Ljósmyndasíða Rikka Fuglar, gamlir bátar, mannlíf, íslensk náttúra eins og ég sé hana |
|
27.04.2012 21:46Hvort viljum við sjá?Hér á undan setti ég inn myndir af þremur bátum, Karli Þór SH, Díönu prinsessu og Öldu SH. Allir eru þessir bátar uppi á landi og hafa verið þar í nokkur ár. Nú velti ég því fyrir mér hvort þeir eigi nokkur tíma eftir að fara á sjóinn aftur. Mín skoðun er að eigi þeir einhver tíma eftir að fara á flot þá þarf það að gerast fljótlega, ekki eftir 1-2 ár heldur á þessu ári. En hvað veit ég svosem? Ég get þó haft skoðun á því að mér finnist þetta vera synd og skömm. Á myndunum hér að neðan eru tveir bátar, annar gróinn og hinn gamalgróinn..................fiskibátur. Hvort viljum við sjá?
Skrifað af Rikki R. 27.04.2012 21:39Karl Þór SH 1106655 Karl Þór SH 110 Smíðaður í Stykkishólmi 1985. Eik og fura. 5,92 brl. 116 ha. GM vél. Eigandi Helgi Eiríksson og Eiríkur Helgason Stykkishólmi frá 1. nóvember 1985. Báturinn er skráður í Stykkishólmi 1997. Í dag stendur þessi bátur uppi á landi við Skipavík í Stykkishólmi. Spurning hvort þessi fari einhvern tíma aftur á flot. Upplýsingar: Íslensk skip, bátar, bók 3, bls. 157. Skrifað af Rikki R. 27.04.2012 21:26Díana prinsessa5868 Díana prinsessa SH 696 ex Mardís ÞH 151 Smíðaður á Akureyri 1977. Eik og fura. 3.51 brl. 44 ha. Lister vél. Eigandi Árni Sigurðsson Húsavík frá 27. október 1977. Frá 16. febrúar 1983 hét báturinn Stefán ÞH 136, sami eigandi. Báturinn var seldur 25. apríl 1983 Sæmundi Ólasyni, Hafnarfirði, hét Kristján EA 104, skáður í Grímsey, hét Díana EA 104. Frá 24. september 1991 er skráður eigandi bátsins Sigurbjörg sf. Grund, Grímsey, sama nafn og númer. Seldur 5. maí 1995 Stykki hf. Stykkishólmi. Báturinn heitir Díana prinsessa SH 696 og er skráður í Stykkishólmi 1997. Í upphafi var báturinn afturbyggður en í dag er hann frambyggður. Í dag stendur þessi bátur uppi á landi við Skipavík í Stykkishólmi og spurning hvort dagar hans séu taldir, fari aldrei aftur á sjóinn. Upplýsingar: Íslensk skip, bátar, bók 4, bls. 145. - Mardís ÞH 151 Skrifað af Rikki R. 27.04.2012 21:09Alda SH 2206320 Alda SH 220 Smíðaður í Stykkishólmi 1982. Eik og fura. 4.22 brl. 45 ha. BMW vél. Eigandi Gissur Tryggvason og Sigurþór Guðmundsson Stykkishólmi, frá 26. apríl 1982. Þeir seldu bátinn 11. apríl 1987 Ólafi Steinþórssyni, Hjarðardal og Guðmundi Steinþórssyni, Ytri-Lambadal, Mýrarhreppi, hét Alda ÍS 26, en 7. júlí 1988 var umdæmisstöfum bátsins breyt. Báturinn heitir Alda ÍS 191 og er skráður á Þingeyri 1997. Í dag stendur báturinn uppi á landi við Skipavík í Stykkishólmi og grotnar niður. Veit ekki um eigendur bátsins í dag. Upplýsingar: Íslensk skip, bátar, bók 3, bls. 130. Skrifað af Rikki R. 27.04.2012 21:00Heppinn SH 476457 Heppinn SH 47 Smíðaður í Stykkishólmi 1983. Eik og fura. 2,52 brl. 30 ha. BMW vél. Eigandi Einar Karlsson Stykkishólmi frá 14. maí 1983. Skrifað af Rikki R. 26.04.2012 21:51Fuglar 25. apríl 2012Kíkti eftir fuglum við Bakkatjörn í gærkveldi (25.apríl 2012). Sólin var á hraðri niðurleið en ég smelldi nokkrum myndum. Tók nokkrar myndir sem ég taldi mig vera þokkalega sáttan við en ég er enn að reyna að ná tökum á tvöfaldaranum og myndirnar því ekki alltaf 100% í fókus en ég held að þessar sleppi svona 75%. Hér eru nokkrar myndir.
