldugjálfrið og fuglakliðurinn eru sem tónlist í eyrum hans og Hönnu þekkir hann eins vel og hægt er að þekkja eina trillu. En hún þarfnast endurbóta og faðir hans hefur vitjað hans í draumi og sagt honum að það þurfi að fara að gera trilluna til góða. Maðurinn er Hilmar F Thorarensen og við sögu koma heimamenn og brottfluttir Strandamenn, Ólafur og Jakob Thorarensen, Garðar Jónsson og Guðmundur og Jón Jens á Munaðarnesi. Myndin var tekin á Ströndum í ágúst 1999. Heimild af veraldarvefnum: http://www.kvikmynd.com/Hanna_fra_Gjogri.html Skrifað af Rikki R. 16.03.2011 20:31Hafnarfjarðarhöfn 12. mars 2011Hér er ein mynd sem ég tók í Hafnarfjarðarhöfn 12. mars s.l. Veðrið var frábært og spegilsléttur sjór. Oft þegar svona birta er þá getur verið vont að taka myndir þar sem skuggar eru mjög harðir og birtan yfirlýsir hvíta fleti. Tel mig hafa náð að sleppa þokkalega frá því í þessari mynd.
Skrifað af Rikki R. 14.03.2011 13:46Spegill, spegill herm þú mér....Spegill, spegill herm þú mér............... Þetta sagði drottning eitt sinn. Hvað sem því líður þá er hér ein Margrétin sem speglar sig í Hafnarfjarðarhöfn. Held reyndar að þessi drottning sé nú lítið eitt ljúfari en sú sem sagði þessi fleygu orð í upphafi þessara skrifa.
Skrifað af Rikki R. 14.03.2011 08:50AuðnutittlingurRakst á nokkra auðnutittlinga sem voru að gæða sér á kræsingum. Held að þetta séu einhverslags fitukúlur með korni í. Alla vegna þá rifu þeir þetta í sig. Auðnutittlingar er lítil, rákótt grábrún finka með stutt stél. Hann er kvikur og fimur þegar hnn leitar sér ætis í trjám og öðrum gróðri. Er oft í lotum hópum utan varptíma. Helsta fæða er frá, aðallega af birki og svo skortdýr. Kjörlendi auðnutittlinga er brikiskógar og kjarr auk þess ræktað skóglendi og garðar. Hann gerir sér hreiður í trjám og runnum. Það er lítil vönduð karfa úr sinu og öðrum gróðri, fóðruð með hárum og fiðri. Verpir venjulega oftar en einu sinni á sumri. Meiri upplýsingar má finna á vef fuglavefsins, slóðin hér að neðan. Heimildir: Fuglavefurinn http://www1.nams.is/fuglar/details.php?val=1&id=28
Skrifað af Rikki R. 14.03.2011 08:28FiskakletturMenn frá Björgunarsveit Hafnarfjarðar tóku Fiskaklett á land. Lagís var í höfninni og því svolítið erfitt að stjórna hvert báturinn færi svo það varð að brjóta lagísinn fyrst. Á fyrstu myndinni sést þegar siglt er inn í lagísinn. Á næstu mynd sést þegar verið er að brjóta ísinn og að endingu er ísnum dreift. Þá sigldu þeir bátnum beint upp á kerru og greinilegt var af aðförunum að þessir menn höfðu gert þetta áður.
Skrifað af Rikki R. 10.03.2011 19:12Ísabella EmblaMá til með að setja hér inn nokkrar myndir af Ísabellu Emblu sem er mikil vinkona mín. Hún er bara flott. Hér er smá sýnishorn af henni.
Skrifað af Rikki R. 09.03.2011 23:49Múlaberg og Óli GíslaÉg hef sagt það áður og segi aftur að þegar ekki er tími í fuglamyndir þá koma bátarnir í staðinn. Nei, nei, ég verð nú að vera aðeins sanngjarn í þessu. Ég er alæta í ljósmyndum og verð að viðurkenna að bátar hafa komið sterkari inn hjá mér upp á síðkastið. Þetta gleður suma en aðra ekki. Hvað sem öðru líður þá má geta þess að ég er að vinna í að fá sögu nokkurra báta hér til hliðar. En nýjustu fréttir í bátunum hjá mér eru: Múlabergið sigldi inn í Hafnarfjarðarhöfn þann 6. mars s.l. Rak augun í þá þegar þeir voru á innleið og smellti á þá nokkrum römmum. Hér má sjá eina af þeim.
