Ljósmyndasíða Rikka Fuglar, gamlir bátar, mannlíf, íslensk náttúra eins og ég sé hana |
|
22.04.2008 10:26BardagiNáði myndum af hettumáfum sem voru að slást. Myndirnar eru nú ekki alveg hundrað prósent skarpar en ég setti þær samt inn. Hér má sjá eina af myndunum. Skrifað af Rikki R. 21.04.2008 21:34Fuglarnir koma, fuglarnir koma.........Farfuglarnir koma með hækkandi sól og þá er gaman, alla vegna fyrir mig. Náði nokkrum myndum hér á Stór-Hafnarfjarðarsvæðinu. Margæsirnar koma við hér á landi á vorin og haustin. Það koma stórir hópar af margæsum og mikill fjöldi þeirra kemur við á Álftanesinu, við Skógtjörn og Bessastaði svo einhverjir staðir séu nefndir. Fleiri myndir inní fuglamöppunni.
Skrifað af Rikki R. 13.04.2008 21:14Eins ársÉg var að átta mig á að fyrir einum mánuði síðan, n.t.t. 12. mars, hafði ég haldið þessari síðu úti í eitt ár. Ég get ekki annað sagt en að þetta hafi gengið mjög vel. Vona að þið hafið haft gaman af, það hef ég. Hér er ein mynd af mér þegar ég er yngri, þó aðeins eldri en eins árs. Það er að sjálfsögðu saga á bak við þessa mynd. Ég hafði verið í einhverju brjáluðu skapi, öskrandi og grenjandi. Eina leiðin til að hugga mig var að leyfa mér að fara í úlpuna hans stóra bróður og taka mynd af mér. Eins og þið sjáið þá var það ég sem fann upp Colgate-brosið. Skrifað af Rikki R. 13.04.2008 17:59ReykjanesbærÞurfti að skreppa í Reykjanesbæ í gær og ákvað í leiðinni að kíkja eftir fuglum. Nóg var af þeim en fátt varð um myndatöku. Hins vegar vaknaði áhugi minn fyrir því að mynda alla þá báta sem ég sá á bryggjunni í Sandgerði, bátar sem eru orðnir frekar þreyttir. Aðrir bátar sem ég sá voru þá myndaðir í leiðinni. Þá skrapp ég í slippinn í Njarðvík og tók myndir þar af nokkrum bátum. Setti inn nýtt albúm sem ég kalla "Skip og bátar". Hér má sjá eina mynd sem ég tók í slippnum í Njarðvík. Skrifað af Rikki R. 11.04.2008 10:31Vorið er komiðLóan er komin að kveða burt snjóinn.............eða svo er sagt. Þrátt fyrir að vor sé í lofti er nú skratti kalt þessa dagana. Hér á stór-Hafnarfjarðarsvæðinu snjóaði í fyrradag en nú er sá snjór að mestu horfinn, alla vegna hér í byggð. Mæli með, þar sem daginn er farið að lengja, að allir bregði undir sig betri fætinum, skreppi út með myndavélar og myndi allt sem fyrir augu ber. Hér kom tvær myndir svona rétt til að minna okkur á. Fyrri myndin er af lóunni, svona lítur hún út. Set myndina hér fyrir ykkur sem hafið gleymt hvernig hún lítur út. Svo er svona stemmumynd sem ég tók í Flatey á Breiðafirði. Þegar þið röltið um þá er höfnin kjörin staður til að skoða, sérstaklega þegar sjórinn er spegilsléttur eins og hann hefur verið hér undanfarin kvöld. Gangi ykkur vel. Skrifað af Rikki R. 09.04.2008 21:51Nýtt útlitÉg var að skipta um útlit og vona ég að ykkur líki það. Þetta var svona rétt til að reyna að lífga uppá útlitið. Þetta eru þó ekki miklar breytingar nema þó að nú eru myndaalbúmin, gestabókin og fleira komin upp undir síðuhausinn en ekki til hliðar eins og var. Þá hef ég aukið við töluvert af slóðum þar sem þið getið flakkað um. Þetta eru aðallega eitthvað sem varðar náttúruna og ljósmyndun. Held að allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi þar. Fyrir þá sem hafa áhuga þá er þarna slóð sem heitir Ferlir og það er hópur fólks sem skoðar Reykjanesið mjög mikið og þekkir þar orðið hvern einasta stein, nánast. Þá eru þeir mikið í hellaskoðunum og fleira. Ljósmyndasíðurnar eru þó nokkrar og þar er hægt að finna eitthvað við allra hæfi. Tvær slóðir eru þar sem ég nefni Ferðir, þar er hægt að komast í ferðir um landið. Veit að Daníel Bergmann er upppantaður en á hans slóð eru líka ljósmyndir eftir hann og ég held ég ýki ekki með því að segja að hann sé með betri ljósmyndurum á landinu. Skrifað af Rikki R. 08.04.2008 11:48Málsháttur dagsinsDatt í hug þar sem málsháttur dagsins er "Minkar eru bestu skinn" að setja inn eina mynd. Þessi mynd af mink er tekin á Kópaskeri. Skrifað af Rikki R. 02.04.2008 22:59MerkisafmæliÞann 24. mars s.l. átti Elín Hanna merkisafmæli. Hún varð 10 ára gömul. Haldnar voru þrjár afmælisveislur. Fyrst var haldið fjölskylduafmæli, þann 16. mars. Næst var vinaafmæli þann 18. mars og að síðustu var skólasystraafmæli þann 28. mars. Setti inn albúm í tilefni afmælisins. Hér má sjá Elínu Hönnu afmælisbarn og Ólöfu Hildi stóru frænku.
