Ljósmyndasíða Rikka Fuglar, gamlir bátar, mannlíf, íslensk náttúra eins og ég sé hana |
|
Færslur: 2009 Maí28.05.2009 11:35BaðferðÞessi sandlóa óð drullu upp fyrir hús, eins og sagt er. Eftir drullubaðið var farið í öðruvísi bað, til að þvo sér. Á neðri myndinni er sandlóan að fara uppúr "baðkarinu" hrein og flott. Myndirnar eru teknar við Bakkatjörn. Skrifað af Rikki R. 21.05.2009 23:25Flotkvíarnar í HafnarfirðiFlotkvíarnar í Hafnarfirði hafa ekki heillað mig sem myndefni fyrr en í birtunni í dag. Ég smellti nokkrum myndum af kvíunum og má sjá þær inni í albúminu skip og bátar.
Skrifað af Rikki R. 21.05.2009 23:14HringmáfurSíðustu daga hef ég verið að mynda hringmáf við Bakkatjörn á Seltjarnarnesi. Myndirnar hér að neðan eru allar teknar í dag, 21.05.2009. Það voru tveir hringmáfar þarna í dag, þessi fullorðni sem myndirnar eru af og annar yngri fugl.
Skrifað af Rikki R. 21.05.2009 23:06Á sjóÍ verðurblíðunni í dag skoðaði ég nokkra báta. Hef beðið eftir að ná mynd af Ígull HF 21 en hann hefur ekki verið þannig að ég hafi veri sáttur. Í dag lá hann á endanum á bryggjunni í Hafnarfirði og birtan alveg rétt á hann. Þá fór ég víðar og náði myndum af hinum ýmsu farartækjum á sjó.
Skrifað af Rikki R. 21.05.2009 22:34StaurÞessi staur stendur við Norðurgarðinn í Hafnarfirði, rétt hjá gamla garðinum. Fannst hann flottur í þessari birtu sem þarna var. Einfalt og flott.
Skrifað af Rikki R. 19.05.2009 01:40FiðurfénaðurÉg hef aðeins verið að eltast við fuglana aftur. Til að koma mér af stað þá hef ég farið að Bakkatjörn á Seltjarnarnesi. Mikið fuglalíf hefur verið þar og tiltölulega auðvelt að nálgast fuglana þar. Hérna má sjá þrjár myndir en talsvert fleiri eru inni í fuglaalbúminu mínu.
Skrifað af Rikki R. 19.05.2009 00:28Snekkjur, skútur o.fl.Skemmtibátar af öllum stærðum og gerðum hafa orðið á vegi mínum síðustu daga. Hér er smá úrval af þeim.
Skrifað af Rikki R. 18.05.2009 23:516086 - Finnur HF 12Hér kemur Finnur HF 12 inn til löndunar, sýnir einum nýjum (Grimsholm) hvernig fara á að þessu. Hann var með eitthvað á þriðja kar af þorski og ufsa. Skipperinn, Árni Sigtryggsson fyrrverandi Húsvíkingur, þurfti aðeins og laga fiskinn til í karinu áður en það var fjarlægt.
Skrifað af Rikki R 18.05.2009 23:26T-24-K Grimsholm, nýr bátur.Sá þennan í Hafnarfjarðarhöfn í dag 18.05.2009. Þessi er af gerðinni Víkingur 1300 og var hann sjósettur í dag. Sjá myndir af sjósettningu bátsins hér og allt um bátinn hér.
Skrifað af Rikki R. 13.05.2009 22:28FuglarnirMikið og auðugt fuglalíf hefur verið á Bakkatjörn á Seltjarnarnesi undanfarið. Ég smellti nokkrum myndum af og eru þær komnar inní fuglaalbúmið. Hér má sjá þrjár myndir og eru tvær þeirra af hefðbundnum íslenskum farfuglum, hrossagauk og sílamáf, en þriðja myndin er af sjaldgæfari fugli, hringmáf.
Skrifað af Rikki R. 13.05.2009 22:04Fleiri bátarSkrapp og tók nokkrar myndir af bátum. Myndum af þeim rignir hér inn því ég hef svo lítið myndað þá í gegnum tíðina en nú verður gerður bragarbót þar á. Einhverjir verða ánægðir með það, aðrir ekki eins ánægðir. Ég hins vegar er sáttur við flestar myndir sem ég set hér inn og því vil ég leyfa ykkur að njóta þeirra. Talsvert hefur bæst við af myndum af bátum í albúmið Skip og bátar. Njótið vel.
Skrifað af Rikki R. 08.05.2009 18:47Þú færð ekki matinn minn!Hér er ein mynd sem ég tók í Hafnarfjarðarhöfn 02.05.2009. Þessi kolla kom syndandi í átt að mér með síldina sína. Þegar hún varð mín svo vör, á sama tíma var ég að smella af, tók hún á rás. Fókusinn er því á þann stað sem hún var á, en hausinn á henni er úr fókus. Finnst þessi mynd semt þess verð að fara hér inn þrátt fyrir þetta. Mikil læti hér á ferð.
Skrifað af Rikki R. 07.05.2009 21:00HafnarfjarðarhöfnEftir að ég fór yfir í digital-ið eins og flestir þá hef ég fært mig aftur í upphafið ef svo má að orði komast. Í upphafi ljósmyndaáhuga míns þá myndaði ég allt, var ekki í neinu sérstöku. Svo breyttist þetta hjá mér aðeins og ég færði mig meira yfir að mynda bara fugla. Nú er ég komin aftur í að mynda alla hluti. Þar á meðal hef ég myndað talsvert af bátum því lítið hefur verið af þeim myndum hjá mér síðan ég komast á upphafsreitinn með digital myndavélinni. Haffi Hreidda hefur eitthvað orðið hræddur við þessar bátamyndir mínar en hann þarf ekki að óttast samkeppnina. Samkeppnin er engin, ég er betri....hahahahaha. Hér má sjá þrjá báta í Hafnarfjarðarhöfn, 2099 - Íslandsbersi HF 13, 1922 - Glaður ÍS 221 og 1850 - Hafsteinn SK 3.
Skrifað af Rikki R. 07.05.2009 20:55Á ÁlftanesiTók þessa mynd á Álftanesinur 01.05.2009. Fannst eitthvað flott við birtuna og þennan regnboga. Skrifað af Rikki R 07.05.2009 20:47ÆðarfuglarNáði nokkrum myndum af æðarfuglum í Hafnarfjarðarhöfn 02.05.2009. Setti þær inn í fuglaalbúmið svo fyrir þá sem vilja þá eru þær þar. Hér koma tvö sýnishorn.
Skrifað af Rikki R.
|
Málsháttur dagsins Svo flýgur hver fugl sem hann er fiðraður !clockhere Rikki R Nafn: Ríkarður RíkarðssonFarsími: 862 0591Tölvupóstfang: rikkirikka@gmail.comAfmælisdagur: 24. septemberHeimilisfang: Breiðvangi 3, 220 HafnarfjörðurStaðsetning: HafnarfjörðurHeimasími: 565 5191Um: Fæddur á Húsavík á því herrans ári 1961 og hef tekið ljósmyndir frá því ég var strákur. Aðaláhugamálið er að taka myndir af fuglum en þó mynda ég allt sem mig langar til að mynda eins og sjá má.Eldra efni
Tenglar
|
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is