Skrifað af Rikki R. 07.03.2011 09:27SumarliðiJón Ragnar Daðason og Bergsveinn Jónsson hafa eignast bát sem heitir Sumarliða, sem þeir ætla að gera upp. Jón Ragnar sendi mér upplýsingar um Sumarliða, síðan náði ég sambandi við Magnús Ívar Guðbergsson fyrrverandi eiganda Sumarliða og fékk nánari upplýsingar um lagfæringar sem þeir feðgar gerð á bátnum. Páll Ingvarsson hafði samband við mig og kvað föður sinn Ingvar Breiðfjörð hafa átt sumarliða. Látum Jón Ragnar, Magnús Ívar og Pál fá orðið: Vélbáturinn Sumarliði SH 110 var upphaflega smíðaður sem áraskip, sennilega sexæringur. Báturinn var þó örugglega smíðaður fyrir 1875 að því er fram kemur í óprentuðum æviminningum Skúla Skúlasonar (1875-1950) skipstjóra í Stykkishólmi, hugsanlega 1860-1870. Talið er að Bergsveinn Ólafsson (1839-1899) frá Bjarneyjum hafi smíðað Sumarliða. Sumarliði er 7,62 m. að lengd, 2,26 m. að breidd, 0,91 m. að dýpt og 2,8 brl. Faðir Skúla, Skúli Skúlason bóndi í Fagurey á Breiðafirði, réri á Sumarliða frá Hellissandi fyrir 1875, en þá var hann í eigu Jóns bónda Finnssonar í Fagurey. Seinna eignaðist Skúli yngri bátinn og eftir honum bróðursonur hans, Bergsveinn Jónsson (skráður eigandi frá 21. apríl 1952) hafnsögumaður í Stykkishólmi og notaði sem eins konar lóðsbát fram um 1970. Ingvar Breiðfjörð í Stykkishólmi eignast Sumarliða um 1967-68. Páll heldur að faðir hans hafi keypt bátinn frá Ólafsvík og þá hafi hann verið í frekar slæmu standi. Ingvar var alltaf eitthvað að ditta að Sumarliða meðan báturinn var í hans eigu. Páll kvaðst muna að þeir skiptu um einhver borð í Sumarliða, man ekki hve mikið. Ingvar seldi Sumarliða um 1980. Ingvar notaði bátinn á handfæri, haukalóð og í lundaveiði. (Upplýsingar frá Páli Ingvarssyni. Páll skoðar betur) Báturinn seldur Helga Eiríkssyni Stykkishólmi 27. júlí 1981 hét Sumarliði SH 410. Seldur 30. júlí 1985 Rafni Franklin, hét Gógó RE 410. Seldur 3. febrúar 1986 Guðbergi Sigursteinssyni, Smáratúni. Báturinn var skráður í Halakotsvör og hét Sumarliði GK 300. Eigandi Sumarliða meira og minna frá 1986 - 2010 voru þeir feðgar Guðbergur Sigursteinsson og Magnús Ívar Guðbergsson, Vogum, en þar var báturinn geymdur á þurru landi og utanhúss. Magnús keypti hann af manni frá Akranesi (Magnús man ekki hvað hann heitir) árið 1986 og notaði til fiskiróðra til 1994, er bátnum var lagt. Undantekningar á þessur eru: Seldur 13. febrúar 1990 Kristjáni Kristmannssyni og Hafsteini Fjalari Hilmarssyni, Vogum. Seldur 19. febrúar 1992 Magnúsi Ágústssyni, Vogum. Seldur 2. desember 1992 Magnúsi Ívari Guðbergssyni, Vogum. Seldur 19. mars 1993 Þórði S. Jónssyni, Hvammstanga, sama nafn og númer. Seldur 24. mars 1993 Fiskmarki hf, Seltjarnarnesi, heitir Auðlind HF 29. Seldur 27. júlí 1993 Marlind hf., Reykjavík. Báturinn er skráður á Seltjarnarnesi 1997. Faðir Magnúsar er skipasmiður og gerðu þeir feðgar miklar endurbætur á bátnum. Skiptu um hluta af kilinum, skipt um öll bönd, nýjar lunningar, skiptu um framstefni, tóku stýrishúsið af, hækkuðu það upp og notuðu efri hlutann af stýrishúsinu áfram og stækkuðu kassann fram svo eitthvað sé nefnt. Sumarliði var svo sjósettur aftur eftir endurbætur þann 17. júní 1986. Vélin í bátnum var Sabb 1 cyl. 10 hestafla. Á gömlum myndum af Sumarliða, sennilega síðan um 1940 má sjá hann stýrihússlausan. Eigandi bátsins í dag er Bergsveinn Jónsson og Jón Ragnar Daðasson er Sumarliði því aftur kominn í eigu afkomanda Fagureyinga. Magnús Ívar ætlar á kíkja eftir því hvort hann eigi myndir af Sumarliða með stýrishúsið og vonandi fæ ég eintak og þá set ég hana inn hér.
Skrifað af Rikki R.
|
Málsháttur dagsins Svo flýgur hver fugl sem hann er fiðraður !clockhere Rikki R Nafn: Ríkarður RíkarðssonFarsími: 862 0591Tölvupóstfang: rikkirikka@gmail.comAfmælisdagur: 24. septemberHeimilisfang: Breiðvangi 3, 220 HafnarfjörðurStaðsetning: HafnarfjörðurHeimasími: 565 5191Um: Fæddur á Húsavík á því herrans ári 1961 og hef tekið ljósmyndir frá því ég var strákur. Aðaláhugamálið er að taka myndir af fuglum en þó mynda ég allt sem mig langar til að mynda eins og sjá má.Eldra efni
Tenglar
|
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is