Ljósmyndasíða Rikka Fuglar, gamlir bátar, mannlíf, íslensk náttúra eins og ég sé hana |
|
Færslur: 2012 Maí31.05.2012 12:57Meira frá SnæfellsnesiÉg ferð minni um Snæfellsnes datt ég um ýmislegt sem ég myndaði. Hér eru tvær svona myndir. Fyrri myndin er af gömlu hjóli, ryðguðu og flottu. Ég reisti það upp við Fögruhlíð til að taka mynd af því. Hin myndin er af "korkkúlu" með nót yfir. Svolítið föl mynd en samt..............
Skrifað af Rikki R. 30.05.2012 21:55Vera Rut SH5467 Vera Rut ex Fáfnir ÞH 79 Smíðaður af Sigurgeir Svavari Þorsteinssyni skipasmið á Akureyr árið 1961. Fura og eik. 4,26 brl. Frambyggður súðbyrðingur. 33 ha. Sabb vél. Smíðaður fyrir Helga F. Magnússon og Ingvar Ingvarsson, Þórshöfn, þeir fengu bátinn 11. mars 1961 og áttu bátinn í eitt ár. Þeir seldu bátinn 16. ágúst Haraldi Magnússyni Þórshöfn. Seldur 20. maí 1964 Gunnari Guðmundssyni, Þórshöfn. Seldur 26. mars 1984 Steinunni Björgu Björnsdóttur, Þórshöfn, hét hann Sveinbjörn ÞH 79, Þórshöfn. Seldur 28. mars 1990 Halldóri Karel Jakobssyni, Þórshöfn, hét Silla Halldórs ÞH 79, Þórshöfn; frá 2001 Silla Halldórs ÞH 179, Þórshöfn og á sama ári Vera RE 113 Reykjavík. Frá og með árinu 2001 hét báturinn Vera Rut SH 193, Ólafsvík en 30. desember 2010 var hann strikaður af skipaskrá samkvæmt 15. grein laga nr. 1. 115 árið 1985. Þann 18. maí 2012 rakst ég á bátinn í gryfju við Rif á Snæfellsnesi. Held að það þurfi ekki mikinn speking til að sjá að þessi bátur er ónýtur. Tel betra að rífa hann og grafa heldur en láta hann grotna niður eins og hann gerir núna. Upplýsingar: íslensk skip, bátar, bók 4, bls. 121, Fáfnir ÞH 79. www.aba.is http://aba.is/?modID=1&id=44&vId=75
Skrifað af Rikki R. 25.05.2012 23:12TröllkerlingVið Íslendingar höfum alist upp með sögum af tröllum og tröllkerlingum. Ég rakst á eina tröllkerlingu á Snæfellsnesinu en það er ekki kerlingin í Kerlingarskarði. Hér eru myndir af henni sem ég náði. Hún hefur sest niður við lækjarsprænu, þreytt á ferðalagi sínu og líkast til sofnað. Ég held hún verði hissa þegar hún vaknar og áttar sig á að hún er orðin að steini:)
Skrifað af Rikki R. 25.05.2012 19:58Farmall D-217Inni í eyðibýli var þessum McCormick International Farmall D-217 parkerað inni í stofu. Húsið er opið núna og hesta leita þar skjóls m.a. við þennan Farmall. Mér skilst að þegar Farmallnum var komið þarna fyrir var hann í fullkomnu lagi. Ég er nú ekki viss um að sú sé reyndin í dag.
Skrifað af Rikki R. 25.05.2012 19:49TrabantÞessi Trabant er búinn að vera í gömlum fjárhúsum móts við bæinn Tröð þar sem við eyddum nokkrum dögum um daginn. Ég tók myndir af þessum sama bíl fyrir nokkrum árum en nú hafa einhverjir látið verða af því að brjóta allt og bramla. Til hvers að skemma þennan bíl sem er ekki fyrir neinum.
