Ljósmyndasíða Rikka Fuglar, gamlir bátar, mannlíf, íslensk náttúra eins og ég sé hana |
|
20.11.2009 08:39HertrukkurHér má sjá mikinn trukk. Þessi hefur verið í Stykkishólmi og er eigandinn líklega þaðan. Ég gruflaði smá um hann þennan og svo er að sjá að hann hafi verið innfluttur. Hér má sjá helstu upplýsingar um trukkinn:
Skrifað af Rikki R. 20.11.2009 00:36ÖskudagurNú setti ég inn myndir sem ég hef verið að velta fyrir mér hvort ég ætti að setja inn eða ekki. Þetta eru myndir sem ég tók í vinnunni þ.e.a.s. á öskudaginn 2008 og 2009. Ég tók myndir af nánast öllum börnunum sem komu og sungu fyrir nammi. Set hér inn myndir af Elínu Hönnu í sínum búningi, 2008 var hún norn en 2009 var hún öskupoki. Elfa Dögg sá um að gera öskupokann en ég sá um að gera þennan krók sem er þarna.
Skrifað af Rikki R. 19.11.2009 23:59KrakkavarðaHér er mynd sem mig langaði að setja hérna inn en hún er tekin 23. maí 2009. Þarna eru þær frænkur Eva María sem er efst, Ólöf Hildur er í miðjunni og Elín Hanna er neðst í hrúgunni. Eva María og Ólög Hildur eru systur. Eins og sést á myndinni þá var ofsalega gaman hjá þeim frænkum.
Skrifað af Rikki R. 18.11.2009 09:48Dílaskarfar í sólsetriÁkvað að setja inn eina mynd til viðbótar af dílaskörfunum. Þarna spóka þeir sig í sólsetrinu þann 14. nóvember 2009 í Hafnarfirði. Myndin er tekin við norðurenda Herjólfsgötunnar fyrir þá sem þekkja til en þarna eru oft skarfar á skerjunum. Þessi mynd er alveg óunnin og kemur svona beint úr vélinni. Skrifað af Rikki R. 17.11.2009 23:25Bátar í höfnum höfuðborgarsvæðisinsTók nokkrar myndir af bátum í Reykjavíkurhöfn, Hafnarfjarðarhöfn og einn togari var í Kópavogshöfn. Slatti af myndum fór inn í albúmið skip og bátar.
Skrifað af Rikki R. 17.11.2009 23:16Sólsetur o.fl.Ég náði að taka nokkrar myndir þann 14. nóvember í Hafnarfjarðarhöfn af sólsetrinu. Sjón er sögu ríkari. Slatti af myndum voru settar inn í Íslandsmöppuna og Stór-Hafnarfjarðarsvæðið. Vona að þið hafið gaman af þessu þó svo mörgum finnist sólarlagsmyndir bannaðar. Það finnst mér hins vegar ekki, allar myndir eiga rétt á sér.
Skrifað af Rikki R. 11.11.2009 20:59ReykjavíkurhöfnSkrapp seinnipartinn í dag að Reykjavíkurhöfn. Þar var Júpíter nýkominn úr slipp og Álsey komin í slipp. Tók nokkrar myndir þó það væri farið að skyggja svolítið. Þið takið viljann fyrir verkið. Hér að neðan eru tvær myndir, önnur er tekin af Júpiter ÞH363 nýmáluðum og nýkomnum úr slipp. Neðri myndin er af varðskipinu Ægi og Baldri framan við nýju tónlistarhöllina sem er enn í smíðum. Fleiri myndir í albúmi.
Skrifað af Rikki R. 09.11.2009 16:18Nokkrir bátarHef lítið verið á ferðinni vegna veikinda. Þó náði ég að smella af einhverjum myndum af örfáum bátum í Hafnarfjarðarhöfn og Reykjavíkurhöfn.
