5630 Svanur SU 28
Smíðaður á Fáskrúðsfirði 1961. Eik og Fura. 2,99 brl. 45 ha. Gibsy vél.
Eigandi Jón Úlfarsson, Eyri Fáskrúðsfirði, frá 29. des. 1969. Eiganda ekki getið fyrir þann tíma. Seinna hét báturinn Krummi SU 280. Hann var talinn ónýtur og tekinn af skrá 26. maí 1995.
Man ekki hvenær ég tók þessa mynd. Man að ég tók hana því mér fannst báturinn flottur með þetta Land Rover hús. Fann þessa frásögn um bátinn í Íslensk skip, bátar.
Heiðberg Hjelm semdi mér þessa athugasemd/sögu og ég ákvað að setja hana hér inn. Heiðberg segir húsið á bátnum vera af Austin Gypsi jeppa og er sú saga til af tveim bátum sem voru á siglingu út af austfjörðum í þoku og slæmu skyggni. Annar kallar í talstöðina.......heldur þú ekki að við séum að nálgast land...svarað var....því reikna ég með, að minsta kosti er ég að mæta hér Austin Gypsy.
5630 Svanur SU 28. Mynd tekin fyrir margt löngu, man ekki hvenær.