Ljósmyndasíða Rikka Fuglar, gamlir bátar, mannlíf, íslensk náttúra eins og ég sé hana |
|
Færslur: 2011 Febrúar26.02.2011 12:39ÚtsvarÉg horfi stundum á spurningaþáttinn Útsvar. Haf gaman af að sjá þessa viskubrunna svara. Sumir þeirra virðast vita allt. Svo koma spurningar eins og í gær að sýnd var mynd af fuglum. Þetta var mitt áhugasvið og svaraði strax og ég beið eftir svari þeirra sem áttu að svara en, nei, þau gátu þetta ekki. Kíkjum aðeins á þetta. Hér er myndin sem var sýnd í sjónvarpinu, að vísu var textinn ekki en þessi mynd er af vef Jóns Baldurs Hlíðberg http://www.fauna.is/ Hér er myndin sem þeir sýndu í sjónvarpinu. Flott teikning eftir Jón Baldur Hlíðberg af hávellupari. Karlfuglinn er framar, með langar stélfjaðrir og þarna í sumarbúningi. Ég man ekki hvort liðið var á undan en svar fyrra liðsins var Urtönd. Rangt.
Þetta minnir mig að atriði í bíómynd sem ég sá eitt sinn. Maður sem tók þátt í spurningakeppni í útvarpi og það var alveg sama hverju hann var spurður að, hann gat svrað öllu. Svo lagði hann verðlaunaféið undir fyrir næsta þátt og hann var búinn að safna svo miklu að stöðin færi á hausinn ef hann tæki þetta út. Þá datt einum í hug að leggja fyrir hann spurningu um hann sjálfan, þ.e. hvert nafnnúmerið hans væri? Hann gat ekki svarað því, snéri tölum við og þar með tapaði hann. Kæru þáttakendur lítið ykkur nær:-) Svo ég hætti nú að gera lítið úr þessum þátttekendum þá finnst mér þeir frábærir og vitneskjan er alveg með ólíkindum. Það er bara þetta, þegar loksins kom spurning sem ég, kvartvitinn, vissi svarið við þá stóðu þau á gati:-) Skrifað af Rikki R. 26.02.2011 01:565057 OrionOrion X Hamar SH hefur staðið við Kópavogshöfn. Ég smellti einni mynd af honum þar sem hann stóð á hafnarbakkanum.
Það mun hafa verið Þráinn Arthúrsson sem gerði upp trébátinn Orion sem að er 4,5 tonn smiðaður í Bátasmiðastöð Breiðfirðinga árið 1955. Fyrsta vél i þessum bát var af gerðinni Polyter og var aðeins 10 hp. Árið 1975 var sett í bátinn Volvo Penta og aftur var skipt um vél 1980 og þá sett Sabb 30 hp. Mjög skemmtileg umfjöllun er hér http://blogg.visir.is/tengill/2008/04/09/hamar/ þar sem Gunnar Th. slær á takkaborðið og lýsir helstu breytingum á bátnum.Hér má sjá myndir af Orion http://thorgeirbald.123.is/blog/record/409156/ Í Íslensk skip, bátar eftir Jón Björnsson, bók 3 bls. 150 er sagt um þennan bát. Smíðaður í Hafnarfirði 1955. Eik og fura. 3,8 brl. 20. ha. Sabb vél 1980. Eigandi Sigurður S. Sigurjónsson og Guðmundur Sigurðsson, Hellissandi, frá 18. júlí 1961, þegar báturinn var fyrst skráður. Frá 19. mars 1969 var skráður eigandi Guðmundur S. Sigurjónsson, Hellissandi. Seldur 15. júní 1989 Pétri Sigurjónssyni í Grundarfirði. Báturinn hét Hamar SH 18 og var skráður í Grundarfirði 1997. Hamar var einnig SH 170, hvort það var á undan eða eftir veit ég ekki. Skrifað af Rikki R. 26.02.2011 01:085613 Örkin RE31Þessi bátur er við bryggju í Snarfarahöfninni. Framan á stýrishúsinu stendur Aldan en báturinn mun víst heita Örkin RE 31. Ég leitaði á netinu og fann frásögn af þessum bát á síðunni http://aba.is og læt ég hana hér inn óbreytta með samþykki eiganda aba.is og þakka ég kærlega fyrir afnotin. Upphaflega hét báturinn Jón Valdimarsson, sjá nánar hér að neðan.
