Ljósmyndasíða Rikka Fuglar, gamlir bátar, mannlíf, íslensk náttúra eins og ég sé hana |
|
05.09.2010 21:00Nýtt á síðunniHef verið með það í maganum í nokkurn tíma að setja inn tengla um gamla báta sem ég fjalla hér um. Þetta er gert til að sá sem hafi áhuga á þessu geti smellt á tengilinn og farið beint inná þessa umfjöllum og þaðan beint í ljósmyndasafn af þeim báti sem um er fjallað. Vona að þetta leggist vel í mannskapinn. Búinn að setja inn tvo núna, Kóp og Óla Sófus. Set líka inn slóð á tvær skrár sem eru þarna inni af Fleyg og Garðari. Er að vinna í að fá upplýsingar um ýmsa aðra báta. Þetta kemur allt í rólegheitunum.
Skrifað af Rikki R. 03.09.2010 22:03KópurKópur heitir hann. Sigrún Hrönn, tengdamömmusystir, veitti mér eftirfarandi upplýsingar og spurning hvort Sigurþór hafi ekki lagt eitthvað til líka. Alla vegna ætla ég að þakka þeim báðum fyrir upplýsingarnar. Gísli í Tröð í Eyrarsveit smíðaði Kóp fyrir Níels Breiðfjörð í Sellátrum 1917, eik og fura 0,75 brl. Sama ár fæddist Guðmundur Ó Bæringsson, tengdafaðir Sigrúnar Hrannar, en hann eignaðist síðar bátinn. Bæring Guðmundsson, lærður bátasmiður gerði Kóp upp fyrir nokkrum árum og er eigandi bátsins núna. Vélin í bátnum er 6-8 ha. Albin vél. Til gamans má geta þess að Kópur hefur fylgt fjölskyldu Guðmundar í gegnum tíðina og var hann mikið notaður við Þorvaldsey á Breiðafirði. Það þótti þægilegt að hafa bátinn við eyjarnar. Dýrðar fley segir Sigrún Hrönn og krökkunum þótti ekki slæmt ef færi gafst og Sigurþór setti upp seglin í góðum byr. Sigrún Hrönn getur þess að þetta sé skipið sem Sigurþór bauð henni í fyrstu dramasjóferðina um Breiðafjörðinn 1967. Fleiri myndir af bátnum eru í nýju myndaalbúmi sem ég kalla Kópur. Þar setti ég líka myndir sem Sigrún Hrönn sendi mér, vona að hún og þau séu sátt við það.
Skrifað af Rikki R. 03.09.2010 09:05Tom Sawyer í Flatey?Tvífari, hvað er það? Jú, er það ekki þegar einhver er nauðalíkur einhverjum. Það skyldi maður ætla að væri, eða er það að maður sér viðkomandi aðila og trúir því ekki og telur sér trú um að þetta sé tvífari hins? Alla vegna þá sá ég strák sem er alveg eins og Tom Sawyer og því til sönnunar ætla ég að fá lánaða mynd af netinu, teikningu af Tom Sawyer og svo myndina sem ég tók af honum. Tom Sawyer er reyndar skáldsagnarpersóna en það er hann Siggi ekki en eins og þið kanski sjáið þá eru þeir sláandi líkir.
Skrifað af Rikki R. 31.08.2010 23:31SkildustoppÁ leið um norðurlandið er skildustopp hjá mér, Námaskarð. Þar hef ég gaman af að leita eftir myndefni. Elínu Hönnu finnst lyktin vond og fór því ekki úr bílnum og Elfa Dögg ákvað að sitja líka í bílnum. Ég var því einn á ferð. Verð að viðurkenna að þegar ég koma að úrsýnispallinum þá var lyktin þar ógeðsleg. Það var ekki bara þessi hveralykt sem mér finnst ágæt heldur var kominn einhver viðbótarlykt sem ég áttaði mig ekki á. Datt helst í hug að einhverjar gastegundir væru þarna í bland við hveralyktina. Alla vegna, mér varð ekki meint af, held ég. Bætti myndum inn í myndaalbúmið Mývantssveit, fyrir ykkur sem hafið áhuga.
Skrifað af Rikki R. 31.08.2010 22:49Áááá SJÓÓÓÓÓHér eru þrjár bátamyndir sem ég tók í Stykkishólmi 4.-5. ágúst. Þarna er einn bátur á leið út á miðin, annar á leið inn til löndunar og sá þriðji er bundinn við bryggju. Veit ekki nafnið á þeim neðsta en ef einhver sem skoðar þetta getur frætt mig um það væri það vel þegið.
