1109 Tjaldur II ÍS 430 ex Tjaldur II ÞH 294
Báturinn er smíðaður hjá Trésmiðju Austurlands hf, á Fáskrúðsfirði árið 1970, smíðanúmer 21. Tré og fura. 15 brl. 90 ha. Kelvin dísel vél. Teikning eftir Egil Þorfinnsson.
Eigandi Björgvin Helgason og Karl Sigurðsson Reykjavík, frá 1. júní 1970. Báturinn heitir Neisti RE 58. Seldur 21. desember 1970 Guðmundi Jakobssyni, Ragnari Jakobssyni Bolungarvík og Jóel Stefánssyni Hnífsdal. Báturinn heitir Neisti ÍS 218. 16. janúar 1973 seldi Jóel Stefánsson sinn hlut í bátnum þeim Guðmundi og Ragnari Jakobssonum. Báturinn er skráður í Bolungarvík 1988. Seldur til Patreksfjarðar, í kringum aldamótin, þar sem hann fékk nafnið Ásborg BA 84. Árið 2009 n.t.t. 26.08. kom báturinn til Húsavíkur og var þá skráður í skipaskrá sem Tjaldur II ÞH 294 í eigu Stormur Seafood ehf. Báturinn var svo seldur til Suðureyrar í maí 2015, heitir Tjaldur II ÍS 430. Útgerðin heitir Snerla ehf.
Fyrri nöfn: Neisti RE 58, Neisti ÍS 218, Ásborg BA 84, Tjaldur II ÞH 294 og núverandi Tjaldur II ÍS 430.
16.04.2016 tók ég aftur myndir af bátnum í Hafnarfjarðarhöfn en nú ber hann nafnið Saga ÍS 430.
Upplýsingar:
Skipamyndir og skipafróðleikur Emils Páls
Skipamyndir Hafþórs Hreiðarssonar
Íslensk skip, bók 3, bls. 97, Neisti RE 58.
Tjaldur II ÍS 430 í Hafnarfjarðarhöfn 05. október 2015
1109 Saga ÍS 430, Hafnarfjarðarhöfn 16. apríl 2016