Ljósmyndasíða Rikka Fuglar, gamlir bátar, mannlíf, íslensk náttúra eins og ég sé hana |
|
21.08.2011 23:49Menningarnótt 2011Fjölskyldan skelti sér á menningarnótt í Reykjavík í gær, 20. ágúst 2011. Vorum mætt á Ingólfstorg á tónleika um kl. 20:30. Torgið var fullt af fólki og erfitt var að finna sér pláss til að ná einhverjum myndum af þessum tónlistargúrúum sem stíga áttu á svið. Fyrstur á svið eftir að við mættum á svæðið var Steindi jr. Dóttirin fýlaði hann en ég verð að viðurkenna að ég var ekki eins hrifinn. En það er nú bara svo. Næstur á svið var Bubbi sjálfur, hann var ok. Jet Black Joe stigu á sviðið og voru frábærir, næst var Ragnheiður Gröndal og fannst mér hún ekki alveg nógu góð þó frábær söngkona sé. Náði að komast að sviðinu, en ég hafði kosið að vera bara með 18-55 mm. linsuna og þurfti því að komast nær til að ná einhverjum myndum. Stjórnin var næst og náði vel til fólksins með Eurovison laginu sínu og Selma Björns tók við með sínu Eurolagi. Fólki líkaði þetta vel. Greifarinir náðu vel til fólksins meðal annars með frystikistulaginu, Ellen Kristjáns söng Angel og var það mjög vel gert. Þá var komið að tveimur af eldri kynslóðinni, Pámi Gunnarsson gerði nánast allt vitlaust þegar hann kom og næstur á eftir honum var Egill Ólafsson, þessir tveir gáfu ekkert eftir og voru langbestir að mér fannst af öllum sem á svið stigu. Páll Óskar kom á eftir þeim og hann var frábær en mér fannst Pálmi betri. Sálin hans Jóns míns var næst, alltaf traustir. Stebbi kallaði því næst á Eyva og sungu þeir Nínu við mikinn fögnuð áhorfenda. Eyvi kallaði því næst á Bó sjálfan og sungu þeir saman. Bó fékk síðan Siggu Beinteins með sér í eitt lag og svo bættust Páll Óskar og Pálmi við og þau fjögur kláruðu tónleikana. Mér fannst þessir tónleikar flottir og þakka kærlega fyrir mig. Setti inn nokkrar myndir frá þessu menningarkvöldi, þið getið smellt á efstu myndirnar og þá opnast menningarnæturalbúmið. Vonandi hafiði gaman af en þetta eru mikið myndir af þessum frægu sögvurum okkar.
Skrifað af Rikki R. 20.08.2011 15:24SvalanJón Ragnar mætti á Svölunni til að fylgja Hönnu ST á flot. Þá veiddi hann sér nokkra makríla og mynd tvö er hann að koma úr veiðiferðinni.
Skrifað af Rikki R. 20.08.2011 14:14Hanna ST 49 fór á flotKlukkan 11:07 í morgun var Hanna ST 49 sett á flot. Þá var búið að setja vélina í gang og prófa hana aðeins. Allt virtist í lagi, fyrir utan að eitt rör brotnaði en því var kippt í liðinn. Eftir að báturinn fór á flot var siglt inn um makrílstorfur og þá mættu tveir góðir á staðinn, Jón Ragnar á Svölunni og annar sem ég þekki engin deili á. Helstu niðurstöður eru þær að enginn leki fannst á Hönnu og því má líklega segja að viðgerðin hafi tekist mjög vel. Svo kipptur þeir honum upp aftur til að klára fíniseringar. Einhvern næstu daga mun síðan Hilmar fara með Hönnu sína norður í Gjögur. Hilmar til hamingju með Hönnuna þína. Glæsilegur bátur á sjó og ekki annað að sjá en nýja vélin komi til með að koma Hönnunni vel áfram. Nú hef ég fylgt Hönnu nokkurn tíma, frá 03. mars 2011 og er þetta fyrsti báturinn sem ég fylgi eftir þetta lengi og eina sem mér finnst vanta er að fara að Gjögri þegar Hanna er komin þangað og mynda hana þar. Þá yrði þetta fullkomnað held ég. Eftir því sem mér skildist á Hilmari þá er þetta um 13 mánaða tími sem þessi viðgerð tók, eða frá því Hanna kom á viðgerðarstað og þar til hún var sjósett í dag 20. ágúst 2011. Hér eru nokkrar myndir af Hönnu, margar fleiri myndir í albúmi og þá gæti ykkur þótt gaman að lesa dagbókina sem ég hélt á meðan ég fylgdist með Hönnu. Ef þið smellið á nafn Hönnu hér á hægri spássíðu þá fáiði upp dagbókina sem ég hélt.
