Hólmatindur RE 71, 5483
Smíðaður í Bátalóni í
Hafnarfirði 1956. Eik og fura. 4,67 brl. 18 ha. Lister vél.
Hólmatindur er sjöundi
happdrættisbáturinn og hann var dregin út 03. ágúst 1956 og kom á miða nr.
7253, eigandi miðans og fyrsti eigandi Hólmatinds var Páll Beck, Kópavogi,
blaðamaður á Vísi. Páll er að öðrum
þræði sjómaður. Þess má til gamans geta
að Páll er alinn upp í Reyðarfirði undir hlíðum Hólmatinds. Páll selur bátinn fljótlega.
Eggert Bjarni
Kristjánsson, Reykjavík kaupir bátinn 24. febrúar 1957. Eggert selur bátinn 29. des. 1960, Geir Ágústssyni, Raufarhöfn, hét Hólmatindur
ÞH 103. Seldur 2. septeber 1972
Gunnlaugi Óskarssyni, Sæbergi, Presthólahreppi.
Frá 2. september 1979 voru Gunnlaugur Óskarsson og Jón Jóhannsson,
Njarðvík, skráðir eigendur bátsins, sem hét þá Hólmatindur GK 203. Seldur 20. júlí 1980 Hauki Reyni Ísakssyni,
Kópavogi. Seldur 2. júlí 1982 Grétari
Sigurðssyni og Guðmundi Valdimarssyni, Keflavík, en þeir seldu bátinn sama dag
Halldóri Grímssyni og Skúla Halldórssyni, Akranesi. Báturinn er ekki umskráður. Seldur 9. mars 1983 Skúla Berg Halldórssyni,
Patreksfirði, hét Hólmatindur BA 203.
Seldur 21. mars 1985 Gunnari Stefánssyni og Svavari Matthíassyni,
Akranesi, hét Ölver AK 82. Seldur 4. júní
1985 Hreini Gíslasyni, Grenivík, hét Ölver ÞH 146. Seldur 12. janúar 1986 Hallgrími S.
Gunnþórssyni, Borg, Grenivík, hét Hugrún ÞH 240. Seldur 5. desember 1991 Guðbjörgu
Herbertsdóttur, Grenivík, sama nafn og númer.
Báturinn var talinn ónýtur og tekinn af skrá 29. janúar 1997.
Dagar Hólmatinds eru
ekki taldir. Ég fann grein í Brimfaxa
síðan í júní 2010. Greinina getiði séð
alla hér http://brimfaxi.goggur.is/brimfaxi/1.tbl.2010.pdf
en þar kemur m.a. fram. Flestir þessara
báta hafa týnt tölunni, fæstir ef nokkrir á sjó í dag en einn heillegastur er
bátur sem er á Grenivík og stendur þar uppi við hlið Útgerðarminjasafnsins á
Grenivík. Þetta er Hugrún ÞH 240, sem
upphaflega hét Hólmatindur RE 71, vinningur í happdrætti DAS í ágústmánuði
1956. Báturinn kom til Greinvíkur frá
Akranesi 1986, þá í eigu Hreins Gíslasonar, en var ósjófær. Þá fær hann nafnið Ölver ÞH 215. Bátinn eignaðist síðan Svavar Gunnþórsson og
setti í hann 82 ha. Ford Mermade-vél en árið 1996 er hann úreltur og síðan
gefinn Útgerðarsafninu á Greinivík.
Svavar gerði hann upp fyrir hreppsfélagði.
Hugrún ÞH 240 ex Hólmatindur RE 71. Mynd úr Brimfaxa, 2010.
Mynd sem Jóhannes Guðnason tók, mynd af síðu Emils Páls.
Heimild:
Íslensk skip, bátar
Brimfaxi, júní 2010
Tímarit.is