Fjölskyldan leit við í Herdísarvík svona rétt til að kíkja á tilraunaveiðar sem þar fara fram. Þarna er Joe David með GB Túttuna og hefur verið að dýptarmæla og nú það nýjasta að leggja krabbagildru og þá hefur hann einnig kíkt eftir fiski. Þegar ég dróg krabbagildrurnar í land í dag þá var slatti af kröbbum í gildrunum. Þarna var um að ræða Bogkrabba eða Strandkrabba eins og hann er líka kallaður. Ekki vissi ég nafn krabbans fyrr en heim kom og flett var á netinu þá kom þetta strax í ljós.
Bogkrabbi/strandkrabbi, Herdísarvík 15. júlí 2012
Bogkrabbi, strandkrabbi, Herdísarvík 15. júlí 2012
Bogkrabbi (Carcinus maenas) (E) shore crab, European green crab.
Bogkrabbi, einnig kallaður strandkrabbi hefur 5 pör gangfóta og fremsta parið myndar gripklærnar. Öftustu fæturnir eru að nokkru leiti flatir. Litur bogkrabba getur verið dökkgrænn og grár. Einnig er hann oft brúnn, grænleitur og gulur eða appelsínugulur (elstu dýrin). Á vissu stigi (oft ungviði) er hann með hvítum skellum. Skel bogkrabba getur orðið allt að 6 cm. að lengd og um 9 cm. að breidd. Bogkrabbann má þekkja á 5 göddum á hvorri hlið hans og 3 hnúðum á milli augna hans.
Grein um bogkrabba má finna ef þú setur slóðina sem er hér neðan við inn í leitarvélina.
5 gaddar á hvorri hlið og 3 hnúðar á milli augna. Bogkrabbi einnig kallaður strandkrabbi
Upplýsingar
http://staff.unak.is/hreidar/Skjol/Sumarverkefni_2010_Krabbar_Halldor.pdf
eftur Halldór Pétur Ásbjörnsson, Vannýttar auðlindir? Krabbar við Íslandsstrendur