Ljósmyndasíða Rikka Fuglar, gamlir bátar, mannlíf, íslensk náttúra eins og ég sé hana |
|
Færslur: 2011 Júní16.06.2011 02:48RyðMér hefur margoft verið bent á að ég sé ryðgaður maður. Þetta er örugglega rétt því ég hef gaman af að mynda allt sem ryðgað er. Rakst á þessa tunnu á Álftanesinu í gær og fannst mér hún taka sig ágætlega út.
Skrifað af Rikki R. 16.06.2011 01:59VarðhundurÞegar ég var í myndaleiðangri í gær þá kom þessi líka "rosalegi" varðhundur á móti mér. Það gerði ekkert gagn að sussa á hann. Ég tók þá ákvörðun að hundsa hundinn sem hélt áfram að gelta að mér þar til eigandinn koma og sussaði á hann, þá loks hætti varðhundurinn að gelta. Hvað hann sagði veit ég ekki en það útleggst eitthvað á þessa leið: Voff, voff, voff og svo bætti hann við smá voff, voff, voff. Ég hef ekki grænan grun um hvað hann sagði.
Skrifað af Rikki R. 15.06.2011 17:25LeifurLeifur var smíðaður af Eyjólfi Einarssyni skipasmíðameistara í Hafnarfirði fyrir Hjálmar Eyjólfsson frá Brúsastöðum árið 1969. Báturinn var upphaflega án stýrishúss. Gunnar Hjálmarsson, sonur Hálmars, eignast bátinn eftir föður sinn. Gunnar gerir breytingar á bátnum, setur á hann stýrishús og breytir honum eins og hann lýtur út í dag. Núverandi eigandi er Einar Óskarsson Gesthúsum á Álftanesi. Aðspurður kvaðst Einar hafa eignast bátinn líklega um 2001 frekar en 2003. Það hafi atvikast þannig að Leifur sonur hans hafi verið tengdasonur Gunnar Hjálmarssonar, þannig hafi svo báturinn komist í hans eigu. Báturinn fékk nafnið Leifur, eftir syni Einars. Skrifað af Rikki R. 15.06.2011 16:425672 Óskar HF 9Lengi hef ég séð þennan bát en aldrei látið verða að mynda hann fyrr en í dag, 15. júní 2011. Að vísu hafði ég myndað hann við sólsetur þann 30. maí 2011 en þar sést bara skuggamynd af bátnum. 5672 Óskar HF 9 var smíðaður af Eyjólfi Einarssyni skipasmíðameistara í Hafnarfirði árið 1973 fyrir Einar Ólafsson Gesthúsum á Álftanesi. Ári síða lét svo Einar breyta bátnum eins og hann er í dag. Einar hefur átt bátinn frá upphafi og á hann enn. Einar er með nokkurskonar mynjasafn hjá sér þar sem hann hefur Óskar og fleira dót sér til gamans. Óskar hafi leyst annan bát af sem hafi verið þarna áður. Sá bátur er nú í geymslu og mun ég fjalla um hann síðar. Einar sagði mér eina sögu sem ég leyfi mér að segja hér og vona að ég fari rétt með. Einar kvað þetta hafa gerst laugardag einn í júlí 1983. Það hafi ekki verið of gott í sjóinn en samt þá var Einar frekar eirðalaus. Hann fór niður í fjöru þar sem Óskar var. Á sama tíma kom nágranni Einars að landi og sagði honum að hann færi nú ekki út í þetta. Einar kvaðst nú vera sammála því en samt þar sem hann væri nú kominn þetta þá gæti hann eins farið út undur skerin og reynt að fiska eitthvað. Þegar Einar var kominn út og var að renna fyrir fisk sá hann að nokkrar skútur voru á leið til Hafnarfjarðar, en þar var verið að halda uppá einhverja hátíð. Einar kvaðst hafa séð að lítil skúta hafði dregist afturúr og var talsvert á eftir hinum. Þar sem hann var að fiska veitti hann því athygli að skúturnar fóru allar framhjá honum nema þessi síðasta. Einar kvaðst hafa litið eftir skútunni en ekki séð hana. Hann hafi séð einhverjar þúst í sjónum sem hann kannaðist ekki við og sigldi því í áttina. Þegar nær dró sá hann að þetta var