Skrifað af Rikki R. 23.04.2012 12:49Gert klárt á veiðar í StykkishólmiÞessi var að gera bátinn sinn kláran fyrir sumarið. Hvort það eru strandveiðarnar eða hvað veit ég ekki. Alla vegna er verið að gera bátinn fínan fyrir sumarið.
Skrifað af Rikki R. 23.04.2012 12:02DæluhúsiðÞetta dæluhús myndaði ég á leiðinni heim þann 22. apríl. Þegar nær var komið þá sá ég þennan líka flotta tréstokk. Þetta dæluhús er rétt hjá bæjunum Borg og Minni Borg. Dæluhúsið stendur við Kleifá. Þegar ég sá þennan stað í þessari ferð þá var það birtan sem heillaði mig. Allir þessu brúnu tónar sem spiluðu saman, sólin lágt á lofti, allt passaði flott saman fannst mér. Hér má sjá myndir af dæluhúsinu.
Skrifað af Rikki R. 23.04.2012 11:57StykkishólmurÉg var staddur í Stykkishólmi um síðustu helgi og lyfti myndavélinni nokkrum sinnum. Ég náði nokkrum bátum á kubbinn og hér má sjá nokkrar þeirra og fleiri eru í albúmi.
Skrifað af Rikki R. 17.04.2012 00:08SjósportHef alltaf gaman af að mynda þessa sem eru að stunda eitthvert sjósportið. Ég rakst á tvo sem voru við Hlíðsnesið með drekana sína. Þetta voru Hjörtur og Geir en ég hef nokkrum sinnum rekist á þá áður. Auðvitað var ekki annað hægt en að taka nokkrar myndir af þeim. Hér eru nokkrar myndir og svo er mikið fleiri í albúmi. Smellið á mynd og þá sjáiði allar myndirnar. Geir á fullri ferð, 15. apríl 2012 Hjörtur á flugi, 15. apríl 2012 Geir og drekinn, 15. apríl 2012 Hjörtur og drekinn, 15. apríl 2012 Skrifað af Rikki R. 16.04.2012 23:21Annar óþekktur í GrundarfirðiÞessi var í malarnámu í Grundarfirði. Veit ekkert um hann ennþá en vonandi er einhver þarna úti sem getur hjálpað mér. Þessi var með húsi en það er brotið af, eða hefur verið rifið. Meira síðar....................................hjálp! Í malarnámu í Grundarfirði, 07. apríl 2012 Skrifað af Rikki R. 16.04.2012 23:13Hver er báturinn?Myndaði þennan við bryggju í Grundarfirði. Veit ekkert um hann en vonast til að einhver sem les þetta geti hjálpað mér. Meira síðar...........................hjálp! Í Grundarfirði 07. apríl 2012 Skrifað af Rikki R. 16.04.2012 22:48Gustur SH 115714 Gustur SH 11 Smíðaður í Hafnarfirði 1976. Eik og fura. 5,07 brl. 50 ha. Tempest B.M.C. vél árg. 1975. Báturinn hét Gylfi BA 18. Eigandi Númi Einarsson Patreksfirði, frá 2. febrúar 1976. Númi seldi bátinn 6. janúar 1985 Aðalsteini G. Þ. Gíslasýni, Patreksfirði, sama nafn og núemr. Seldur 24. október 1990 Erling Ormssyni, Hafnarfirði, hét Gylfi GK 176. Seldur 22. ágúst 1991 Karli K. Þórðarsyni, Bessastaðahreppi, hét Gylfi HF 63. Seldur 17. desember 1996 Sæmundi Þórðarsyni á Stóru-Vatnsleysu. Báturinn heir Gullskór GK 160 og er skráður á Stóru-Vatnsleyfu 1997. Þó get ég séð á mynd að báturinn bar númerið SH 117 skv. ljósmynd hjá Arnbirni Eiríkssyni. Í dag, 07. apríl 2012 heitir báturinn Gustur SH 11 og er verið að lagfæra hann í Grundarfirði. Búið er að negla hann eitthvað upp svo eitthvað sé nefnt. Meira síðar......................... 5714 Gustur SH 11 í Grundarfirði, 07. apríl 2012 Skrifað af Rikki R. 16.04.2012 22:331260 Ágúst RE 611260 Ágúst RE 61, netabátur smíðaður 1972 hjá Byggingarfélaginu Bergi hf á Siglufirði úr furu og eik, 15 brúttótonn. Er með Powermarine vél, 108 hestafla. Ágúst var smíðaður fyrir Vilberg Stefánsson á Stöðvarfirði sem átti bátinn í fjögur ár. Fyrri nöfn: Jóhann Pálsson SU 30 en frá 1976 Ágúst RE 61. 1260 Ágúst RE 61. Grandagarður 28. febrúar 2009 1260 Ágúst RE 61. Grandagarður 8. nóvember 2009 16. apríl 2012. Núverandi eigendur eru Sigurjón og Elmar Sigurðsson en þeir keyptu bátinn í janúar 2012 af fyrirtækinu Manus ehf á Eyrarbakka. Báturinn mun áfram heita Ágúst RE 61. Sigurjón kvað þá ætla að fara á strandveiðar í næsta mánuði og nú væri unnið á fullu í að koma bátnum í stand. Báturinn hefur staðið á landi í 5 ár og hefði ekki mátt standa eitt árið ennþá að sögn Sigurjóns. Það sem þó hafi líklega bjargað bátnum var að málningin var skafin af. Búið er að skipa um eitt borð í skrokknum og gæti þurft að skipta um tvö önnur borð. Þá á að öxuldraga og koma vélinni í gang, en þegar báturinn fór á land fyrir fimm árum þá var vélin í lagi. Hún hefur ekki verið sett í gang síðan en hún snýst. Eitthvað þarf þó að gera áður en hún verður sett í gang, skipta um spíssa og fleira. Sigurjón kvað þá búna að mála nánast að ofan en skrokkurinn væri allur eftir og rekkverkið. Það væri búið að merkja aðra hliðina, Ágúst RE 61, en hin yrði merkt á morgun.
