Ljósmyndasíða Rikka Fuglar, gamlir bátar, mannlíf, íslensk náttúra eins og ég sé hana |
|
Færslur: 2010 Apríl26.04.2010 23:30Hafnarfjarðarhöfn 25. apríl 2010Kíkti á Hafnarfjarðarhöfnina þann 25. apríl 2010. Þar voru menn að ditta að bátum sínum fyrir sumarið eins og venjulega. Guðrún BA 127 sigldi úr höfn, hvert veit ég ekki! Gæti verið heimahöfnin Tálknafjörður. Fleiri myndir í albúminu: Skip og bátar 2010.
Skrifað af Rikki R. 25.04.2010 00:382761 RósinRak augun í að 2761 Rósin er komin á flot. Tók þessar myndir af Rósinni í Hafnarfjarðarhöfn þann 24. apríl 2010. Þessi er ætlaður í túristaveiðar. Vonandi gengur þeim allt í haginn með þær veiðar. Grétar Þór var búinn að fjalla um þennan á meðan hann var í smíðum sjá hér http://gretars.123.is/blog/record/442150/ Rósin er alla vegna komin á flot og lítur bara vel út.
Skrifað af Rikki R. 22.04.2010 22:28HeiðlóaEltist aðeins við heiðlóurnar á Hlíðsnesinu. Það gekk ekki vel en tókst samt sæmilega. Setti nokkrar myndir inn í albúm Heiðlóa.
Skrifað af Rikki R. 22.04.2010 22:20SumarþvotturÉg rakst á þennan blika vera að sinna vorverkunum í Hafnarfjarðarhöfn eins og allir sjómennirnir. Náði þokkalegri seríu á honum og má sjá hana í albúmi Æðarfugl.
Skrifað af Rikki R. 21.04.2010 18:47Nú var það blátt!Fór niður á Reykjavíkurhöfn og smellti nokkrum myndum. Flestir bátarnir sem ég sá voru bláir. Sýnist Sighvatur vera nýskveraður og þá var Leynir að gera sig kláran til að hjálpa Wilson ?eitthvað úr höfn. Fleiri myndir í albúmi.
Skrifað af Rikki R. 21.04.2010 18:41Gert klárt í HafnarfjarðarhöfnEnn set ég inn myndir af bátum sem verið er að gera klára fyrir sumarið. Í dag, 21. apríl var búið að mála Hafstein og Grímur var kominn á flot og á sinn stað í höfninni.
Skrifað af Rikki R. 18.04.2010 12:21Fuglar + aska = ?Fýllinn er góðvinur sjómannsins og spurning hvernig fýlnum muni reiða af í þessu öskufalli. Fýllinn var sestur upp á nokkrum stöðum og spurning hvort þetta hefur áhrif á það. Þá spurning hvort þetta hefur einhver áhrif til lengri tíma litið? Margar spurningar vakna þegar áhugamálið er annars vegar. Þið sem ekki þekkið mig þá er fuglaljósmyndun eitt af aðaláhugamálum mínum. Þá er ein spurning sem vaknar hjá mér, eru einhverjir bátar á veiðum þar sem öskufall er?
Skrifað af Rikki R. 18.04.2010 01:05Eldgos + fuglar = ?Sumarið að koma og fuglarnir líka. Heiðlóan er komin til landsins ásamt mörgum öðrum fuglategundum. Nú velta menn því fyrir sér hvað verður um þessa fugla sem lenda í öskunni. Menn hafa verið að ræða þetta sín á milli og sýnist sitt hverjum. Sumir vilja halda því fram að það verði allt í lagi með fuglana. Enn aðrir vilja sjá einhverjar rannsóknir og talningar sem gætu hjálpað til við að meta ástandið. Vonum það besta, að þetta hafi ekki áhrif á fuglalíf á Íslandi nóg hefur fækkun ýmissa fuglastofna verið þó þetta bætist nú ekki við. Er eitthvað hægt að gera?
Skrifað af Rikki R. 18.04.2010 01:021610 Ísleifur VE 631610 Ísleifur VE 63. Smíði nr. 28 hjá Skála Skipasmíðju í Skála Færeyjum 1976. Kom til landsins 1981, lengdur 1981 og skutlengdur 1998. Vél. Wartsila.
Skrifað af Rikki R. 16.04.2010 23:451868 Helga María AK 161868 Helga maría AK 16 var smíðaður í Flekkefjord í Noregi 1988. Hét fyrst Haraldur Kristjánsson HF 2.
Skrifað af Rikki R. 16.04.2010 23:282154 Mars RE 2052154 Mars RE 205 var smíðaður í Frederikhavn 1980. Önnur nöfn: Natseq, Árbakur EA 5, Árbakur EA 308, Árbakur RE 205 og nú Mars RE 205.
Skrifað af Rikki R. 15.04.2010 10:09Hrefna skiptir um útlitÉg tók eftir að hún Hrefna blessunin hefur tekið ákvörðun um að fara í litun. Losna við ljóskulitinn og fá sér dökkt skol. Eins og þið sjáið á þessum myndum þá er verið að mála Hrefnu dökkbláa. Verkinu er ekki lokið en mig langaði til að sýna ykkur breytingarnar. Nú er spurningin hvort dökkt fari henni betur en ljóst?
Skrifað af Rikki R. 14.04.2010 21:09Hafnarfjarðarhöfn 14. apríl 2010Þó þungbúið hafi verið í Hafnarfirði í dag mátti sjá menn vinna vorverkin. Verið var að vinna við skrúfuna á Hrefnu, nokkrir dagar eru síðan Bibbi Jóns var rakaður. Fleiri voru í vorverkum. Sjómenn að komast í sumarfílinginn. Fleiri myndir eru í albúmi.
Skrifað af Rikki R. 11.04.2010 02:00Purkur5976. Purkur var á ferðinni við Stykkishólmi 03. apríl 2010. Ég finn hann ekki á skrá.
Skrifað af Rikki R. 11.04.2010 01:541560 Sandra SH 711560 Sandra SH 71, var smíðaður 1979 á Skagaströnd. Útgerðin er Rauðastjarnan ehf Rifi. Eldri nöfn: Jökull RE 139, Var AK 39, Siggi Villi NK 17, Búi SU 174, Búi GK 230, Búi ÍS 56, Gísli á Bakka BA 25, Jökulberg SH 398, Dagur RE 10, Draupnir GK 122, Víðir KE 101, Víðir KE 301, Sandra GK 25 og núverandi nafn Sandra SH 71.
Skrifað af Rikki R.
|
Málsháttur dagsins Svo flýgur hver fugl sem hann er fiðraður !clockhere Rikki R Nafn: Ríkarður RíkarðssonFarsími: 862 0591Tölvupóstfang: rikkirikka@gmail.comAfmælisdagur: 24. septemberHeimilisfang: Breiðvangi 3, 220 HafnarfjörðurStaðsetning: HafnarfjörðurHeimasími: 565 5191Um: Fæddur á Húsavík á því herrans ári 1961 og hef tekið ljósmyndir frá því ég var strákur. Aðaláhugamálið er að taka myndir af fuglum en þó mynda ég allt sem mig langar til að mynda eins og sjá má.Eldra efni
Tenglar
|
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is