Einn af þeim merkisatburðum sem ég minntist á áðan er að Elín Hanna hélt "tónleika" í Grýluvogi. Tónleikar og ekki tónleikar en hún spilaði tvö lög og fór svo í land og endurtók annað lagið. Ég veit ekki hvort þetta hefur gerst áður að spilað hafi verið á fiðlu úti í miðjum Grýluvogi. Meðan ég veit ekki betur ætla ég að segja að þetta hafi verið í fyrsta skipti sem fiðlutónleikar hafi verið haldnir í Grýluvogi. "Tónleikarnir" voru ekki auglýstir en þó væru nokkrir áhorfendur á staðnum. Hér eru myndir sem sýna þetta og ég leyfi mér að segja að þetta er fallegasti "tónleikasalur" sem til er.
Elín Hanna spilar í Grýluvogi 01. ágúst 2012
Ekki dónalegur tónleikasalur, 01. ágúst 2012
Elín Hanna spilaði listavel. Flatey 01. ágúst 2012
Elín Hanna spilaði svo aftur þegar hún steig á land, 01. ágúst 2012