Skrifað af Rikki R. 29.08.2010 21:20Ísabella Embla SteinþórsdóttirFór í Garðakirkju í dag. Þar var þessi litla stúlka skírð, hún hlaut nafnið Ísabella Embla. Til hamingju með stúlkuna ykkar Steinþór og Tóta. Myndaalbúm komið inn.
Skrifað af Rikki R. 29.08.2010 21:00Hamar, Djúpivogur o.fl.Á leiðinni í Hamarsfjörðinn var m.a. komið við á Djúpavogi. Auðvitað var margt að sjá og talsvert af myndum var tekið. Setti inn myndaalbúm sem ég kalla Hamar, Djúpivogur og fl. þar er talsvert af myndum og endilega kíkið á þær.
Skrifað af Rikki R. 29.08.2010 11:1617.-18. júlí 2010Við fengum gest um miðjan júlí, þetta var Gunnsa systir mín og var hún hjá okkur í nokkra daga. Við skruppum í dagsferðir til að skoða okkur um. Laugardaginn 17. júlí ákváðum við að slást í för með vinum okkar frá Höfn. Þau voru á leið hinn víðfræða Gullna þríhyrning. Við ákváðum að fylgja með í þessa ferð og aupair stúlkan okkar, Gunnsa, fékk að koma með. Sunnudaginn 18. júlí var svo farið á ströndina. Þetta var ströndin neðan við Hafið Bláa en þar hittum við aðra vini okkar. Myndir af þessum ferðim okkar er að finna í sér albúmi. Hér má þó sjá smá sýnishorn.
Skrifað af Rikki R. 28.08.2010 01:28SkógarfossÞegar við vorum á heimleið um daginn, 15. ágúst í þoku og sudda komum við að Skógarfossi. Höfum heyrt að ár væru í vexti og tókum eftir því. Okkur langaði að sjá hvernig Skógarfoss kæmi út í þessum vatnavöxtum. Í mínum huga er þessi foss hvítfryssandi og hreinn. Hér má sjá tvær myndir af Skógarfossi. Önnur er eins og mér finnst hann eigi alltaf að vera hin er tekin núna í ágúst og sýnir hann brúnan af drullu og brúnfryssandi en ekki hvítfryssandi. Skógarfoss 09. júlí 2009 Skógarfoss 15. ágúst 2010 Skrifað af Rikki R. 28.08.2010 01:11Rjúpa, himbrimi, ritaEitthvað fellur nú alltaf eitthvað til af fuglum þegar maður er á ferð um landið. Hér eru þrjár tegundir. Rjúpan kom hlaupandi og stillti sér upp fyrir mig þegar ég stoppaði bílinn. Himbriminn var nú ekki alltof nálægt og kroppaði ég talsvert utanaf myndinni til að hún væri þó það sem hún er. Ritan hins vegar kom í mat sem gefin var í Flatey líkt og kríurnar en þarna sést hún með hluta úr flaki.
Skrifað af Rikki R. 27.08.2010 22:20Reykjavíkurhöfn 27.08.2010Átti leið um Reykjavíkurhöfn í dag. Þar voru Sigurður Ólafsson og Rifsnes nýskveraðir og glæsilegir. Annað sem bar fyrir augun var að verið var að sjósetja Bjargfugl. Fleiri bátar voru á ferðinni og í myndaalbúmi má sjá fleiri myndir.
Skrifað af Rikki R. 27.08.2010 13:52Elín Hanna á ferð um landiðÁ ferðalaginu í sumar var fyrirsætan mín auðvitað með í för þ.e. Elín Hanna. Í öllum okkar ferðum þá missi ég mig í myndatökum af hinu og þessu. Meirihluti mynda er af landslagi, húsum, bátum, fuglum og bara því sem mér finnst vera myndrænt og þá vilja stelpurnar mínar oft gleymast. Mér til sárabóta þá man ég stundum eftir að leyfa Elínu Hönnu og Elfu Dögg að vera með á einni og einni mynd. Það er svona algert must fyrir fjölskyldualbúmið. Hér koma nokkrar myndir af Elínu Hönnu á ýmsum stöðum í þessari ferð. Fleiri myndir eru til en þær eru ekki allar komnar inn á síðuna ennþá.
