Ljósmyndasíða Rikka Fuglar, gamlir bátar, mannlíf, íslensk náttúra eins og ég sé hana |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Færslur: 2011 Júlí29.07.2011 22:33Mærudagar 2011Sail Húsavík og Mærudagar fléttuðust saman. Mikill mannfjöldi var á Húsavík á þessum dögum og langar mig að setja hér inn myndir sem sýna hluta mannfjöldans og sérstaklega veðrið. Ég mun svo halda áfram að setja hér inn myndir og sýna ykkur hvað var um að vera á þessum dögum öllum saman. Hér er ein mynd sem sýnir þetta allt vel. Meira síðar. Skrifað af Rikki R. 26.07.2011 23:20Haukur og HildurTveir síðustu stóru skúturnar á Sail Húsavík tilheyra Norðursiglingu. Tek þá báða fyrir hér en upplýsingarnar eru fengnar af vef Norðursiglingar http://www.nordursigling.is/batar-og-segl/. Haukur var byggður í Reykjavík árið 1973 og var annar af tveimur mjög sérstökum bátum sem smíðaðir voru í Skipasmíðastöð "Jóns á Ellefu". Lengst af var báturinn gerður út frá Vestfjörðum en Norðursigling keypti bátinn árið 1996 og breytti honum á svipaðan hátt og Knerrinum og hóf hann hvalaskoðunarferil sinn sumarið 1997. Eftir 5 góðar vertíðir í hvalnum á Húsavík var báturinn settur í slipp á Húsavík þar sem honum var breytt í tveggja mastra seglskip, í stíl við fiskiskonnortu er voru algengar við Norðurland á seinni hluta 19. aldar. Sumarið 2002 sigldi Haukur svo með fólk um Skjálfanda, bæði undir seglum og sem hvalaskoðunarbátur. Upplýsingar
Upplýsingar
Skrifað af Rikki R. 25.07.2011 23:45Dagmar AaenDagmar Aaen var smíðuð sem fiskikútter árið 1931 í Esbjerg, Danmörku í skipasmíðastöðinni NP Jensen og var gefið skráningarnúmerið E 510. Skrokkurinn er smíðaður úr 6 sm. eikarplönkum á eikarrömmum (skil þetta ekki en þetta er þýðingin) Bilið milli ramma er oft það lítið að hnefi kemst varla á milli. Skipið var mikið notað á Grænlandssvæðinu vegna styrks skrokksins og byggingarefnis hans. Ferðir í gegnu ísilögð svæði, mánaðarlegur í frosnum flóum og fjörðum var aðstæður sem þessi skip þoldu. Hinn frægi könnuður, Knud Rasmussen valdi einungis svona skip fyrir einn af leiðöngrum sínum á Norðurskautið. Dagmar Aaen var notað til fiksveiða til ársins 1977. Niels Bach keypti skipið árið 1988 ásamt Peters skipasmíðastöðinni í Wewelsfleth Þýskalandi og Skibs & Bædebyggeri skipasmíðastöðinni í eigu Christian Jónsson í Egernsund Danmörku. Dagmar Aaen mætti á Sail Húsavík undir stjórn Arved Fuchs verndara Sail Húsavík eins og fram kemur á síðu Hafþórs Hreiðarssonar.
Skrifað af Rikki R. 25.07.2011 22:23HelguskúrÉg hef áður sagt frá Helguskúr en ætla að gera það aftur. Að mínu mati er Helguskúr alger gullnáma fyrir áhugamenn um veiðar á öllum sjávardýrum. Þá er þessi skúr mjög svo myndrænn. Eigandi Helguskúrs er Helgi Héðinsson.
Skrifað af Rikki R. 25.07.2011 20:45Sail HúsavíkHef verið að setja inn myndir frá Sail Húsavík. Enn eru það bara stóru skúturnar sem fá mesta athygli. Var að henda inn myndum núna þar sem fleiri en ein skúta sést á sömu myndinni. Hér má sjá mynd af Activ sem gnæfir yfir Vinfasti. Skipper á Vinfasti er Hafliði Aðalsteinsson. Hann gerði sér lítið fyrir og sigldi sömu leið og skúturnar sigldu í kappsiglingu sinni. Mun halda áfram að setja inn myndir á næstunni í myndaalbúm Sail Húsavík.
Skrifað af Rikki R. 25.07.2011 10:59Kútter Johanna GT 326Kútter Johanna er smíðuð í Rye, Sussex í suður Englandi árið 1884 í skipasmíðastöð í eigu James Collins Hoad. Skipasmíðastöðin er þekkt fyrir sín fallegu skip. Fyrsti eigandi Johanna, sem þá hét Oxfordshire og var á Englandi, var John William Haylock frá Dulwich í Surrey. Í Október 1894 keypti Georg Edv. James Moddy, skipaeigandi í Grimsby, Oxfordshire en seldi skipið aftur í desember sama ár til Jákup Dahl, kaupmanns í Vágur. Þetta var fyrsta skipið sem Jákup Dahl eignaðist. Heimahöfn er Vágur í Færeyjum.
Skrifað af Rikki R. 25.07.2011 10:44Kútter DraginKútter Dragin er frá Færeyjum. Dragin, eða Drekinn, var smíðaður í Copenhagen Kutter Yard í Kaupmannahöfn árið 1945, úr eik. Seglmagnið er um 190 fermetrar að stærð. Vélin er Volvo Penta 210 hö. árg. 1985. Lengd; 18;40 m., breidd; 4,74 m., dýpt; 2,70 m.