skútan og hún á hvolfi. Tveir menn voru á kili skútunnar. Þegar Einar kom til þeirra sagði eldir maðurinn, "taktu strákinn, hann er ósyndur". Það sem gerðist var að þessir menn, Jóhann Guðmundsson og Guðmundur Jóhannsson, höfðu ákveðið að snúa við en fara ekki til Hafnarfjarðar en þegar þeir venda þá hvoldi skútunni. Þeir hafi nú samt ekki átt að vera í erfiðleikum með að snúa skútunni á réttan kjöl aftur en þeim tókst það ekki. Einar kvaðst halda að það hafi verið farið að fjara út og endi mastursins hafi verið ofan í þaranum og þeir því ekki náð að snúa skútunni. Einar sagði að það hafi verið greinilegt að hann hafi átt að fara á sjó þennan dag þrátt fyrir veðrið. Skrifað af Rikki R. 14.06.2011 17:43Stýri eða stél ?Svala er bátur sem Jón Ragnar Daðason hefur verið að gera upp. Hann varð fyrir því um daginn þegar hann sigldi Svölunni að stýrið brotnaði. Þar sem báturinn heitir Svalan þá velti ég því fyrir mér hvort Svöluna vantaði stýri eða "stél". Hvað sem því líður þá er Jón Ragnar nú að smíða nýtt stýri og ætlaði hann að smíða það eitthvað sterkara en það gamla var. Hann er langt kominn með endursmíðina á stýrinu og mun setja það á Svöluna strax og smíðinni er lokið. Jón Ragnar hefur svo hug á að vera á Svölunni á Bátadögum 2011 og sigla frá Stykkishólmi. Hér fyrir neðan má sjá Jón Ragnar með stýrið í smíðabekknum að ræða við Hafliða lærimeistara sinn. Miklar mælingar og pælingar eru við svona smíði svo vel eigi að takast til.
Skrifað af Rikki R. 14.06.2011 17:34Gamaldags verkfæriHitti á Jón Ragnar Daðason lærlingur í skipasmíði. Ég var að skoða verkfærin hans og þá rifjaðist upp fyrir mér að talsvert af svona verkfærum voru til á mínu heimili á Húsavík þegar ég var lítill, hvar þau enduðu síðan er ekki gott að segja. Hér eru nokkrar myndir af verkfærum sem Jón notar við bátasmíðarnar.
Skrifað af Rikki R. 13.06.2011 23:1113. júní 2011Loksins fór ég út eftir rúmlega viku veikindi, nældi mér í smá lungnabólgu svona rétt til að krydda tilveruna svolítið. Ákvað að kíkja hvort ég fyndi ekki einhverja sem væru að leggja lokahönd á einhverjar tryllur sem ætluðu að skreppa á Bátadaga 2011. Ég var ekki svo heppinn en ég hitti á Hilmar F. Thorarensen eiganda Hönnu ST 49 og myndaði helstu breytingar. Uppfærði aðeins sögu Hönnu eftir viðtal við Hilmar, sjá hér http://rikkir.123.is/blog/record/511284/
Skrifað af Rikki R. 10.06.2011 19:34Bátadagar á BreiðafirðiBátadagar á Breiðafirði 2-3 júlí 2011 Félag áhugamanna um Bátasafn Breiðafjarðar (FÁBB), sem undanfarin 3 ár hefur gengist fyrir siglingu súðbyrtra trébáta um Breiðafjörð, gengst nú fyrir slíkri bátahátíð dagana 2-3 júlí n.k.. FÁBB hefur súðbyrðinginn í öndvegi og vinnur að verndun hans og kynningu. Einnig stendur félagið að sýningunni "Bátavernd og hlunnindanytjar", sem opnuð var á Reykhólum 1. júní s.l. í samvinnu við Reykhólahrepp og Æðarvé, félag æðarbænda í Austur-Barðastrandasýslu og Dalasýslu. Að þessu sinni verður fyrirkomulag bátadaga þannig að siglt verður á laugardeginum 2. júlí bæði frá Reykhólum og frá Stykkishólmi í Rauðseyjar og Rúfeyjar. Á sunnudeginum 3. júlí er ráðgert að sigla í Akureyjar og einnig verður sýningin á Reykhólum opin fyrir þátttakendur. Áætlað er að siglt verði frá Stykkishólmi kl.09:00 en frá Reykhólum kl.10:00 og er tímasetning á