Ég hef farið með Elínu Hönnu í æfingarakstur undanfarna daga. Þetta hefur gengið svona stórslysalaust fyrir sig, fyrir utan smá svín hér og þar, nánast ekið á risastóra steina sem hún sá ekki og voru utan vegar. En þrátt fyrir þetta þá gengur þetta ágætlega. Held að stelpan komi til. Á þessari mynd má sjá hversu einbeitt hún er við aksturinn. :-)
Elín Hanna á fullri ferð við stýrið, 18. maí 2014