Það er fallegt á Snæfellsnesinu og ég tók nokkrar myndir umfram bátamyndir. Mun setja inn myndir úr þessari ferð á Snæfellsnesið eftir því sem mér finnst henta. Það var fallegt veður í þessari ferð eins og sjá má á þessum myndum.
Fæddur á Húsavík á því herrans ári 1961 og hef tekið ljósmyndir frá því ég var strákur. Aðaláhugamálið er að taka myndir af fuglum en þó mynda ég allt sem mig langar til að mynda eins og sjá má.