Skrifað af Rikki R. 27.03.2008 10:56FjörulallarÞar sem ég sagði frá því að ég hefði tekið myndir af tveimur fjörulöllum þá ákvað ég að setja inn mynd hér. Hér má sjá Leif og Elínu Hönnu þar sem þau reyna að bjarga kastalanum með varnargarði. Sjá má hvernig til tókst, fleiri myndir í myndaalbúminu.
Skrifað af Rikki R. 26.03.2008 00:38Snæfellsnes um páskanaFórum á Snæfellsnesið um páskana. Náði nokkrum þokkalegum myndum af landslagi, fuglum og af Elínu Hönnu og Leifi Harðarsyni að leik í fjörunni. Myndirnar af þeim að leik má sjá í möppu sem ég kalla Fjöruferð á Snæfellsnesi.
Skrifað af Rikki R. 21.03.2008 01:02Fleiri álftir og stokkendurÉg hef fallið fyrir álftinni, það kemst nánast ekkert að nema að mynda álftina núna. Fór aftur að Bakkatjörn þann 19. mars og náði nokkrum myndum. Þarna var mikill fjöldi álfta og því gaman að taka myndir af þeim eins og þið getið séð. Til að þetta verði ekki einum og einhæft þá tek ég nokkrar myndir af stokköndum í leiðinni. Einn stokkandarkarlinn var nú frekar undarlegur á að líta, greinilegt að eitthvað vantaði í litinn á honum, á að vera með brúna bringu og hvítan hring um hálsinn. Skrifað af Rikki R. 18.03.2008 19:03Fleiri fuglar á BakkatjörnValdi nokkrar myndir í viðbót sem ég tók á Bakkatjörn. Þessi æðarbliki leitar að vatni. Virðist vera einn í heiminum. Skrifað af Rikki R. 18.03.2008 18:34Álftir á Bakkatjörn.Skrapp að Bakkatjörn á Seltjarnarnesi og tók nokkrar myndir af álftum. Setti nokkrar myndir inní fuglamöppuna. Hér má sjá eina sem ég heimfæri á veiðimenn og kalla hana því einfaldlega........Hann var svona stór.............alveg satt. Skrifað af Rikki R. 12.03.2008 17:06Vetur konungurTók nokkrar myndir við Kaldársel þann 08.03.2008. Eitthvað af þeim myndum má sjá í albúminu Vetarmyndir. Ein hér sem sýnir Helgafell í gegnum tré. Veðrið var einu orðisagt frábært. Skrifað af Rikki R. 11.03.2008 19:07Guðný Tómasdóttir, blessuð (fermd)Þann 09. mars 2008 tók ég það verkefni að mér að ljósmynda í blessun (fermingu) Guðnýar Tómasdóttur. Blessunin var haldin í Veginum og var mjög gaman að vera með í þessari athöfn. Þetta var dagurinn hennar Guðnýar og afraksturinn má sjá í myndaalbúmi merktu Guðnýju. Hér eru tvær myndir af fermingarbarninu. Skrifað af Rikki R. |
Málsháttur dagsins Svo flýgur hver fugl sem hann er fiðraður !clockhere Rikki R Nafn: Ríkarður RíkarðssonFarsími: 862 0591Tölvupóstfang: rikkirikka@gmail.comAfmælisdagur: 24. septemberHeimilisfang: Breiðvangi 3, 220 HafnarfjörðurStaðsetning: HafnarfjörðurHeimasími: 565 5191Um: Fæddur á Húsavík á því herrans ári 1961 og hef tekið ljósmyndir frá því ég var strákur. Aðaláhugamálið er að taka myndir af fuglum en þó mynda ég allt sem mig langar til að mynda eins og sjá má.Eldra efni
Tenglar
|
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is