Skrifað af Rikki R. 19.08.2011 20:37Fleiri bátarEitthvað af bátum festust á kubbinn hjá mér í sumar, þ.e. aðrir bátar en voru á Sail Húsavík. Hér eru þrjár en fleiri eru svo í albúmi.
Skemmtilegt nafn á þessum síðasta............................. Skrifað af Rikki R. 18.08.2011 22:15Flatey í gegnum netahringFékk þá flugu í höfuðið að taka myndir í gegnum netahring. Þessir netahringur er í rólu í Flatey og tók ég myndir í gegnum hann. Þá lenti ég í því að ég þurfti að hafa hringin úr fókus. Ég tók því á það ráð að mynda hringinn við bláan himinn, taka svo aðra mynd í gegnum hringinn af húsunum og þá var ég kominn með hvernig ég þurfti að klippa myndina til. Nú get ég sett hvaða hús inn í hringinn. Þið fyrirgefið línurnar en þær eiga ekki að vera, var ekki að hafa fyrir því að laga þetta þegar ég sá þetta.
Skrifað af Rikki R. 18.08.2011 00:57Hanna að verða klárNú styttist í að Hanna ST verði sett á flot. Hafliði Aðalsteins og Hilmar eru á fullu við að klára Hönnu og er á dagskránni að setja á flot n.k. laugardag 20. ágúst um kl. 10:00.
Skrifað af Rikki R. 18.08.2011 00:27Páll ÓskarPáll Óskar kom fram á dönskum dögum í Stykkishólmi. Alls kom hann fjórum sinnum fram þ.e. fyrst um miðjan dag þegar hann söng nokkur lög fyrir fólkið í sól og talsverðum vindi, þá var hann með ball fyrir 13-18 ára, næst söng hann eitt lag í brekkusöngnum rétt til að kvetja alla til að koma á ball 18 ára og eldri um miðnætti. Páll Óskar heillaði alla að deginum, alla vegna þá sem ég talaði við. Hér eru myndir af Páli Óskari í stuði.
Skrifað af Rikki R. 17.08.2011 09:22Fólk á mærudögumFólk á mærudögum skemmti sér konunglega held ég að megi segja. Sumir stigu á svið, aðrir létu fara vel um sig á pallinum heima hjá sér og fylgdust með brennunni, brottfluttir mættu líka til að hitta gamla kunningja, ættingja o.fl. og enn aðrir komu "bara" til að skemmta sér.
Skrifað af Rikki R. 17.08.2011 08:28Mærudagar á Húsavík 2011Er komin heim aftur og þá er hægt að byrja að henda inn myndum. Ég er enn að vinna upp myndir frá því fyrr í sumar en set svo inn á milli eitthvað sem ég hef verið að gera síðan t.d. danskir dagar í Stykkishólmi.
Skrifað af Rikki R. 04.08.2011 09:50Fleiri af minni gerðinniFleiri bátar af minni gerðinni voru á Sail Húsavík. Hér má sjá þrjá Íslendinga og einn Færeying. Á eftir að finna einhverjar upplýsingar um sumar þessara báta en ef þið smellið á myndirnar af Ólafi og Svölunni þá fáiði allar upplýsingar um þá sem ég veit núna, hinir eiga eftir að koma síðar. Magnus á Oyri kom með Kútter Johönnu frá Færeyjum á Sail Húsavík.
