Loksins gaf ég mér tíma til að kíkja á Jón Ragnar Daðason og bátinn hans, Svöluna. Jón Ragnar hefur verið að gera bátinn upp en hann er að læra bátasmíðar og lærimeistari hans er Hafliði Aðalsteinsson.
Svalan var smíðuð 1906 af Rögnvaldi Lárussyni skipasmið í Stykkishólmi. Rögnvaldur þessi er langa-langafi Jóns Ragnars. Í upphafi var Svalan árabátur en síðar var sett í hann vél. Við hlið Svölunnar bíður Albin 0-1, 5 hestafla, sem sett verðu í bátinn fljótlega. Það er nánast búið að skipta um allt í bátnum en Jóni tókst að nota tvö borð og afturstefnið á bátnum.
Útlit bátsins er eins og margir bátar á Breiðafirðinum voru, þ.e. að tvö efstu umförin eru máluð og öll neðri eru tjörguð.
Það vantar talsvert í sögu bátsins og mun Jón Ragnar verða rukkaður um hana. Meira síðar.
Svalan og Albin vélins sem fer í hana. Reykjavík 3. mars 2011
Jón Ragnar með lærimeistara sínum við Svöluna. Reykjavík 3. mars 2011