Þann 19. júní 2009 tók ég þessar myndir af stýrishúsi sem stendur við Læknishúsið í Flatey á Breiðafirði. Ég fékk þær upplýsingar frá Einari Steinþórssyni tengdaföður mínum að þetta stýrishús væri af flóabátnum Konráði BA 152. Þess má geta að Einar var vélstjóri á Konráði. Ég ræddi líka við Hafstein Guðmundsson bónda í Flatey sem sagði mér að þetta stýrishús hafi verið byggt á Konráð fyrir stríð, en væri ekki upprunalega stýrishúsið.
Í frásögn Ólafs Ásgeirs Steinþórssonar (smella á heiti greinarinnar),
"Brot af sögu flóabátsins Konráðs BA-152", sem birt var í Morgunblaðinu fimmtudaginn 28. mars 2002 dró ég saman eftirfarandi upplýsingar: 15. mars 1927 var stofnað hlutafélag um útgerð flóabáts sem þjóna skyldi byggðum við norðanverðan Breiðafjörð, þetta hlutafélag hlaut nafnið Norðri hf. Menn höfðu augastað á 19. tonna eikarbát, nýsmíði sem stóð óseldur vestur á Þingeyri. Gengið var frá kaupunum og var ásett verð rúmar átján þúsund krónur. Báturinn fékk nafnið Konráð BA-152.
Í þessari frásögn Ólafs má m.a. lesa um svaðilför sem skipverjar lentu í.
Í Íslensk skip eftir Jón Björnsson segir um Konráð BA 152 (639): Smíðaður á Bíldudal 1926 úr eik og furu. 18 brl. að stærð með 45 hestafla Delta aðalvél. Eigandi Norðri hf. í Flatey á Breiðafirði frá 18. maí 1927. 1935 var sett í bátinn 50 hestafla Scandia vél. 1948 var skipt um vél aftur og þá var það 66 hestafla Kelvin vél sem var svo skipt úr fyrir samskonar vél 1956. Báturinn talinn ónýtur og tekinn af skrá 23. nóvember 1965.
Hér má sjá ljósmynd af Konráð BA-152 sem er í grein Ólafs Ásgeirs Steinþórssonar. Þarna gæti verið um upprunalega stýrishúsið að ræða því það virðist minna en það sem er á myndunum mínum.
Konráð BA 152 í Hafnarsundi við Flatey
Stýrishúsið af Konráði BA-152 og Snæfellsjökull í baksýn. Flatey á Breiðafirði 19. júní 2009
Stýrishúsið af Konráði BA-152. Flatey á Breiðafirði 19. júní 2009