Kæru vinir og vandamenn. Set hér inn mynd sem ég tók fyrir jólin af litlu frænku minni, Elínu Pálsdóttur, en ég vildi ekki setja inn fyrr en foreldrarnir væru búnir að opna pakkana sína.
Kæru ættingjar og vinir. Við fjölskyldan á Breiðvangi 3 sendum ykkur bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár. Megi þið og fjölskyldur ykkar hafa það sem allra best um hátíðarnar. Set hér inn nokkrar myndir til að lífga upp á forsíðuna ennþá meira. Hér er mynd tekin í Fossvoginum og ég er ekki frá því að þarna sé hinn eini sanni jólasnjór.
Meiri jólasnjór í Fossvoginu og svo Snæfinnur sjálfur, en hann var í Stykkishólmi.
Vinkonurnar Elsa og Elín Hanna. Þær eru nú svolitlar jólastelpur í sér.
Elín Hanna horfir á jólakertið.
Svo loksins fer maður að sofa, frekar seint því spennan er svo mikil. Jólin að koma.
Núna er aðventan og stutt til jóla. Því datt mér í hug að setja nokkrar myndir á forsíðuna. Hér er mynd sem ég tók 1998. Þessi mynd var á jólakortinu okkar 1998 og er myndin af Elínu Hönnu.
Hér er önnur af Elínu Hönnu og var á jólkorti 2004.
Hér er ein tekin við Hafnarfjarðarhöfn.
Hér er mynd af Garðakirkju á aðventunni.
Jólin í Stykkishólmi.
Og að lokum enn ein af Elínu Hönnu, mynd af jólakortinu 2006.
Þar sem ég hef lítið komist að mynda síðustu vikurnar hef ég verið að skoða og leita eftir málsháttum. Nú setti ég inn málshætti í stafrófsröð, þeir eru nokkrir og vona ég að þið gefið ykkur góðan tíma til að lesa þá yfir. Þá er eitthvað af villum í þeim og þætti mér vænt um að þið leiðréttuð það sem betur mætti fara og létuð mig vita. Sjálfur er ég að yfirfara þetta í rólegheitum. Hér ér einn.
Fæddur á Húsavík á því herrans ári 1961 og hef tekið ljósmyndir frá því ég var strákur. Aðaláhugamálið er að taka myndir af fuglum en þó mynda ég allt sem mig langar til að mynda eins og sjá má.