Sigurjón sagði þetta líklega vera einn mest ljósmyndaða bátinn ef ekki þann mest myndaða. Það væru til myndir af honum um allan heim. Það væri ekki sá ferðamaður sem labbaði framhjá Ágústi, þeir stoppa allir og taka myndir af honum. Nú er það spurning hvort fyrirsætan fái sömu athygli þegar búið verður að mála hana:-)
Alla vegna er ég ánægður með að nú er verið að gera bátinn upp og hann fer aftur í notkun. Nú er að drífa sig að mynda bátinn svo hægt sé að sjá breytingarnar. 17.04.2012 kíkti snöggt á Ágúst. Byrjað er að mála hann og strax sér maður breytinguna. Nú verður bara spurningin hvernig báturinn verður á litinn? Fleiri myndir í albúmi. Smellið á myndirnar. 1260 Ágúst RE 61. Grandagarður 17. apríl 2012 19.04.2012. Nú er liturinn að koma á Ágúst RE 61. Grænn skal hann vera. Allt er vænt sem vel er grænt, stendur einhversstaðar. Sýnist Ágúst koma til meða að líta vel út svona grænn.
Skrifað af Rikki R. 15.04.2012 16:07Hrísey SH 148Hrísey SH 148 ex Litli Vinur SH 194 Smíðaður í Stykkishólmi 1976. Eik og fura. 2,7 brl. 10 ha. SABB vél. Hét Litli Vinur SH 194. Eigandi Aðalsteinn Sigurðsson, Stykkishólmi frá 8. september 1976. Aðalsteinn seldi bátinn 25. október 1976 sigurði Sörenssyni, Stykkishólmi, hét Litli Vinur SH 49. Seldur 1. júlí 1981 Kristjáni Sæmundssyni, Teigi, Hvammssveit, hét Litli Vinur SH 6. Seldur 1. mars 1983 Sigurði Sörenssyni Stykkishólmi. Seldur 14. apríl 1987 Jóni Guðmundssyni, Stykkishólmi. Báturinn heitir Hrísey SH 148 og er skráður í Stykkishólmi 1997. 07. apríl 2012 er báturinn í malargryfju í Grundarfirði og farinn að láta nokkuð á sjá. Verður líkast til aldrei neitt meira úr honum en ég hef svo sem ekkert vita á þessu en þetta er mitt "faglega álit" þó það sé ekkert. Það væri mikil synd ef þetta er rétt hjá mér. Upplýsingar: Íslensk skip, bátar, hefti 3 bls. 162, Litli Vinur SH 194 5738. Skrifað af Rikki R. |
Málsháttur dagsins Svo flýgur hver fugl sem hann er fiðraður !clockhere Rikki R Nafn: Ríkarður RíkarðssonFarsími: 862 0591Tölvupóstfang: rikkirikka@gmail.comAfmælisdagur: 24. septemberHeimilisfang: Breiðvangi 3, 220 HafnarfjörðurStaðsetning: HafnarfjörðurHeimasími: 565 5191Um: Fæddur á Húsavík á því herrans ári 1961 og hef tekið ljósmyndir frá því ég var strákur. Aðaláhugamálið er að taka myndir af fuglum en þó mynda ég allt sem mig langar til að mynda eins og sjá má.Eldra efni
Tenglar
|
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is