5864 Kambur BA 34 ex Sigrún SH 212
Smíðaður
í Hafnarfirði 1961. Eik og fura. 5,94 brl. 26. ha. Lister vél.
Eigandi Björgvin Þorvarðarson og Krisján
Jakobsson, Stykkishólmi frá 29. maí 1961. Báturinn seldur 15. mars 1963
Freysteini Hjaltalín, Brokey, Skógarstrandarhreppi, sama nafn og númer.
Seldur 21. mars 1995 Finnboga Hilmari Pálssyni og Sveinbirni Rúnari Helgasyni,
Patreksfirði. Báturinn heitir Kambur BA 34 og er skráður á Patreksfirði 1997.
25.
nóvember 2012 tók ég myndir af Kambi BA 34 þar sem hann stendur á Fitjunum í
Njarðvík. Ég leyfi mér að fullyrða að
Kambur er ónýtur.
Ég fékk
fyrirspurn um þennan bát, en á facebooksíðu Floti Patreksfjarðar er talað um
bát sem hét Hafratindur BA 34 og fullyrt að hann sé DAS bátur, smíðaður
1961. Það skal tekið fram að DAS
bátarnir svokölluðu voru smíðaðir á árunum 1953-1958. Ef þessi bátur hefur heitið Hafratindur BA 34
á Patreksfirði væri gaman að fá það staðfest því það kemur ekki fram í þeim
gögnum sem ég hef.
Ég hef upplýsingar
að eftirtaldir bátar gætu hafa verið smíðaðir eftir sama skapalóni og DAS
bátarnir 5346, 5619, 5211, 5572.
Heimildir:
Íslensk
skip, bátar, 3. Bók, bls. 172, Sigrún SH
Siglingastofnun
Íslands
Kambur BA 34 ex Sigrún SH 212, Fitjar í Njarðvík