Skrifað af Rikki R. 25.07.2011 09:47PirolaPirola var líklega tekið í notkun um 1910, en byggingarár og skipasmíðastöð eru ekki vitað en skipasmíðastöðin var líklega í Hollandi, skipið er stálskip. Það var líklega notað sem flutningaskip í strandsiglingum í upphafi. Árið 1947 var hún endursmíðuð og fékk sína fyrstu vél. Fram til 1969 hét skipið "De drie Gebroders" og var notað til fiskveiða. Með sölu til Borkum fékk það nafnið Pirola og nýja 6 cyl. Henschel 80 hestafla vél. Skipið var enn notað til fiskveiða og fleiri verka. Eftir tíð eigandaskipti var skipið komið í hörmulegt ástand, en árið 1983 keypti Elbarms Roland Aust ásamt vinum sínum skipið og fram til 1990 voru þeir að gera það upp. Til að bæta siglingagetu skipsins var sett í það 17 tonna kjölfesta og síðar var sett teak á þilfar skipsins. Árið 2008 var skipið yfirfarið og ný Henschel 184 hö, 6 cyl. vél sett í bátinn. Þá voru möstur og reiðar yfirfarnir. Seglin eru 204 fermetrar að stærð, heildarlengd skipsins er 25 m., breidd er 4,16 m., það ristir 1,70 m.
Skrifað af Rikki R. 25.07.2011 08:09ActivSkonnortan Activ er þriggja mastra, 42 m. 138 (feta) skúta smíðuð úr tré. Activ var smíðuð í skipasmíðastöð J. Ring Andersen í Svendborg, Danmörku. Henni var hleypt af stokkunum árið 1951 við hátíðlega athöfn. Svefnaðstaða er fyrir 12 farþega og 6 manna áhöfn. Activ er með heimahöfn í London. Vél: 6 Cyl. Vabis Scania Diesel 250 hp Árið 1977 voru einhverjar breytingar og lagfæringar gerðar á skipinu. Ekki vitað hverjar. Fyrri nöfn: Skipið hét áður Mona, Svendborg.
Skrifað af Rikki R. 24.07.2011 23:44Sail Húsavík 2011Kominn heim eftir viku á Húsavík. Sail Húsavík, Mærudagar og endufundir með árgangi 1961 á Húsavík. Hafði rosalega gaman af þessu öllu saman og nú þarf að fara að vinna myndir. Á eftir að gera þessu öllu betri skil síðar. Hér koma myndir af stóru skipunum sem voru á Sail Húsavík, smávegis til að sýna hvað er framundan. Miklu meira síðar.
Skrifað af Rikki R. 13.07.2011 23:24Frystihúsið í FlateyÞað eru alltaf einhverjar framkvæmdir í Flatey og er það af hinu góða. Í fyrra hófst viðgerð á frystihúsinu og veitti ekki af sögðu sumir. Ég set hér inn nokkrar myndir sem sýna þróunina frá 07. júlí 2006 þar til 27. júní 2011. Nú getið þið dæmt þetta sjálf hvort ekki var þörf á viðgerðum og svo hvernig til hefur tekist.
Skrifað af Rikki R. 13.07.2011 22:50Smá - eitthvað!Er að vinna við myndirnar sem ég tók í Flatey á Breiðafirði, þ.e. aðrar en bátamyndirnar. Langar að setja inn myndir af þeim vinkonum Elínu Hönnu og Þorbjörgu. Þorbjörg kom með okkur í Flatey og vona ég að hún hafi nú ekki meint af því:) Alla vegna höfðum við gaman af að hafa hana með okkur.
Skrifað af Rikki R. 13.07.2011 22:41Vesturbúðarbáturinn ?Þessi bátur tilheyrir Vesturbúðum í Flatey á Breiðafirði. Á eftir að fá sögu bátsins. Smellið á myndina og sjáið fleiri myndir af bátnum. Meira síðar..................
Skrifað af Rikki R. 13.07.2011 21:41KópurÉg sagðist ekkert vita um þennan bát en það var ekki rétt. Eftir að hafa fengið að vita að þetta væri Kópur þá vissi ég að ég hafði þegar fjallað um hann hér á síðunni http://rikkir.123.is/blog/record/474383/ . Mér til afsökunar þá myndaði ég bátinn á floti og því áttaði ég mig ekki á hvaða bátur þetta væri. Eða eigum við að segja að það sé aldurinn sem er farinn að segja til sín:-) Það var Þórarinn Sighvatsson sem hjálpaði mér við þetta og þakka ég honum kærlega fyrir aðstoðina. Smellið á myndirnar og kíkið á fleiri myndir af bátnum.
Skrifað af Rikki R. 12.07.2011 21:59FiskibátarÞessi tók smá prufutúr út úr Hafnarfjarðarhöfn og kom svo nokkuð fljótt til baka aftur. Tók nokkrar myndir af bátum 5. júlí í Hafnarfjarðarhöfn. Þriðja myndin er af einum sem skrapp á sjóstöng. Þeir þurfa nú ekki að vera stórir til að gera út.
Skrifað af Rikki R.
|
Málsháttur dagsins Svo flýgur hver fugl sem hann er fiðraður !clockhere Rikki R Nafn: Ríkarður RíkarðssonFarsími: 862 0591Tölvupóstfang: rikkirikka@gmail.comAfmælisdagur: 24. septemberHeimilisfang: Breiðvangi 3, 220 HafnarfjörðurStaðsetning: HafnarfjörðurHeimasími: 565 5191Um: Fæddur á Húsavík á því herrans ári 1961 og hef tekið ljósmyndir frá því ég var strákur. Aðaláhugamálið er að taka myndir af fuglum en þó mynda ég allt sem mig langar til að mynda eins og sjá má.Eldra efni
Tenglar
|
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is