Er staddur á frábærum stað. Veðrið frábært, sól stundum, logn þess á milli og rigning núna. Er hægt að biðja um betra? En svo við tölum að alvöru þá er allt í góðu hjá okkur hér í eyjunni fögru við Breiðafjörðinn.
Fæddur á Húsavík á því herrans ári 1961 og hef tekið ljósmyndir frá því ég var strákur. Aðaláhugamálið er að taka myndir af fuglum en þó mynda ég allt sem mig langar til að mynda eins og sjá má.