Ég skrapp á tvenna tónleika 19. desember 2009. Annars vegar voru það tónleikar í Háskólabíói með Sinfoníuhljómsveitinni. Á undan tónleikunum þ.e. þegar gestir gengu inn þá spiluðu nemendur Allegro Suzuki tónlistarskólans nokkur jólalög. Í þeim hópi var dóttir mín. Á tónleikunum sjálfum var Halldóra Geirharðsdóttir kynnir sem hin yndislega Barbara trúður. Þarna kom gestur og flutti söguna um snjókarlinn sem lifnaði við og lék það líka, það var engin annar en Páll Óskar. Hér fyrir neðan má sjá Pál Óskar á sviðinu. Barbara trúður sagði hann vera eins og jólakúlu en Páll Óskar kvaðst frekar vera eins og jólastjarna og pósaði. Ég hafði gaman af þessum tónleikum og krakkarnir stóðu sig frábærlega. Simfó og Páll Óskar stóðu sig líka ágætlega:-) Fleiri myndir frá þessum tónleikum í albúmi.
Páll Óskar "jólastjarna"
Páll Óskar leikur snjókarlinn á mótorhjóli
Hinir tónleikarnir sem ég fór á voru í Lindakirkju í Kópavogi. Þar hélt Regína Óska jólatónleika og fékk aðstoð stúlknakórs Víðistaðakirkju. Í þeim kór er Elín Hanna dóttir mín. Frábærir tónleikar. Tónleikarnir voru svo endurteknir þann 20. desember 2009 í Víðistaðakirkju. Ég fór þangað líka og þá tók ég upp á vídeóvélina mína. Fleiri myndir frá þessum tónleikum í albúmi.
Regína Ósk í Lindakirkju í Kópavogi 19. desember 2009
Regína Ósk og Stúlknakór Víðistaðakirkju, 19. desember 2009