Ég fer reglulega í Flatey eins og þið vitið og set stundum inn myndir hérna úr þeim ferðum mínum. Í gegnum tíðina hef ég verið að safna myndum af ýmsu í Flatey m.a. fólki, húsum, bátum og mörgu fleiru en ekki birt það hér ennþá. Ég ætla að bæta aðeins úr því og fyrir ykkur getur þetta verið smá getraun um hvað er hvað en sumt skýrir sig sjálft því skilti eru geta verið með nöfnum húsa. Set hér inn möppu með myndum af gluggum, hurðum og ýmsu fleiru. Nú er komið að ykkur, njótið.
Hér er eitt skilti úr Flatey, Pakkhúsið. Myndin er tekin 17. júní 2009.