Stærð: 3,60 brl. Smíðaár 1972. Fura og eik. Opinn súðbyrðingur. Báturinn var smíðaður fyrir Garðar Jónsson, Bakkagerði, sem átti hann í fjögur ár. Haukur Vésteinn Gunnarsson, Grenivík keypti bátinn árið 1983 og þá bar hann, samkvæmt skráðum gögnum, nafnið Svalan ÞH-230 en Haukur vill þó meina að báturinn hafi borið EA einkennisstafi er hann keypti hann. Haukur Vésteinn gaf bátnum nafnið Alda ÞH-230 en það nafn er þó ekki á hann skráð hjá Siglingastofnun fyrr en hann er seldur Magnúsi Andréssyni, Húsavík árið1986. Skrifað af Rikki R. 24.02.2011 21:25Þrír trébátarHér eru þrír sem ég á kanski eftir að eltast við betur og safna upplýsingum um. Við sjáum til með það. Varðandi þessa gömlu trébáta sem ég eltist svolítið við þá er ég að fá ný og ný verkefni ef svo má segja. Hef reyndar ekki komist yfir að mynda þessa báta sem ég veit um. Ég kíkti til Ólafs Gíslasonar til að sjá hvernig gengi með Kára. Það sem mætti mér var að Kári var kominn út í horn, ef svo má segja og annar talsvert mikið minni kominn í staðinn. Ólafur kvað þetta vera verkefni sem hann hafi lofað að gera fyrir margt löngu síðan. Nú væri ágætt aðeins og breyta til og hvíla Kára aðeins og snúa sér að öðru. Ég mun svo rukka Ólaf um sögu þessa báts.
Skrifað af Rikki R. 24.02.2011 21:10Samtals rúmlega aldargamlirFyrst ég hef nú aðeins verið að mynda báta- og skipaflotann verður maður að standa sig á því sviðinu. Í þessum mánuði hef ég náð myndum af tveimur öðlingum sem eru árinu eldri en ég og enn í fullu fjöri, annað en ég:-). Þessir slá lítið af og miðað við það sem ég hef verið að skoða á síðum ykkar sjóhundanna þá eru menn sammála um að hér fari tvö af fallegri skipum flotans. Ég er að tala um Sigurður VE 15 og Víkingur AK 100, systurskipin fædd 1960 svo það sé á hreinu.
Skrifað af Rikki R. 21.02.2011 20:47Fermingar framundanNú fer tími ferminga að renna í garð. Þá er ekki úr vegi að rifja upp mína eigin fermingu. Ekki ætla ég að skrifa mikið en get þó sagt að það var eftirmynnilegur dagur, eins og hjá flestum held ég. Hér er fermingarmyndin mín, tekin af Pétri Jónassyni ljósmyndara á Húsavík. Þegar hann tók þessa mynd voru liðin mörg ár frá því hann byrjaði að mynda og hann er enn að. Tja, þessi slaufa maður, stærri en andlitið á manni:-) - Tískuslys eða hvað? Svona var þetta í þá daga, réttlætir það ekki eitthvað? Aftasta röð: Lárus, Rabbi, Hreinsi, Ég, Hákon, Jónas Reynir, Jónas Óskars, Sibbi, Jóhanna Sigurbjörns., Eyþór, Bendi, Palli, Kiddi Eiðs. Miðju röð: Dóra, Kaja, Villa, Ragga, Inga Hjálmars, Aðalbjörg Ívarsd, Júlla. Fremsta röð: Begga, Sigga, Inga Helga, Sr. Björn H. Jónsson, Magga, Sigrún Arnórsd, Sigrún Jónsd.
Skrifað af Rikki R. 21.02.2011 20:31FjöðurOft er það svo að ég rek augun í eitthvað sem mér finnst "myndvænt". Ef ég ætla ekkert að gera í málinu þá truflar þetta mig rosalega. Oft er þetta þá eitthvað mótíf sem er ekki neitt neitt en eitthvað þó. Hér er ein af þessum myndum. Ég sá þessa fjöður sem hékk á grein og blakti þar í vindinum. Ég sá fyrir mér myndina og þetta endaði á ég lét sækja myndavélina fyrir mig og smellti þessari mynd af. Eins og ég sagði, ekki neitt neitt en þó eitthvað. Einfaldleikinn er flottur að mínu mati. Þegar ég horfi á þessa mynd færist ró yfir mig. Ekki má ég nú við því þar sem menn segja að það renni nú varla í mér blóðið...................... Alla vegna, hér er þessi mynd og vona ég að hún færi ykkur sömu ró og mér. Ekki get ég nú sagt til um af hvaða fugli þessi fjöður er en miðað við staðsetningu og stærð þá væri grágæs líklegust.
Skrifað af Rikki R. 20.02.2011 22:04Áhöfn Sigurðar VE 15Tók nokkrar myndir af áhafnarmeðlimum Sigurðar VE 15. Veit ekkert hverjir þeir eru en vænti þess að einhverjir hér inni þekki til þeirra og sendi línu. Ásþór Sigurgeirsson sem er í áhöfninni og á einni myndanna kom með nöfnin og ég setti þau inn við réttu myndirnar.