Skrifað af Rikki R. 23.05.2012 22:17BlærÞað var Björn Jóhannsson Arney sem smíðaði bátinn, ekki vitað hvaða ár. Sabb vél, einsstrokka, tæplega 6 metra langur. Báturinn hét Sæsteinn áður en hann fékk nafnið Blær. Eigendasaga: Vantar mikið í þessa sögu og nöfn manna. ???????????? Jakob Kristinn Gestsson frá Hrappsey, kallaður Diddó. Faðir hans var Arelíus Gestur Sólbjartarson frá Bjarneyjum á Breiðafirði. Samkvæmt upplýsingum frá Jakobi Jakobssyni þá man hann ekki hvernig Sæsteinn kom til. ....? Jakob Pálsson Hamri og Hörður Sveinsson Ynnri Múla kaupa bátinn, sem hét Sæsteinn, í kringum 1996 og áttu hann í tvö ár. Keyptu bátinn frá manni í Stykkishólmi en þá hafði báturinn verið búinn að standa eitthvað. Þeir ætluðu sér í upphafi að setja bátinn á flot en var ráðlagt að gera það ekki. Þegar þeir setja svo á flot þá náttúrulega lak báturinn en þétti sig og þeir hafi notað bátinn sér til ánægu. Seldu mönnum frá Ísafirði bátinn í kringum 1998. Gunnlaugur Valdimarsson og Halldór Sigurgeirsson kaupa bátinn af tveimur strákum frá Hamri, (Jakob og Hörður) sem er milli Haga og Brjánslækjar, á árabilinu 1995-1998. Þannig hafi verið að þessir strákar keyptu bátinn og gerðu hann út á grásleppu. Þeir hafi keypt bátinn af Diddó í Hrappsey, en Diddó er sonur Gestar Sólbjartarsonar. Að lokinni grásleppuvertíð hafi strákarnir ætlað að taka bátinn í land. Þeir settu tóg í stefni bátsins og þegar togað hafi verið í hafi það rifnað af. Þannig var ástand bátsins þegar Gulli og Halldór keyptu hann. Gulli sagði að þeir hafi gert bátinn upp. Þegar þeir keyptu bátinn hét hann Sæsteinn og þegar hann seldi bátinn suður á Álftanes þá hafi hann borið sama nafn. Jörfi á Álftanesi????? Árni Vill kaupir hann frá Álftanesi af einhverjum ljósmyndara var mér sagt. Akranesstrákur???? Marel Einarsson kaupir bátinn af strák á Akranesi. Marel á bátinn frá 2003/4-2007. Selur Herði Jónssyni bátinn. Hörður á bátinn í eitt ár, frá 2007-2008. Hörður selur Friðgeiri Sörlasyni bátinn sem á hann árið 2009. Friðgeir selur síðan einhverjum manni í Mosfellsbæ bátinn. (hugsanlega Guðlaugur Jörundsson) Þann 20. maí 2011 er eigandi bátsins Guðlaugur Jörundsson. Hann auglýsir bátinn til sölu á facebook síðu Súðbyrðingur. Þann 09. október 2011 er búið að selja bátinn til Hafnar í Hornafirði en hann stendur á athafnasvæði Snarfara. Það var Lárus Óskarsson sem keypti bátinn og flutti hann til Hafnar. Lárus ætlaði að gera eitthvað fyrir bátinn en ekkert varð af því. Báturinn hafði því drabbast niður. Í mars 2012 kaupir Garðar bátinn. Hann skiptir um nafn og nú heitir báturinn Alda, eftir fyrri bát sem Garðar átti til fjölda ára. Garðar hefur verið að taka bátinn í gegn og vonast til að koma Öldunni á flot í sumar. M.a. hefur Garðar verið að skipta út saumi og lagfæra tréverk, þar á meðal ónýt bönd í skrokknum og á enn eftir að skipta út fleiri böndum. Báturinn er þó að verða sjóklár. Garðar er að taka upp vélina því hún blæs út með heddinu og hann reiknar með að það sé nóg að taka það upp og skipta um pakkningu og þá verði vélin klár. Garðar vonast til að koma bátnum á flot í júní eða júlí, vill að hann þétti sig áður en hann hefst handa við meiri skrokkviðgerðir. 22. desember 2014. Nú er þessi bátur kominn aftur til Húsavíkur þeir bræður mínir Ægir og Viðar voru að koma með hann norður, það er örugglega rétt hjá Adda hann er ekki smíðaður á Húsavík. Meira síðar.......................... Ég á mikið verk óunnið við að finna sögu þessa báts en þetta kemur í rólegheitum, vonandi alla vegna. Ef einhver les þetta hrafnaspark og getur bætt við þetta sem komið er endilega senda mér línu.
