Ljósmyndasíða Rikka Fuglar, gamlir bátar, mannlíf, íslensk náttúra eins og ég sé hana |
|
07.05.2009 20:47ÆðarfuglarNáði nokkrum myndum af æðarfuglum í Hafnarfjarðarhöfn 02.05.2009. Setti þær inn í fuglaalbúmið svo fyrir þá sem vilja þá eru þær þar. Hér koma tvö sýnishorn.
Skrifað af Rikki R. 29.04.2009 09:50Þorgeir GK 73Í Stykkishólmi er bátshræ við Landeyna, móti Skipavík. Þessi bátur hefur alltaf verið í miklu uppáhaldi hjá mér síðan ég fór að koma í Stykkishólm. Ég er reyndar ekki einn um að hafa þennan bát í uppáhaldi því gráhegrar venja komur sínar nokkuð reglulega í þennan bát. Ég hef reyndar ekki komið út í bátinn svo það hafa hegrarnir framyfir mig. Ég hef tekið nokkrar myndir af bátnum því mér finnst hann vera "myndvænn" þó í raun sé hann líti á þessum fallega stað. Ræddi við menn í Stykkishólmi m.a. Einar Karlsson, til að afla mér upplýsinga um bátinn. Báturinn mun hafa heitið Þorgeir og kom frá Sandgerði eða Grindavík. Þessi bátur kom í skiptum fyrir togara til Bæjarútgerðarinnar í Stykkishólmi. Þorgeir var aldrei gerður út frá Stykkishólmi en settur á legu á svonefndri Þembu þegar hann kom í Hólminn. Þaðan slitnaði hann svo upp í vondu veðri um 1980 og rak upp í Landeyna og hefur verið þar síðan. Þorgeir GK 73 ex Ingólfur GK 96, 222 TFQO Smíðaður í Hollandi 1925. Stál. 127 brl. 200 ha. Newburn díesel vél. Eigandi Ingólfshöfði h/f, Keflavík, frá 14. mars 1946. Skipið var selt 5. mars 1954 Guðvarði Vilmundarsyni, Vestmannaeyjum, Árna Vilmundarsyni, Keflavík, Erlendi Vilmundarsyni og Gísla Vilmundarsyni, Reykjavík, skipið hét Þorgeir GK 73. Selt 25. ágúst 1956 Stefáni Franklín, Reykjavík. 1961 var sett í skipið 400 ha. Paxmann díesel vél. 1963 var skipið endurmælt og mældist þá 137 brl. 16. mars 1963 var skráður eigandi Miðnes h/f, Sandgerði. 1963 var sett í skipið 380 ha. Caterpillar díesel vél. Eigandi frá 1970 var Útgerðarfélag Stykkishólms h/f, Stykkishólmi. Skipið var talið ónýtt og tekið af skrá 6. nóvember 1979. Upplýsingar: Íslensk skip, bók 1, bls. 201, Ingólfur GK 96. Smelltu HÉR og þú getur séð hvernig báturinn, Þorgeir GK 73, leit út þegar hann var í fullu fjöri. En í dag lítur hann svona út, myndvænn en líti í umhverfinu. Skrifað af Rikki R. 28.04.2009 22:00Fjólur í höfninni í StykkishólmiTók nokkrar myndir af bátum sem ég sá í Stykkishólmi um síðustu helgi. Hér eru tvær myndir, vill svo til að þeir heita báðir Fjóla. Fleiri myndir í albúminu Skip og bátar.
Skrifað af Rikki R. 28.04.2009 21:21LandslagÁ ferð minni heim úr Stykkishólmi sá ég þennan fjallstopp sem ég hef ekki hugmynd um hvað heitir. Fannst þessi fjallstoppur minna mig svolítið á drottningu íslenskra fjalla, Herðubreið. Ef þið þekkið þetta fjall þá endilega sendið mér línu.
Skrifað af Rikki R. 19.04.2009 12:21Fuglar við BakkatjörnSkrapp og kíkti á fugla við Bakkatjörn á Seltjarnarnesi. Tók þar nokkrar myndir sem sjá má í fuglamöppunni. Meðal annars eru þarna hringmáfar. Hér má sjá myndir af tveimur hringmáfum.
Skrifað af Rikki R. 19.04.2009 11:48Fagriklettur verður PolarisHér er mynd sem ég tók í gær 18.04.2009 og sýnir bátinn Polaris - 162. Neðri myndin er tekin 31.01.2009 af sama bát en þar heitir hann Fagriklettur HF 123 - 162. Í stuttu máli, Fagriklettur verður Polaris.
Skrifað af Rikki R. 19.04.2009 11:39Björgunarsveitin æfirÁ ferð minni um Hafnarfjörð í gær, 18. apríl, veitti ég athygli að í höfninni í Hafnarfirði var Björgunarveit Hafnarfjarðar við æfingar. Þarna var verið að kenna nýliðum að rétta við gúmmíbát sem hafði oltið. Krakkarnir veltu bátnum og réttu hann svo við aftur. Þetta gekk svona og svona. Setti albúm, Björgunasveit Hafnarfjarðar æfir. Hér má sjá þegar verið er að velta bátnum og leiðbeinendurnir stökkva í sjóinn. Báturinn á góðri leið með að velta.