brottför báta háð veðurspá þessa daga. Siglingin verður undir stjórn manna sem þekkja vel til aðstæðna við Breiðafjörð og eyjarnar verða skoðaðar í fygld manna sem þekkja þær vel og lýsa staðháttum og sögu þeirra. Trébátaeigendur!!! komum saman og siglum í nafni bátaverndar og vekjum athygli á okkar málstað . Hvetjum alla til að nýta sér þetta tækifæri til siglingar í fallegu umhverfi. Þess ber að geta að tjaldaðstaða á Reykhólum er mjög góð og miklar endurbætur hafa verið gerðar tjaldsvæði við Gistiheimilið Álftaland þar sem gestir hafa aðgang að eldhúsi og hreinlætisaðstöðu ásamt því að geta skellt sér í nýju heitu pottana. Verslunin Hólakaup stendur að sjálfsögðu fyrir sínu, hún blómstrar í höndum nýrra eigenda hvað varðar vöruúrval og þjónustu. Rauður: Laugardagurinn 2. júlí frá Stykkishólmi og Reykhólum í Rúfeyjar og Rauðseyjar. Grænn: Sunnudagurinn 3. júlí frá Reykhólum í Akureyjar. Allir súðbyrðingar eru velkomnir og við viljum hvetja sem flesta til að nýta sér þetta tækifæri til siglingar um þetta fallega umhverfi. Mjög góð aðstaða fyrir minni báta er bæði á Reykhólum og í Stykkishólmi. Nánari upplýsingar veita: Hafliði Aðalsteinsson, haflidia@centrum.is s: 898 3839 Hjalti Hafþórsson, artser@simnet.is s: 861 3629 Sigurður Bergsveinsson, sberg@isholf.is s: 893 9787 Hér má svo sjá hluta þeirra báta sem voru á Bátadögum 2010. Smellið á myndina og þá sjáiði myndir af öllum bátunum sem voru þarna á ferð. Skrifað af Rikki R. 09.06.2011 21:39The ShadowsÞann 5. maí 2005 fórum við hjónin á tónleika sem haldnir voru í Kaplakrika. Það var hljómsveitin The Shadows sem þar tróð upp. Húsið var fullt og ekki gat ég heyrt betur en allir skemmtu sér hið besta. Reyndar var ég ekkert að velta því fyrir mér hvort aðrir skemmtu sér heldur hafði ég svo gaman á þessum tónleikum við að hlusta og mynda að ég gaf mér litinn tíma að fylgjast með öðrum. Ég var að rifja þessa tónleika upp því það var gefin út diskur með tónlist og dvd af þessari lokaferð þeirra sem tekin var upp í Cardiff. Við að skoða þessa tónleika þá gat þetta alveg eins verið tekið upp hér í Hafnarfirðinum því sjóvið var það sama. Ég setti inn nokkrar myndir af þeim félögum, Hank Marvin, Bruce Welch og Brian Bennett en þeir skipa Shadows. Með þeim á myndunum er svo Mark Griffith sem spilar á bassa. Setti inn nokkrar myndir frá þessum tónleikum vonandi ykkur til smá ánægju. Þá má geta þess að í kvöld eru tónleikar með Eagles og þar sem hún er ein af mínum uppáhaldshljómsveitum langaði mig að vera þar. Fannst miðarnir reyndar "aðeins" of dýrir og því fer ég ekki. Þessir tónleikar með Shadows get ég upplyfað aftur og aftur með að skoða dvd af The Shadows The Final Tour. Mæli eindregið með þeim diski. Skrifað af Rikki R.
|
Málsháttur dagsins Svo flýgur hver fugl sem hann er fiðraður !clockhere Rikki R Nafn: Ríkarður RíkarðssonFarsími: 862 0591Tölvupóstfang: rikkirikka@gmail.comAfmælisdagur: 24. septemberHeimilisfang: Breiðvangi 3, 220 HafnarfjörðurStaðsetning: HafnarfjörðurHeimasími: 565 5191Um: Fæddur á Húsavík á því herrans ári 1961 og hef tekið ljósmyndir frá því ég var strákur. Aðaláhugamálið er að taka myndir af fuglum en þó mynda ég allt sem mig langar til að mynda eins og sjá má.Eldra efni
Tenglar
|
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is