Ljósmyndasíða Rikka Fuglar, gamlir bátar, mannlíf, íslensk náttúra eins og ég sé hana |
|
Færslur: 2020 Maí13.05.2020 23:20Úði HF 607293 Úði HF 60 Smíðaður í Hafnarfirði 1960. Eik og fura. 2.22 brl. 16 ha. Lister vél. Eigandi Páll V. Jónsson, Hafnarfirði frá 10. september 1990 þegar báturinn var fyrst skráður. Eiganda ekki getið fyrir þann tíma. Báturinn skráður í Hafnarfirði 1997. Upplýsingar Íslensk skip, bátar, bók 2 bls. 60 Ef þið hafið einhverjar viðbótarupplýsingar um þennan bát endilega sendið mér línu.............. Meira síðar..................... Skrapp í dag, 26. ágúst 2012 á Vatnsleysuströndina og myndaði Úða. Get ekki betur séð en að hann sé nánast óbreyttur frá þeim tíma sem Valur Björn myndaði hann 2010. Úði HF 60 á Vatnsleysuströnd. Ljósmynd Valur Björn Línberg, 01. apríl 2010 Úði HF 60, 26. ágúst 2012 Úði HF 60, 26. ágúst 2012 Kíkti aftur á Úða HF 60 þann 12. mars 2017. Þá var ástandið á Úða orðið frekar bágborið eins og sjá má. Úði orðinn þreyttur. 12.mars 2017. Mynd: RikkiR Skrifað af Rikki R. 13.05.2020 22:00Freymundur ÓF 6Freymundur ÓF6, við bryggju á Ólafsfirði, 06.ágúst 2013, mynd RikkiR. 5313 Freymundur ÓF-6. Smíðaður á Akureyri árið 1954 af Kristjáni Nóa Kristjánssyni. Fura og eik. Stærð: 3,87 brl. Afturbyggður súðbyrðingur með kappa.
Upphaflega vélin í bátnum var 16 ha. Lister, sem var í honum fyrstu 12 árin.
Næst var sett í bátinn 28 ha. Volvo Penta og var hún í bátnum fram til ársins
1980 en þá var henni skipt út fyrir 22 ha. SABB og er sú vél enn í bátnum
árið 2014. Eftir afskráningu bátsins þá komst hann undir
handarjaðar Helga Jóhannssonar, Ólafsfirði sem hreinsaði bátinn upp og málaði
að utan og innan frá kili að masturstoppum. Báturinn stendur nú sem nýr sé við aðalgötu Ólafsfjarðar
vegfarendum til yndisauka Heimildir aba.is: Júlíus Magnússon, Ólafsfirði. Gunnlaugur Traustason,
Akureyri. 06.ágúst 2013 var ég á ferð á Ólafsfirði og tók myndir af Freymundi við bryggju. Mínar heimildir: Íslensk skip, bátar 2, bls. 262, Freymundur ÓF. Skrifað af Rikki R. 10.05.2020 21:17Bjarmi EA354 9817Bjarmi EA354 5817 ex Heimir EA701 Stærð: 1,99 brl. Smíðaár 1938. Fura og eik. Opinn
súðbyrðingur. Trilla. Vél óþekkt. Árið
1951 endurgerði Benedikt Jónsson bátinn á Dalvík með því að lengja hann og
borðdraga til hækkunar um eitt umfar. Einnig var sett í hann ný vél af gerðinni
SABB 16 ha. Að
endurgerð Benedikts lokinni fékk báturinn nafnið Bjarmi EA-354 og skráð stærð
hans þá komin í 2,76 brl. Árið
1953 er eigendur skráðir í gögnum Siglingastofnunar synir Þorsteins Antonssonar
þeir Skafti og Hjalti Þorsteinssynir. Frá
árinu 1998 er báturinn í gögnum Siglingastofnunar skráður á Þorstein Skaftason,
Dalvík. Af skipaskrá var báturinn felldur 23. desember 1998
með þeirri athugasemd að hann hafi ekki verið skoðaður árum saman. Þrátt
fyrir afskráningu þá var bátnum haldið í horfinu en síðustu fjögur árin fyrir
2010 að telja hefur hann ekki stigið dans við Ránardætur. Árið
2010 var báturinn seldur feðgunum Pétri Sæmundssyni og Pétri Óla Péturssyni
Keflavík sem fluttu hann suður og gerðu upp árið 2012. Endurgerðin
var fólgin í að sauma bátinn upp og endurnýja allt timburverk sem verulega var
farið að sjá á. Gert er ráð fyrir að báturinn verði sjósettur á
vordögum 2013. Sést hefur í frásögnum af endurgerð bátsins að hann hafi alla tíð borði nafnið Bjarmi EA-354 en eins og sjá má hér að ofan er það ekki rétt. Heimild: aba.is, Íslensk skip,bátar, bók 1, bls. 96. Ég tók myndir af bátnum þar sem
hann stóð uppi á landi við Snarfarahöfn.
Árið 2020 er báturinn í Hafnarfjarðarhöfn. Báturinn var auglýstur til sölu á Bátalif.is,
"Nýuppgerður glæsilegur trébátur "Bjarmi" - súðbyrðingur frá Dalvík." 9817 Bjarmi EA 354 ex Heimir EA7041. Mynd: RikkiR 24.08.2019 Skrifað af Rikki R.
|
Málsháttur dagsins Svo flýgur hver fugl sem hann er fiðraður !clockhere Rikki R Nafn: Ríkarður RíkarðssonFarsími: 862 0591Tölvupóstfang: rikkirikka@gmail.comAfmælisdagur: 24. septemberHeimilisfang: Breiðvangi 3, 220 HafnarfjörðurStaðsetning: HafnarfjörðurHeimasími: 565 5191Um: Fæddur á Húsavík á því herrans ári 1961 og hef tekið ljósmyndir frá því ég var strákur. Aðaláhugamálið er að taka myndir af fuglum en þó mynda ég allt sem mig langar til að mynda eins og sjá má.Eldra efni
Tenglar
|
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is