Skrifað af Rikki R. 04.08.2011 09:33MS SjökursEitt af stóru skipunum á Sail Húsavík var MS Sjökurs. Stórt farþegaskip svipað og Gullfoss okkar Íslendinga var. Varðandi helstu upplýsingar um skipið þá setti ég hér inn það sem stóð á vef Sail Húsavík http://www.sailhusavik.is/islenska-2/batar-sem-taka-thatt-i-sail-husavik/ms-sjokurs/ MS Sjökurs tilheyrir svokölluðum klassískum skipum í Noregi sem voru byggð um miðja 20. öldina, en þau eru tvö, Sjökurs og systurskipið MS Nordstjernen sem einnig er í notkun. Skipin voru smíðuð Í Hamborg 1956 fyrir Hurtigruta skipafélagið sem sér um samgöngur á sjó eftir endilangri strönd Noregs. MS Sjökurs hét þá öðru nafni, Ragnvald Jarl. Skipið er nú skólaskip gert út frá Kristiansand. Það sem er sérlega áhugavert fyrir Íslendinga er að þarna er skip sem líkist MS Gullfossi, sem var okkar eina farþegaskip um árabil þ.e. frá 1950 til 1972. Það var byggt árið 1950 í Kaupmannahöfn og var heldur stærra og var með bæði fram- og afturlest sem varð til þess að farþegarými var ekki samfellt. Káetur Gullfoss höfðu ekki sér snyrtingu nema ein. Sjökurs og Nordstjernen eru hinsvegar aðeins með framlest þannig að farþegarými er samfellt frá brú og aftur í skut og flestar káetur eru með sér snyrtingu og sturtu. Segja má að þannig hefði Gullfoss átt að vera en öll skipin eru áþekk til að sjá. Systurskipið MS Nordstjernen er nú með vinsælustu skipum Hurtigruta fyrirtækisins og er mest notað í ferðir til Svalbarða og Grænlands. Tæknilegar upplýsingar:
Skrifað af Rikki R. 03.08.2011 23:57Fleiri myndir frá Sail HúsavíkHér koma svona meira yfirlitsmyndir af bátum sem voru á Sail Húsavík og einnig smá öðruvísi myndir líka. Svona var stemningin þriðjudaginn 19. júlí, sól og algert logn og ég reyndi að ná þessu á mynd. Vona að þið hafið gaman af. Fleiri myndir í myndaalbúmi Sail Húsavík.
Skrifað af Rikki R. 03.08.2011 23:45Fleiri bátar frá Sail HúsavíkÞá eru það hluti af minni bátunum sem voru á Sail Húsavík. Setti inn slatta af myndum og svo mun ég reyna að gera hverjum og einum smá skil síðar. Hér má sjá nokkra af minni bátunum, kem með fleiri síðar.
Skrifað af Rikki R. 03.08.2011 01:00Ólafur frá HvallátrumÓlafur frá Hvallátrum var smíðaður 1948 af Aðalsteini Aðalsteinssyni í Hvallátrum fyrir Jón Daníelsson bónda í Hvallátrum á Breiðafirði. Báturinn var notaður við selveiðar, æðardúntekju og önnur verkefni tilheyrandi eyjabúskap í 52 ár. Ólafur var smíðaður upp af Aðalsteini og Hafliða Aðalsteinssyni veturinn 2001-2002. Skrifað af Rikki R. 03.08.2011 00:39Húsvískar útgerðir undir norsku flaggiJá, ekki ber á öðru en að nokkrar húsvískar útgerðir séu undir norsku flaggi. Heya Norge! Myndin er tekin á Sail Húsavík 2011.
Skrifað af Rikki R. |
Málsháttur dagsins Svo flýgur hver fugl sem hann er fiðraður !clockhere Rikki R Nafn: Ríkarður RíkarðssonFarsími: 862 0591Tölvupóstfang: rikkirikka@gmail.comAfmælisdagur: 24. septemberHeimilisfang: Breiðvangi 3, 220 HafnarfjörðurStaðsetning: HafnarfjörðurHeimasími: 565 5191Um: Fæddur á Húsavík á því herrans ári 1961 og hef tekið ljósmyndir frá því ég var strákur. Aðaláhugamálið er að taka myndir af fuglum en þó mynda ég allt sem mig langar til að mynda eins og sjá má.Eldra efni
Tenglar
|
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is