Skrifað af Rikki R. 22.05.2012 22:24Á SnæfellsnesiÞað er fallegt á Snæfellsnesinu og ég tók nokkrar myndir umfram bátamyndir. Mun setja inn myndir úr þessari ferð á Snæfellsnesið eftir því sem mér finnst henta. Það var fallegt veður í þessari ferð eins og sjá má á þessum myndum.
Skrifað af Rikki R. 22.05.2012 21:15Fróði HF 47Fróði HF 47 - 7044 Smíðaður af Eyjólfi Einarssyni í Hafnarfirði 1988. Eik og fura. 9,22 brl. 65 ha. Sabb vél. Eigandi Grímur Ársælsson og Stefán Steinar Benediktsson, Hafnarfirði, frá 24. mars 1988. Þegar ég var að leita upplýsinga um bátinn þá fékk ég að vita að Steindór Arason, bróðir Hólmgeirs Arasonar trillusmiðs á Ísafirði væri að endurbyggja Fróða. Steindór lést 15. febrúar 2012 og náði ekki að ljúka uppgerð á Fróða. Þann 4. mars 2012 náði ég að taka myndir af Fróða þar sem hann stóð inni í húsi, einni verbúðinni við Hvaleyrarlón í Hafnarfirði. Tréverki var nánast lokið og gat ég ekki séð betur en vandað hafði verið til verksins. Vélin í bátnum var Sabb 48 kw. vél sem tekin var upp í Iðnskólanum fyrir þremur árum síðan og hefur líti ðverið keyrð síðan. Menn voru að koma og skoða Fróða en nýbúið var að setja hann á sölu. Þann 15. apríl fékk ég sendar myndir af Fróða frá Sævari Gumundssyni. Það var verið að hífa Fróða á vagn og búið var að selja bátinn. Nýr eigandi væri Sigurður Pétursson Grundarfirði. Þann 19. maí 2012 var ég staddur í Grundarfirði og tók myndir af Fróða þar sem hann var bundinn við bryggju. Þann 20. maí var ég aftur á ferð í Grundarfirði og kíkti aftur á Fróða, þá var Siggi P um borð í bátnum. Siggi var að vinna við að setja rafmagn í bátinn og ditta að ýmsu. Hann var búinn að hreinsa alla málningu af bátnum og bera á bátinn. Þá var búið að mála hluta af tréverkinu hvítt. Báturinn tók sig mjög vel út þarna við bryggjuna og greinilegt að Siggi P mun gera bátinn klárann og hugsa vel um hann.
Skrifað af Rikki R. 21.05.2012 21:23Benjamín og Valbjörn1318 Benjamín Guðmundsson SH 208 sigldi undir Búlandshöfðann milli Grundarfjarðar og Ólafsvíkur þann 19. maí 2012. Daginn eftir, 20. maí, sigldi 1686 Valbjörn ÍS 307 sömu leið þó aðeins utar.
Skrifað af Rikki R. 21.05.2012 21:10StariRakst á þessa stara á Rifi. Greinilegt par. Náði að smella af myndum en þær mistókust. Set hér inn tvær myndir af þessum sérstaka fugli og þið sjáið strax hvers vegna. Þið fyrirgefið gæði seinni myndarinnar. Albinóar eru ekki mjög algengir en sjást þó með reglulegu millibili meðal fugla. Eitthvað hefur veri að sjást af störum sem eru albinóar að hluta á Snæfellsnesinu undanfarin ár.
