528 Arnar SK 237 ex Hafratindur BA34
Smíðaður í Hafnarfirðir 1961. Eik og fura. 6 brl. 36. ha. Bukh díesel vél.
Eigandi Erlendr Hjartarson, Patreksfirði frá 29. des. 1961. Seldur 7. sept. 1967 Ara Eggertssyni og Eggerti Magnússyni, Tálknafirði. Seldur 1. júní 1974 Bjarna Vernharðssyni, Tálknafirði. Seldur 29. apríl 1976 Bergi Vilhjálmssyni, Patreksfirði. Báturinn er skráður á Patreksfirði 1988.
Upplýsingar: Íslensk skip, bók 1, bls. 56, Hafratindur BA 34.
Þann 25.06.2012 var ég að eltast við bátar og skrapp m.a. á geymslusvæðið móts við Álverið í Straumsvík. Þar sá ég Arnar og var hann orðinn frekar þreyttur. Mín skoðun er að hann á ekki eftir að fara á sjóinn aftur. Vona að ég hafi rangt fyrir mér þar. Myndir í albúmi.
Arnar SK 237. Hafnarfjörður 26. júní 2012