Skrifað af Rikki R. 26.08.2010 09:18Baldur tekur snúningÞegar ég var á Húsavík um daginn sá ég að Baldur var að koma inn í höfnina. Ég smelli nokkrum myndum af honum og þegar hann nálgast Hafnargarðinn svokallaða þá tók báturinn svona léttan danssnúning. Að því loknu hélt hann áfram inn í höfnina og lagðist að bryggju. Ekki veit ég hvað þetta var nema þá helst að skipperinn hafi séð ljósmyndarann og tekið danssnúning fyrir hann. (Haffi hann hefur haldið að þetta værir þú) Að sjálfsögðu tók ég myndir af bátnum í þessum snúningi og má sjá hluta þeirra hér og fleiri eru í myndaalbúmi http://rikkir.123.is/album/default.aspx?aid=186989 Held að þetta sé í fyrsta skipti sem ég næ mynd af bát frá öllum hliðum á sömu mínútunni! Snéri á punktinum eins og sagt er.
Skrifað af Rikki R. 24.08.2010 22:33Ferðamenn í FlateyHvað gera ferðamenn í Flatey? Þeir taka myndir. Mikið af ferðamönnum kemur í Flatey. Hópar af fólki kemur til að mynda fuglalífið og svo auðvitað húsin. Myndavélarnar og græurnar sem þessir aðilar eru með kosta enga smáaura. En það má þekkja íslendingana úr, alla vegna suma.
Skrifað af Rikki R. 24.08.2010 22:17Dúfunum gef.., neeeeii, kríunum gefiðÞegar ég var úti í Flatey á Breiðafirði fyrsta ágúst varð ég vitni af því að stúlka var að gefa kríum fisk líkt og hún væri að gefa dúfum. Mér þótti þetta undarlegt því kríurnar eru nú frekar árásagjarnar svona yfirleitt í Flatey. Greinilegt var á þessu að þær voru hreinlega að drepast úr hungri. Víða var farið að gefa kríum fisk og voru þær komnar um leið og einhver setti fisk út. Ég tók myndir af þessu því mér fannst þetta mjög sérstakt og vildi eiga þetta á mynd. Kannski er þetta ekkert sérstakt, en ég hef aldrei séð þetta áður. Þetta minnir mig á atvik sem ég sé alltaf eftir að hafa ekki myndað. Gerðist á Húsavík fyrir mörgum árum síðan, þegar ég bjó þar. Ég ók niður á bryggju til að kíkja eftir fuglum til að mynda. Ég sá ritu sitja á bryggjukantinum og stoppa bílinn minn þannig að ég geti tekið mynd út um farþegarúðuna. Færið var um 6 metrar. Þegar ég lyfti myndavélinni heyri ég og sé í speglinum að tveir strákguttar eru að koma til að veiða þarna. Ég hugsa sem svo að þeir fæli rituna upp og legg því myndavélina frá mér í sætið. Strákarnir koma og þegar þeir koma að vinstra afturhorni bifreiðarinnar þagna þeir. Þeir ganga að ritunni og setjast við hliðina á henni. Svo strúka þeir henni tvisvar sinnum og þá flaug hún á brott. Ég sat eins og asni með opinn munn og fylgdist með þessu. Kem alltaf til með að sjá eftir þessu og þetta er enn sárara þar sem ég hafði myndavélina með mér og við hendina tilbúna til að smella af. Sem sagt ég ætlaði ekki að missa af þessar stúlku gefa kríunum og hér má sjá myndir af því. Fleiri myndir svo í albúmi af þessu atviki. Læt myndirnar tala fyrir mig. Skrifað af Rikki R. |
Málsháttur dagsins Svo flýgur hver fugl sem hann er fiðraður !clockhere Rikki R Nafn: Ríkarður RíkarðssonFarsími: 862 0591Tölvupóstfang: rikkirikka@gmail.comAfmælisdagur: 24. septemberHeimilisfang: Breiðvangi 3, 220 HafnarfjörðurStaðsetning: HafnarfjörðurHeimasími: 565 5191Um: Fæddur á Húsavík á því herrans ári 1961 og hef tekið ljósmyndir frá því ég var strákur. Aðaláhugamálið er að taka myndir af fuglum en þó mynda ég allt sem mig langar til að mynda eins og sjá má.Eldra efni
Tenglar
|
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is