Skrifað af Rikki R. 05.11.2009 00:23Ljósmyndaklúbbur Húsavíkur04. apríl 1993 var haldinn stofnfundur Ljósmyndaklúbbs Húsavíkur. Þetta byrjaði allt á því að ég og Haffi höfðum áhuga fyrir að stofna svona klúbb. Vorum báðir, ef ég man rétt, meðlimir í ÁLKA, Áhugaljósmyndaklúbbi Akureyrar. Mættum þar reglulega á fundi og höfðum gaman af. Til að gera langa sögu stutta þá var Ljósmyndaklúbbur Húsavíkur stofnaður. Stofnmeðlimir voru alls 24. 02. maí 1994 hafði meðlimum klúbbsins fjölgað í 47. Man ekki hver mesti fjöldi félagsmanna var en rámar í að þeir hafi verið eitthvað fleiri. Verkefni þessa klúbbs voru aðallega að sinna áhugamálum okkar þ.e. ljósmyndun. Gefið var úr fréttabréf, Ljósopið. Þá var farið í ljósmyndaferðir. Hef heyrt af því að svo gæti farið að klúbburinn yrði endurreistur. Vona ég að svo verði og mun ég taka þátt í því ef möguleiki er á. Ég hef verið að skanna nokkrar myndir inn og m.a. koma myndir af félagsfundi og úr einni ljósmyndaferð. Hér má sjá þrjár myndir, tvær þær fyrri eru úr ljósmyndaferð sem Ljósmyndaklúbbur Húsavíkur fór í og þriðja myndin er tekin á einum félagsfundinum, líklega ljólafundi miðað við kökurnar sem sjá má.
Skrifað af Rikki R. 29.10.2009 21:18Gleymdar myndir og svínaflensaNú er ekkert um myndatökur hjá mér enda karlinn kominn með þessa illræmdu svínaflensu. Lagðist s.l. mánudag og hef barist við hita og hósta síðan. Fékk niðurstöður í dag frá lækni að ég væri með svínaflensuna. En það þýðir ekkert að væla enda þessi síða ekki til að segja frá heilsufari mínu heldur að leyfa ykkur að skoða myndir.
Skrifað af Rikki R. 26.10.2009 21:21Bátar á HúsavíkJæja Haffi, fann nokkrar myndir af bátum fyrir þig og alla hina líka. En eins og þú veist þá eru þessar bátamyndir bara settar inn fyrir þig. Nei, án alls gríns þá setti ég nokkrar myndir inní bátaalbúmið. Hér má sjá tvær, myndin af Árna er skönnuð. Árið 2008 tók ég einhverjar myndir af bátunum á Húsavík og hafa þær ekki allar komið hér inn en nú gerði ég smá bót þar á. Njótið vel.
Skrifað af Rikki R. 26.10.2009 21:12Húsvíkingar fyrr og núÉg er alltaf að finna einhverjar myndir sem ég get sett inn í Húsvíkingar fyrr og nú, möppuna. Þarna fjölgar jafnt og þétt. Það er spurning hverjir eru komnir inn núna sem ekki hafa verið áður, kanski þú? Ég mun svo halda áfram að skanna inn gamlar myndir og setja þær inn hægt og rólega.
Skrifað af Rikki R. 25.10.2009 02:01Ein fyrir HaffaHaffi hér er ein frá því í gær. Sama kirkja en eins og þú sérð er þarna einn bátur. Eru þessir ekki kallaðir Færeyingar?
Skrifað af Rikki R. 25.10.2009 00:39Hús af ýmsum togaÉg kíkti smá hring í gær, 24. október. Fyrst keyrði ég í Þorbjörn en náði ekki að mynda neinn fuglinn þar en byrtan á orkuverinu var flott og smellti ég því myndum af orkuverinu úr Þorbirni. Á heimleiðinni ákvað ég að keyra Vatnsleysuströndina til baka. Þá var sólin kominn ansi neðarlega en mér fannst birtan flott. Smellti myndum af þessum eyðibýlum og kirkjunni. Myndirnar eru svolítið dökkar en þannig sá ég þetta og held að þessar myndir sýni vel hvernig birtan var á þessum tíma. Alla vegna er ég sáttur við útkomuna. Setti fleiri myndir inní Íslandsmöppuna.
Skrifað af Rikki R. 17.10.2009 22:37Húsvíkingar fyrr og núSetti myndir inn í albúmið Húsvíkingar fyrr og nú. Þessar myndir eru einhverjar í öðrum albúmum. Eins og áður þá eru þetta myndir af Húsvíkingum, fólki sem búið hefur á Húsavík eða jafnvel að foreldri/ar þeirra eru Húsvíkingar eða eiga ættir að rekja þangað.
Skrifað af Rikki R. |
Málsháttur dagsins Svo flýgur hver fugl sem hann er fiðraður !clockhere Rikki R Nafn: Ríkarður RíkarðssonFarsími: 862 0591Tölvupóstfang: rikkirikka@gmail.comAfmælisdagur: 24. septemberHeimilisfang: Breiðvangi 3, 220 HafnarfjörðurStaðsetning: HafnarfjörðurHeimasími: 565 5191Um: Fæddur á Húsavík á því herrans ári 1961 og hef tekið ljósmyndir frá því ég var strákur. Aðaláhugamálið er að taka myndir af fuglum en þó mynda ég allt sem mig langar til að mynda eins og sjá má.Eldra efni
Tenglar
|
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is