Kofratindur
Smíðaður í Bátasmiðju Breiðafjarðar í Hafnarfirði 1955. Eik og fura.
Vélbáturinn
Kofratindur er fimmti happdrættisbáturinn.
Hann var dregin út 08. janúar 1956, kom á miða númer 32051 sem var í
eigu Ólafs Jakobssonar, Ísafirði, sem er
þá fyrsti eigandi Kofratinds.
Lítið hef ég
fundið um Kofratind nema að greinilegt er að Ólafur Jakobsson hefur ákveðið að selja bátinn strax. Kofratindur var auglýstur til sölu 31. janúar 1956, 4. apríl 1956 og aftur 13.
maí 1956.
Mynd af Heklutindi.
Mynd af Heklutindi
Enn eina
söluauglýsinguna fann ég 30. maí 1958, þar heitir báturinn Sæbjörg VE 313 (áður
Kofratindur).
Önnur
auglýsing var í Fylkir í Vestmannaeyjum 30. maí 1958. Þar er talað um Happdrættisbátinn Sæbjörgu
(áður Kofratind).
Eina sem ég get sagt er að báturinn var dreginn út og Ólafur Jakobsson Ísafirði eignast bátinn. Hann selur hann strax eða fjótlega. Greinilegt er að báturinn hefur svo farið til Vestmannaeyja því hann er auglýstur þar til sölu sem Sæbjörg VE 313, 30. maí 1958. Síðan hefur ekkert til hennar spurst.
Þetta fer að verða eins og sagan um búkollu, útgáfuna hans Ladda.
Þar sem ég hef engar upplýsingar þá get ég bara dregið áliktanir á því litla sem ég hef og þið sjáið hér. Það er þó eitt sem ég velti fyrir mér miðað við skort á upplýsingum og það er nafnið Sæbjörg. Í auglýsingunni er talað um "opin trillubát með bensínvél". Ég hef þær upplýsingar að allir DAS bátarnir hafi verið með Lister vél, þó er ekkert sem segir að ekki hafi verið skipt um vél.
Ég fékk eina mynd frá DAS sem sýnir bát sem heitir Sæbjörg. Ekki er vitað hvort þessi bátur var einn af DAS bátunum og engar upplýsingar um þennan bát hjá DAS. Ég set þessa mynd hér inn svo þið getið skoðað hana. Ef þið hafið einhverjar upplýsingar um þennan bát eða Kofratind þá endilega látið í ykkur heyra.
Sæbjörg. Mynd úr safni DAS
Meira síðar ...............