Ljósmyndasíða Rikka Fuglar, gamlir bátar, mannlíf, íslensk náttúra eins og ég sé hana |
|
20.06.2010 23:40Bryggjurúntur 20. júní 2010Kíkti á bryggjuna og tók einhverjar myndir m.a. þessar tvær hér. Mars og Hvalur 8 og 9. Birtan var ekki sérlega hagstæð. Fleiri myndir í albúmi.
Skrifað af Rikki R. 15.06.2010 22:41Meira frá sjómannadeginum í HafnarfirðiHér eru fleiri myndir frá sjómannadeginum í Hafnarfirði. Bætti inn nokkrum myndum í sjómannadagsalbúmið.
Skrifað af Rikki R. 15.06.2010 22:29Hvað nú?Hvað nú? Já, það er nú von að fólk spurji. Hér eru tvær myndir teknar við sjóinn. Reyndi að taka aðeins öðruvísi myndir við höfnina. Hvort það hefur tekist er nú ykkar að dæma en ekki mitt. Ég er þó tiltölulega sáttur við þessar tvær myndir.
Skrifað af Rikki R. 12.06.2010 01:26Hlíðsnes 11. júní 2010Ég kíkti út á Hlíðsnes og veitti athygli að sumar fuglategundir eru komnar með unga. Sá æðarfugl með nokkra unga og þá rakst ég á þennan stelksunga á hlaupum. Sá kríuegg en ekki sá ég neina unga hjá kríunni, ekki ennþá.
Skrifað af Rikki R. 12.06.2010 01:17Fleira í HafnarfjarðarhöfnFleiri bátar voru í Hafnarfjarðarhöfn heldur en MSC Poesia. Valþór var þarna, Hafdís líka og fleiri en myndir eru inní skip og bátar 2010. Ef vel er gáð þá má sjá ungan veiðimann við hlið Valþórs. Ég kíkti á veiðimanninn, eða réttara sagt veiðistúlkuna og afi hennar var með henni til að kenna henni réttu handtökinn. Þekkti afann, skrítinn karl.
Skrifað af Rikki R. 12.06.2010 01:07MSC PoesiaStærsta farþegaskip sem komið hefur til Hafnarfjarðar var við bryggju í gær, 11. júní 2010. MSC Poesia, 93.000 tonn, 300 metra langt, 11 hæðir, í áhöfn eru 960 manns og tekur mest 3013 farþega. Farþegafjöldi var um 2.400 manns. Meira um þessa heimsókn má lesa á vef Hafnarfjarðar, hér er slóðin beint á fréttina http://hafnarfjordur.is/hafnarfjordur/nanar_forsidu/?cat_id=3&ew_0_a_id=10530
Skrifað af Rikki R. 07.06.2010 00:41Meira um sjómannadaginn 2010Kíktum á sjómannadaginn í Hafnarfirði 06. júní 2010. Margt var um manninn og mikið að gerast. Ég mun setja fleiri myndir inn síðar. Mig langar hins vegar að setja hér inn myndir af því sem við sáum á Læknum í Hafnarfirði. Þar var hægleiksmaðurinn Erling Markús að sýna módelbáta sem hann hefur smíðað og sigldi þeim á Læknum. Ýmsir fengu að grípa í að sigla bátunum m.a. Elín Hanna og fórst henni það vel úr hendi. Bátarnir eru frábær smíði. Erling Markús var þarna með fjögur módel. Þrjú þeirra voru á floti en einn á "kajanum". Fleiri myndir má sjá í myndaalbúmi Sjómannadagurinn í Hafnarfirði 2010.
Skrifað af Rikki R. 06.06.2010 13:16SjómannadagurinnSjómenn, til hamingju með daginn.
Skrifað af Rikki R. 03.06.2010 21:33Bátakös í HafnarfjarðarhöfnHef alltaf jafn gaman að taka myndir af bátunum í Hafnarfjarðarhöfn. Sérstaklega ef birtan er góð þá tek ég gjarnan svona myndir þar sem er ein hrúga af bátum, eitt allsherjar kraðak. Nog var af bátunum í höfninni þennan sólríka dag. Svo fer ég út í að taka myndir af einum eða tveimur bátum saman.
Skrifað af Rikki R. 03.06.2010 21:22HvalveiðibátarFyrst ég nefndi hafnirnar í síðasta bloggi þá er ekki úr vegi að setja hér inn báta. Hvalveiðibátar eru af öllum stærðum og gerðum og misvel málaðir eins og sjá má hér að neðan. Ég ætla að leyfa mér að segja að eigendur Hrafnreyðar eigi bara eftir að klára að mála bátinn og þeir séu að klára það núna. Trúi ekki að þeir ætli að hafa bátinn svona.
Skrifað af Rikki R. 03.06.2010 21:08FjölskyldufréttirVið feðginin förum stundum í hjólatúra og þá er höfnin í þægilegri fjarlægð. Ég hef gömlu myndavélina yfirleitt meðferðis og stoppa annað slagði ef ég sé eitthvað markvert. Til stór-frænku minnar á Húsavík langar mig að segja að það er baksvipur með ykkur frænkunum:-) Nú styttist í skólaslitin hjá Elínu Hönnu og er þá sjötti bekkur á enda. Við foreldrarnir eru mjög stolt af hvernig henni hefur gengið í prófunum. Gamla settinu líður þokkalega fyrir utan að ég þurfti að láta klippa af mér hálfa tánögl af stórutá í dag og tek því rólega næstu daga, látum þetta gróa vel. Nóg af þessu. Hafið það öll sem best. Magga mín vildi ekki setja myndina af þér hér með Elínar Hönnu mynd, vildi ekki gera þér það. Fyrir ykkur hin þá er myndin í albúmi "Húsvíkingar fyrr og nú" :-)
Skrifað af Rikki R. 02.06.2010 08:04Ekki bara hvíttÞegar kíkt er á hafnir landsins eru flestir smábátarnir úr palsti. Flestir þessara plastbáta eru jafnframt hvítir. Hér eru þó þrír sem ég sá í Sandgerði og fannst þeir tilbreyting frá þessu hvíta. Óneitanlega fallegra að hafa lífið í lit.
Skrifað af Rikki R. 23.05.2010 22:27Fuglar við BakkatjörnÞað kemur fyrir að maður kemsti í færi við fugla. Einna besti staðurinn til að koma sér af stað er Bakkatjörn. Hér eru tvær en fleiri eru í albúmum, æðarfugl og heiðlóa.
Skrifað af Rikki R. 23.05.2010 22:21Á bryggjunniHef tekið nokkrar myndir af bátum sem eru í höfnunum hér á höfuðborgarsvæðinu. Myndir í albúmi.
Skrifað af Rikki R. |
Málsháttur dagsins Svo flýgur hver fugl sem hann er fiðraður !clockhere Rikki R Nafn: Ríkarður RíkarðssonFarsími: 862 0591Tölvupóstfang: rikkirikka@gmail.comAfmælisdagur: 24. septemberHeimilisfang: Breiðvangi 3, 220 HafnarfjörðurStaðsetning: HafnarfjörðurHeimasími: 565 5191Um: Fæddur á Húsavík á því herrans ári 1961 og hef tekið ljósmyndir frá því ég var strákur. Aðaláhugamálið er að taka myndir af fuglum en þó mynda ég allt sem mig langar til að mynda eins og sjá má.Eldra efni
Tenglar
|
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is