Skrifað af Rikki R. 20.02.2011 21:40Sigurður VE 15Svo ég sýni nú smá áhuga á þessum bátamyndum, þá held ég að ég geti sagt að það hafi borið vel í veiði í dag þegar þessi ungi öldungur sigldi inn í Hafnarfjarðarhöfn í morgun kl. 10:00. Siglt var beint inn í stóru flotkvína og stoppað tiltölulega stutt. Hvað þeir voru að gera? Ég sel það ekki dýrara en ég stal því að þá var verið að setja sínk á botninn, þeir hafi ekki fengið haffærni vegna þessa. En þeir lögðu af stað aftur kl. 17:00. Eins og sést þá var birtan mun betri þegar þeir fóru, alla vegna til myndatöku.
Skrifað af Rikki R. 20.02.2011 00:05BlakmeistararHér eru tvær myndir af blakmeisturum í skólablaki. Man ekki hvaða ár, langar ekki að muna það svo langt síðan. En þá urðum við Húsavíkingar meistarar bæði í karla- og kvennaflokki. Ég var þarna í þessu karlaliði og á þeim tíma var ég með þokkalega sítt hár sýnist mér, tískuslys held ég.
Skrifað af Rikki R. 19.02.2011 22:42Húsavík fyrr á árumHér koma tvær myndir frá Húsavík af húsum sem eru horfin. Ýmsar verslanir voru í Klemmu í gegnum árin og man ég m.a. eftir fata- eða íþróttavöruverslun, sjoppa og raftækjaverslun svo eitthvað væri nefnt. Á þessu svæði sem Klemma var, er nú bílastæði að ég tel, en það sést þarna í norðausturhornið á Verbúðinni. Fyllt var uppí þetta skarð og ofan á verbúðinni er söluskáli Norðursiglingar. Þegar ég var lítill fannst mér Skógargerði nánast vera uppi í sveit. Þarna neðan við húsið var Skógargerðislækurinn. Við lékum okkur oft við Skógargerðislækinn æskuvinirnir. Þið fyrirgefið en ég man ekki hvenær myndin af Skógargerði var tekin.
Skrifað af Rikki R. 19.02.2011 22:30Frá Húsavíkurhöfn 1985-1992Var að skoða gamlar myndir sem ég hafði tekið. Rak þar augun m.a. í þessar þrjár mydnir hér að neðan. Á þessum myndum má sjá að slatti er eftir að trábátunum árið 1992, en ef ég þekki rétt þá eru það Hrói, Gosi, Maggi og Kristinn að ég held, sem eru á efstu myndinni. Aftan við þá koma einhverjir plastarar. Á næstu mynd þekki ég ekki marga en nafnið á fremstu trillunni er Brandur en ég þori ekki að fara með hverjir koma næstir. Á þeirri síðustu sér í Ösp og fjóra færeyinga. Það hefur verið að rifjast upp fyrir mér að það liggja myndir einhversstaðar sem ég man eftir en svo er að finna þær. Reikna með að setja inn eitthvað af gömlum myndum á næstunni og setja hér inn mér og vonandi öðrum til skemtunar.
Skrifað af Rikki R. 15.02.2011 21:38Bekkurinn á bakkabrúninni.Set hér inn tvær myndir þar sem menn sitja og fylgjast með bátunum á flóanum. Fylgdust með þeim koma inn og fara út. Auðvita leystu menn svo hin ýmsu vandamál á þessum bekk.
Skrifað af Rikki R. 15.02.2011 21:28Þrjár gamlar frá HúsavíkÆtla að setja hér inn þrjár gamlar myndir frá Húsavík. Eitt af því sem ég gerði var að reyna að ná myndum af körlunum við bryggjuna. Þar sló hjarta Húsavíkur ef svo má segja og gerir enn.
Skrifað af Rikki R. 15.02.2011 20:58Útivera, hreyfing!Ég set reglulega inn nokkrar myndir af fólki sem eru útivið, hreyfing og útivera. Myndirnar eru teknar á öllum árstíðunum.´ Set hér inn nokkrar myndir frá sumrinu 2009 þar sem tengdafólk mitt er í nokkurskonar slábolta. Á þessum myndum má sjá hver það er sem hittir boltann, auðvitað sá elsti í hópnum. Rólegur og yfirvegaður sló hann boltann. Kraftarnir hjá strákunum dugðu ekki en það sést vel að það var slegið af krafti og Klara gerði sitt besta líka. Skrifað af Rikki R.
|
Málsháttur dagsins Svo flýgur hver fugl sem hann er fiðraður !clockhere Rikki R Nafn: Ríkarður RíkarðssonFarsími: 862 0591Tölvupóstfang: rikkirikka@gmail.comAfmælisdagur: 24. septemberHeimilisfang: Breiðvangi 3, 220 HafnarfjörðurStaðsetning: HafnarfjörðurHeimasími: 565 5191Um: Fæddur á Húsavík á því herrans ári 1961 og hef tekið ljósmyndir frá því ég var strákur. Aðaláhugamálið er að taka myndir af fuglum en þó mynda ég allt sem mig langar til að mynda eins og sjá má.Eldra efni
Tenglar
|
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is