Búlandstindur
Smíðaður í Bátasmiðju Breiðfirðinga í Hafnarfirði
1956. Eik og fura. 4.67 brl. 18 ha. Lister vél.
Búlandstindur
er sjötti happdrættisbáturinn í röðinni og var dregin út 03. mars 1956, kom á
miða nr. 27642 sem var í eigu Þorleifs Sigurbrandssonar, Reykjavík, og er hann
því fyrsti eigandi bátsins. Þorleifur
hefur ákvðið að selja bátinn strax.
Mynd úr safni DAS
Morgunblaðið
laugardaginn 24. mars 1956 er sagt frá svaðilför Búlandstinds
Þeir sem áttu leið um Hafnarfjarðarveg
í fyrrakvöld (fimmtudaginn 22. mars 1956), sáu hvar þessi stóri trillubátur lá
úti í skurði við brúna í Kópavogi. Verið
var að flytja bátinn til Reykjavíkur frá Hafnarfirði. Heitir báturinn Búlandstindur og var í
síðasta happdrætti Dvalarheimilisins.
Hefur hann verið seldur út á land.
Þarna við brúna slitnaði vagninn, sem báturinn var á, aftan úr bílnum
sem dró hann. Fór vagninn með bátinn út
í skurðinn þar sem báturinn valt af.
Ekki urðu á honum neinar skemmdir.
Með krana og tilfæringum var báturinn tekinn upp úr skurðinum og settur
á vagn og fluttur síðar um kvöldið til Reykjavíkur.
Tíminn
laugardaginn 14. apríl 1956, hluti úr grein
Fyrir skömmu var keyptur hingað til
Þórshafnar nýr trillubátur, Búlandstindur, sem kom frá happdrætti
Dvalarheimilis aldraðra sjómanna.
Ekki liggur saga Búlandstinds á lausu og mun ég halda áfram að grafa upp allt sem ég finn. Ef þið hafið einhverjar upplýsingar endilega látið þær koma.
Meira
síðar.............................