Skrifað af Rikki R. 21.05.2012 21:02HvítmáfurRakst á hvítmáfa við smábátahöfnina í Grundarfirði. Þeir létu heyra vel í sér. Velti fyrir mér hvort þessi "söngur" þeirra hafi verið einhver ópeuraría. Þessi seiðandi, grófa rödd, ómaði um höfnina og barst víða. Ég vil nú ekki gefa stjörnur fyrir sönginn.
Skrifað af Rikki R. 15.05.2012 23:19Rita og sílamáfurÁ bryggjurúntinum þá tók ég myndir af ritu og sílamáf svona til að ég gleymi ekki alveg hvernig ég ber mig við að mynda fuglana. Á neðstu myndinni held ég að sé sílamáfur en fætur voru þó ekki gulir, meira húðlitaðir.
Skrifað af Rikki R. 15.05.2012 22:44Úr ýmsum áttumÉg tek myndir af flestu sem ég sé og hef gaman af. Ég hef nú verið svolítið einhæfur upp á síðkastið en nú lögum við það aðeins. Hér koma þrjár myndir sem ég hef gaman af og vona að þið hafið einnig gaman af.
Skrifað af Rikki R. 15.05.2012 22:22Vorverkin eru mörgVorverkin eru margvísleg og geta verið miserfið. Þessir tveir heiðursmenn, Hallfreður og Helgi, voru í garðvinnu. Búið var að klippa allt sem átti að klippa og þarna voru þeir að slást við rót. Þeir höfðu betur.
Skrifað af Rikki R. 13.05.2012 18:48Ella SH 285006 Ella SH 28
Hér að ofan eru þrjár myndir sem ég fékk sendar og hef fengið leyfi til að birta. Sabb vélin úr Ellu nýmáluð og flott. Þá er mynd af Ellunni þar sem henni er siglt um Brákarsund. Innlent | mbl | 27.6.2009 | 19:28 Ella lífgar uppá Brákarsund Rúnar Ragnarsson kemur Ellunni sinni fyrir á Brákarsundinu. mbl.is/Theodór Trillan Ella lífgar nú á ný upp á Brákarsund í Borgarnesi og er óspart notuð sem myndefni hjá ferðafólki. Þessi mynd var tekin þegar. Ellan er forláta trilla af gömlu gerðinni. Það voru þeir Ásgeir Ásgeirsson og Halldór heitinn Brynjúlfsson sem að keyptu trilluna af Hildibrandi frá Bjarnarhöfn árið 1996. Þegar búið var að skvera hana af árið eftir og setja m.a. á hana nýtt stýrishús, fékkst leyfi til að setja hana niður við gamalt ból á Brákarsundið undir Brákarbrú. Þar var góð festa í heddi af gömlu Eldborginni sem gerð var út frá Borgarnesi á sínum tíma. Undanfarin tvö ár hefur fólki fundist eitthvað vanta á sundið enda hefur Ellan ekki verið sett niður frá því árið 2006 þar til núna og setur hún nú aftur skemmtilegan svip á sundið. Trillan var upphaflega frá Stykkishólmi og var nefnd eftir það merkilegri og ákveðinni konu, að ekki þótti ráðlegt af breyta nafninu á henni þótt hún færðist á milli bæjarfélaga enda hefur fleyið reynst vel til frístundaveiða á "borgfiski" út undir Þormóðsskeri og Grænhólma á liðnum árum. Skrifað af Rikki R.
|
Málsháttur dagsins Svo flýgur hver fugl sem hann er fiðraður !clockhere Rikki R Nafn: Ríkarður RíkarðssonFarsími: 862 0591Tölvupóstfang: rikkirikka@gmail.comAfmælisdagur: 24. septemberHeimilisfang: Breiðvangi 3, 220 HafnarfjörðurStaðsetning: HafnarfjörðurHeimasími: 565 5191Um: Fæddur á Húsavík á því herrans ári 1961 og hef tekið ljósmyndir frá því ég var strákur. Aðaláhugamálið er að taka myndir af fuglum en þó mynda ég allt sem mig langar til að mynda eins og sjá má.Eldra efni
Tenglar
|
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is