Þennan bát
myndaði ég í Hafnarfjarðarhöfn þann 20. ágúst 2016. Kannaðist ekki við að hafa séð hann áður en
sá númer á bjarghringnum sem vísaði mér á að þetta væri Margrét Jóhannsdóttir
ÓF 49. Það sem ég veit um þennan bát er ekkert og því leitaði ég í Íslensk skip, bátar og á vef aba.is. Ég held að einhver sé byrjaður að gera bátinn upp ég get mér þess
til að sá hinn sami hafi sett á flot til að þétta bátinn. Meira síðar..........
5334 Margrét HU 22 í Hafnarfjarðarhöfn 20. ágúst 2016.
Margrét Jóhannesdóttir ÓF-49.
( 5334 )
Stærð: 3,50 brl. Smíðaár 1974. Fura og eik. Súðbyrðingur með lúkarskappa. Afturbyggð trilla.
Vél 22 ha. SABB.
Smíðaður fyrir Pál J. Guðmundsson, Ólafsfirði, sem átti bátinn frá 25.júlí 1974, en hann átti bátinn í tuttugu og þrjú ár en ekki allan tímann undir sama nafni, því að
frá 19. desember 1990 hét hann Margrét ÓF-49.
Páll seldi bátinn 06.maí 1997 Sigurði Ómari Jónssyni, Reykjavík. Báturinn hét Margrét ÓF 49 og var hann gerður út af nýjum eigendum frá Ólafsfirði sem skemmtibát.
Til Hvammstanga kom báturinn árið 1998 og fékk
þar nafnið Margrét HU-22.
Rétt er að geta þess að skrokk bátsins smíðaði
Þorgrímur Hermannsson vestur á Hofsósi en þaðan var hann fluttur til Akureyrar
á bátaverkstæði Birgis Þórhallssonar þar sem gengið var endanlega frá smíðinni
og báturinn vélvæddur.
Nýir eigendur komu að bátnum 2008 og er ekki annað
vitað en árið 2012 sé heimahöfn bátsins á Hvammstanga og nafn hans enn Margrét
HU-22.
Upplýsingar
Aba.is http://www.aba.is/Default.aspx?modID=1&id=44&vId=101
Íslensk skip, bátar, bók 2, bls. 265, Margrét Jóhannsdóttir ÓF 49 5334.