Skrifað af Rikki R. 16.04.2009 00:18Vor í loftiÉg hef lítið verið á ferðinni undanfarið. Ég skrapp þó í Fossvogskirkjugarð annan í páskum. Þar er vor í lofti, mikill fuglasöngur og krókusar spretta sem aldrei fyrr. Hér er ein mynd hér af Baldvini Njálssyni GK 400 á leið inn í Hafnarfjarðarhöfn þann 11.04.2009.
Skrifað af Rikki R. 15.03.2009 21:50Svarthvítar myndirHér eru tvær svarthvítar myndir teknar 05.03.2009. Hesturinn er tekin rétt við Urriðakotsvatn og hin tekin, ja, nánast hvar sem er en ég smellti af þar sem ég stóð uppi í Heiðmörk. Skrifað af Rikki R. 15.03.2009 21:44Álft við ElliðavatnÞessi álft tók lífinu með ró og sólaði sig. Myndin er tekin við Elliðavatn að austanverðu, við brúna þegar ekið er inn í Heiðmörkina 28.02.2009. Fleiri myndir inn í Fugla-albúminu. Skrifað af Rikki R. 15.03.2009 21:36Úr ýmsum áttum.Þessar myndir hér að neðan eru teknar 28.02.2009 á ferð minni víða um höfuðborgarsvæðið. Fleiri myndir eru í albúminu Stór-Hafnarfjarðarsvæðið.
Skrifað af Rikki R. 15.03.2009 21:31Kafarar í ÓttarstaðavörÞann 07.03.2009 gengum við framá þrjá kafara í Óttarstaðavör við Straumsvík. Reyndar voru þetta kennari með tvo nema. Kennarinn er hér framstur á myndinni að stíga í land og nemarnir bíða þægir þar til kennarinn snér aftur og þá fóru þeir af stað.
Skrifað af Rikki R. 15.03.2009 21:21StraumurÍ tvígang hef ég farið að skoða bát sem er ekki langt frá Straumi n.t.t. við Glaumbæ. Þarna er um björgunarbát að ræða, yngri en þann sem ég hef þegar myndað við Elliðavatn. Þessi er talsvert heillegri. Þann 07.mars fórum við fjölskyldan í göngutúr þarna á svæðinu kringum Straum. Þarna er mikið að mynda og var ég búinn að kynna mér aðeins staðhætti með því að fara inn á www.ferlir.is en þar eru krot, frásagnir og ýmis fróðleikur af þessu svæði. Þetta höfðum við með okkur í þennan göngutúr okkar og gerði það ferðina á þessu svæði mun áhugaverðari. Setti inn slatta af myndum frá þessu svæði. Hér koma tvær myndir úr ferð fjölskyldunnar.
Skrifað af Rikki R. 02.03.2009 22:10Örkin hans Nóa?Þær upplýsingar sem ég hef fengið um bátinn sem ég spurði um væri að þetta væri björgunarbátur, ekkert ósvipaður og hafi verið á Titanic. Þá var einnig nefnt að þetta gæti jafnvel verið snurpari af nótabát. Setti inn talsvert fleiri myndir af bátnum við aðeins breyttar aðstæður, nú allt hvítt, nýtt albúm sem heitir Bátur við Elliðavatn. Snjómyndirnar teknar 28.02.2009 en hinar voru teknar 26.02.2009. Eins og fyrr segir er þessi bátur skammt frá Elliðavatni en talsvert uppi á landi. Við gerðumst svo grófir að telja þetta jafnvel vera örkina hans Nóa, á strandstað. Ja, hvað vitum við, fyrst Titanic var komið til sögunnar því þá ekki alveg eins Örkin? Skrifað af Rikki R. 01.03.2009 23:53BessastaðaalbúmÞá er komið inn sér albúm bara með myndum af Bessastöðum sem ég talaði um hér fyrir nokkru síða. Þegar ég skoða þetta þá má greinilega sjá að þetta er frekar einsleitt allt saman, nema helst veðrið, það er breytilegt. En sjón er sögu ríkari. Skrifað af Rikki R. |
Málsháttur dagsins Svo flýgur hver fugl sem hann er fiðraður !clockhere Rikki R Nafn: Ríkarður RíkarðssonFarsími: 862 0591Tölvupóstfang: rikkirikka@gmail.comAfmælisdagur: 24. septemberHeimilisfang: Breiðvangi 3, 220 HafnarfjörðurStaðsetning: HafnarfjörðurHeimasími: 565 5191Um: Fæddur á Húsavík á því herrans ári 1961 og hef tekið ljósmyndir frá því ég var strákur. Aðaláhugamálið er að taka myndir af fuglum en þó mynda ég allt sem mig langar til að mynda eins og sjá má.Eldra efni
Tenglar
|
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is